Þjóðverjar með öruggt sæti í undankeppni ÓL Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2015 15:03 Dagur Sigurðsson og félagar fagna. Vísir/Eva Björk Þýskaland hafnaði í sjöunda sæti á HM í handbolta og tryggði sér þar með öruggan þátttökurétt í undankeppni ÓL 2016. Það varð ljóst eftir sigur Þjóðverja á Slóveníu í dag, 30-27. Sjöunda sætið var í húfi í dag en liðin í 2.-7. sæti HM fá sæti í undankeppni næstu Ólympíuleika. Ef að Katar, sem keppir til úrslita á mótinu á morgun, verður Asíumeistari á næsta ári fær liðið í áttunda sæti einnig sæti í undankeppninni. Það eru því ágætar líkur á því að Slóvenía fái einnig tækifæri til að koma sér til Ríó á næsta ári en engu að síður var það góð tilfinning fyrir Dag Sigurðsson að klára mótið með sigri og halda heim á leið með þetta langþráða sæti í undankeppni Ólympíuleikanna. Þýskaland missti af Ólympíuleikunum 2012 í London og þar á bæ þrá menn fátt meira en að verða aftur á meðal þátttökuþjóða í handboltakeppni leikanna. Dagur endurheimti skyttuna Steffen Weinhold úr meiðslum en sóknarleikur liðsins leið mjög fyrir fjarveru hans í leiknum gegn Króatíu í gær. Eftir þunga byrjun náðu Þjóðverjar að þétta varnarleikinn um miðjan fyrri hálfleik og taka þar með frumkvæðið í leiknum. Silvio Heinevetter kom þá einnig inn fyrir Carsten Lichtlein, sem varði aðeins eitt af sjö skotum sínum á upphafsmínútum leiksins, og sá fyrrnefndi átti góðan leik. Enginn var þó betri en fyrirliðinn og hornamaðurinn Uwe Gensheimer sem skoraði þrettán mörk í dag og var magnaður. Þjóðverjar fóru langt á góðum varnaleik og markvörslu í dag og uppskáru fyrir það dýrmæt mörk úr hraðaupphlaupum. Staðan var orðin 27-21 um miðjan síðari hálfleikinn og þrátt fyrir áhlaup Slóvenanna þá héldu þeir þýsku dampi og lönduðu öruggum sigri. HM 2015 í Katar Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Sjá meira
Þýskaland hafnaði í sjöunda sæti á HM í handbolta og tryggði sér þar með öruggan þátttökurétt í undankeppni ÓL 2016. Það varð ljóst eftir sigur Þjóðverja á Slóveníu í dag, 30-27. Sjöunda sætið var í húfi í dag en liðin í 2.-7. sæti HM fá sæti í undankeppni næstu Ólympíuleika. Ef að Katar, sem keppir til úrslita á mótinu á morgun, verður Asíumeistari á næsta ári fær liðið í áttunda sæti einnig sæti í undankeppninni. Það eru því ágætar líkur á því að Slóvenía fái einnig tækifæri til að koma sér til Ríó á næsta ári en engu að síður var það góð tilfinning fyrir Dag Sigurðsson að klára mótið með sigri og halda heim á leið með þetta langþráða sæti í undankeppni Ólympíuleikanna. Þýskaland missti af Ólympíuleikunum 2012 í London og þar á bæ þrá menn fátt meira en að verða aftur á meðal þátttökuþjóða í handboltakeppni leikanna. Dagur endurheimti skyttuna Steffen Weinhold úr meiðslum en sóknarleikur liðsins leið mjög fyrir fjarveru hans í leiknum gegn Króatíu í gær. Eftir þunga byrjun náðu Þjóðverjar að þétta varnarleikinn um miðjan fyrri hálfleik og taka þar með frumkvæðið í leiknum. Silvio Heinevetter kom þá einnig inn fyrir Carsten Lichtlein, sem varði aðeins eitt af sjö skotum sínum á upphafsmínútum leiksins, og sá fyrrnefndi átti góðan leik. Enginn var þó betri en fyrirliðinn og hornamaðurinn Uwe Gensheimer sem skoraði þrettán mörk í dag og var magnaður. Þjóðverjar fóru langt á góðum varnaleik og markvörslu í dag og uppskáru fyrir það dýrmæt mörk úr hraðaupphlaupum. Staðan var orðin 27-21 um miðjan síðari hálfleikinn og þrátt fyrir áhlaup Slóvenanna þá héldu þeir þýsku dampi og lönduðu öruggum sigri.
HM 2015 í Katar Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Sjá meira