KR segir sig úr keppni í Dominos-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2015 23:09 Björg Guðrún Einarsdóttir var fulltrúi KR í A-landsliði kvenna í sumar en hún ætlaði ekki að spila áfram í Vesturbænum. Vísir/Vilhelm Kvennalið KR verður ekki með í Dominos-deild kvenna á komandi vetri en stjórn körfuknattleiksdeildar KR ákvað í kvöld að segja sig úr keppni. Bergþóra Holton Tómasdóttir var með samning við KR-liðið en hún mun ekki spila með liðinu í 1. deildinni og leyfir KR henni að finna sér annað lið í Dominos-deildinni. KR-liðið hefur misst marga lykilmenn í sumar og það mat stjórnarinnar að þær ungu stelpur sem skipa nú meistaraflokk kvenna eigi frekar erindi í 1. deildina en í Dominos-deildina. Í fréttatilkynningu sem KR sendi frá sér í kvöld kemur fram að metnaður KR sé að skipa öflugt lið í báðum meistaraflokkum félagsins og að hvergi verði slakað á í umgjörð kvennaliðsins.Fréttatilkynning frá körfuknattleiksdeild KR Eftir að hafa metið stöðu meistaraflokks kvenna hjá KR hefur stjórn deildarinnar ákveðið að það sé langtíma hagsmunum liðsins og félagsins fyrir bestu að KR segi sig úr keppni í Dominosdeild kvenna og taki þátt í 1. deild kvenna á komandi tímabili. Sannarlega ekki sú staða sem lagt var upp með eftir síðasta tímabil en eftir það sem á undan hefur gengið í leikmannamálum í sumar er það raunsætt mat að sá efnilegi en jafnframt ungi hópur sem telur meistaraflokk kvenna eigi frekar erindi í 1. deild. Metnaður KR er að skipa öflugt lið í báðum meistaraflokkum félagsins og hvergi verður slakað á í umgjörð kvennaliðsins. Markmiðið er nú að byggja upp þá ungu leikmenn sem munu koma úr yngri flokka starfinu, byggja upp öfluga leikmenn sem munu innan fárra ára koma KR aftur í fremstu röð í kvennaboltanum. Leikmönnum og þjálfara var tilkynnt þessi niðurstaða og þessi framtíðarsýn á fundi með stjórn í kvöld. Björn Einarsson var ráðinn þjálfari liðsins síðastliðið vor og hefur hann skiljanlega fengið frest til að ákveða hvort hann fylgji liðinu í 1. deild. Þá er ljóst að landsliðskonan Bergþóra Holton mun ekki leika með KR í 1. deild og virðir stjórn kkd KR ákvörðun hennar og óskar henni alls hins besta í framtíðinni. Það er von stjórnar að aðrir leikmenn taki slaginn, með þeim ungu leikmönnum sem fyrir eru. Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Valur og KR ræddu að tefla fram sameiginlegu liði Óvissa um framhaldið hjá kvennaliðum KR og Vals í körfubolta. 24. ágúst 2015 13:15 Mest lesið Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Handbolti Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Handbolti Fleiri fréttir Landsliðsmenn Stjörnunnar skoruðu saman 53 stig í fyrri hálfleik Í beinni: Stjarnan - Þór Þ. | Leikið á kjördegi Pavel um leikjamet Óla Óla fyrir Grindavík: „Ég reyndi að eyðileggja þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sjá meira
Kvennalið KR verður ekki með í Dominos-deild kvenna á komandi vetri en stjórn körfuknattleiksdeildar KR ákvað í kvöld að segja sig úr keppni. Bergþóra Holton Tómasdóttir var með samning við KR-liðið en hún mun ekki spila með liðinu í 1. deildinni og leyfir KR henni að finna sér annað lið í Dominos-deildinni. KR-liðið hefur misst marga lykilmenn í sumar og það mat stjórnarinnar að þær ungu stelpur sem skipa nú meistaraflokk kvenna eigi frekar erindi í 1. deildina en í Dominos-deildina. Í fréttatilkynningu sem KR sendi frá sér í kvöld kemur fram að metnaður KR sé að skipa öflugt lið í báðum meistaraflokkum félagsins og að hvergi verði slakað á í umgjörð kvennaliðsins.Fréttatilkynning frá körfuknattleiksdeild KR Eftir að hafa metið stöðu meistaraflokks kvenna hjá KR hefur stjórn deildarinnar ákveðið að það sé langtíma hagsmunum liðsins og félagsins fyrir bestu að KR segi sig úr keppni í Dominosdeild kvenna og taki þátt í 1. deild kvenna á komandi tímabili. Sannarlega ekki sú staða sem lagt var upp með eftir síðasta tímabil en eftir það sem á undan hefur gengið í leikmannamálum í sumar er það raunsætt mat að sá efnilegi en jafnframt ungi hópur sem telur meistaraflokk kvenna eigi frekar erindi í 1. deild. Metnaður KR er að skipa öflugt lið í báðum meistaraflokkum félagsins og hvergi verður slakað á í umgjörð kvennaliðsins. Markmiðið er nú að byggja upp þá ungu leikmenn sem munu koma úr yngri flokka starfinu, byggja upp öfluga leikmenn sem munu innan fárra ára koma KR aftur í fremstu röð í kvennaboltanum. Leikmönnum og þjálfara var tilkynnt þessi niðurstaða og þessi framtíðarsýn á fundi með stjórn í kvöld. Björn Einarsson var ráðinn þjálfari liðsins síðastliðið vor og hefur hann skiljanlega fengið frest til að ákveða hvort hann fylgji liðinu í 1. deild. Þá er ljóst að landsliðskonan Bergþóra Holton mun ekki leika með KR í 1. deild og virðir stjórn kkd KR ákvörðun hennar og óskar henni alls hins besta í framtíðinni. Það er von stjórnar að aðrir leikmenn taki slaginn, með þeim ungu leikmönnum sem fyrir eru.
Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Valur og KR ræddu að tefla fram sameiginlegu liði Óvissa um framhaldið hjá kvennaliðum KR og Vals í körfubolta. 24. ágúst 2015 13:15 Mest lesið Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Skot Elínar Klöru mældist á meira en 101 kílómetra hraða Handbolti Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Frábær byrjun Slot ekki nóg til að slá út Solskjær Enski boltinn Þórir leyfði leikmanni að fara heim til að sinna fjölskyldumálum Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Elvar búinn að ganga frá samningi við Magdeburg Handbolti Fleiri fréttir Landsliðsmenn Stjörnunnar skoruðu saman 53 stig í fyrri hálfleik Í beinni: Stjarnan - Þór Þ. | Leikið á kjördegi Pavel um leikjamet Óla Óla fyrir Grindavík: „Ég reyndi að eyðileggja þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sjá meira
Valur og KR ræddu að tefla fram sameiginlegu liði Óvissa um framhaldið hjá kvennaliðum KR og Vals í körfubolta. 24. ágúst 2015 13:15