Logi: Ég tróð mér inná í lokin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. september 2015 22:22 Logi Gunnarsson fagnar hér jöfnunarkörfunni sinni. Vísir/Valli Logi Gunnarsson átti mjög flottan leik á móti Tyrkjum í kvöld en hann kom með 16 stig af bekknum og hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sínum. Logi Gunnarsson tryggði meðal annars íslenska liðinu framlengingu með frábæru skoti 1,2 sekúndum fyrir leikslok. „Ég tróð mér eiginlega inn á völlinn. Ég togaði í þjálfarana og sagði: Þurfið þið ekki að hafa einn í viðbót sem getur skotið þriggja stiga. Þeir sögð: Jú, jú, komdu, komdu," sagði Logi hlæjandi eftir leikinn. „Ég tróð mér þarna inn og svo fékk ég skot og setti það. Það er svo sem ekkert annað en að gera en að setja þessi skot ofan í þegar maður fær þau," sagði Logi. „Það er magnað að vera í framlengingu á móti svona sterku liði sem er búið að vera í úrslitum á HM. Það er ótrúlegt hjá okkur að vera í leik á móti þeim og geta unnið hann. Þeir voru síðan bara of góðir í lokin. Þeir eru með þessa stærð og orkan var kannski farin hjá okkur að geta barist við þá," sagði Logi. „Við börðumst við þá í 41 mínútu en svo var þetta bara of erfitt," sagði Logi. Logi og Jakob komu saman með 38 stig af bekknum og sá til þess að íslenski bekkurinn vann þann tyrkneska 44-33. „Við höfum verið byrjunarliðsmenn í þessu liði í mörg ár og tökum því bara þegar við komum inná og reynum að hjálpa liðinu eins og við getum. Við höfum gert það alltaf og gerðum það í dag," sagði Logi. Logi hefur spilað marga rosalega leiki á ferlinum en í hvaða sæti er þessi leikur hjá honum? „Þessi er ábyggilega í topp þremur á ferlinum. Þess vegna vildi maður vilja vinna hann en svona er þetta," sagði Logi sem gat ekki falið þreytuna eftir fimmta leikinn á sex dögum. „Núna fer ég og hvíli mig aðeins enda laskaður. Ætli ég hvíli mig ekki tvær til þrjár vikur enda þarf ég að ná mér af meiðslum og svona," sagði Logi sem vill ekki gefa neitt strax út um framhaldið. „Ég ætla að bíða og sjá hvaða lið fara með okkur í undankeppnina næst. Þetta er svo gaman að mig langar að prófa þetta aftur. Ég held að ég sé ekkert hættur alveg strax," sagði Logi að lokum. EM 2015 í Berlín Tengdar fréttir Umfjöllun, myndir og viðtöl: Tyrkland - Ísland 111-102 | Mögnuð frammistaða en tap í framlengingu Ísland var ótrúlega nálægt sínum fyrsta sigri á stórmóti í fimmta og síðasta leik sínum á Evrópumótinu í Berlín en íslensku strákarnir enduðu eftirminnilegt Evrópumót með níu stiga tapi á móti Tyrkjum í kvöld, 111-102. 10. september 2015 21:00 Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Sjá meira
Logi Gunnarsson átti mjög flottan leik á móti Tyrkjum í kvöld en hann kom með 16 stig af bekknum og hitti úr 4 af 5 þriggja stiga skotum sínum. Logi Gunnarsson tryggði meðal annars íslenska liðinu framlengingu með frábæru skoti 1,2 sekúndum fyrir leikslok. „Ég tróð mér eiginlega inn á völlinn. Ég togaði í þjálfarana og sagði: Þurfið þið ekki að hafa einn í viðbót sem getur skotið þriggja stiga. Þeir sögð: Jú, jú, komdu, komdu," sagði Logi hlæjandi eftir leikinn. „Ég tróð mér þarna inn og svo fékk ég skot og setti það. Það er svo sem ekkert annað en að gera en að setja þessi skot ofan í þegar maður fær þau," sagði Logi. „Það er magnað að vera í framlengingu á móti svona sterku liði sem er búið að vera í úrslitum á HM. Það er ótrúlegt hjá okkur að vera í leik á móti þeim og geta unnið hann. Þeir voru síðan bara of góðir í lokin. Þeir eru með þessa stærð og orkan var kannski farin hjá okkur að geta barist við þá," sagði Logi. „Við börðumst við þá í 41 mínútu en svo var þetta bara of erfitt," sagði Logi. Logi og Jakob komu saman með 38 stig af bekknum og sá til þess að íslenski bekkurinn vann þann tyrkneska 44-33. „Við höfum verið byrjunarliðsmenn í þessu liði í mörg ár og tökum því bara þegar við komum inná og reynum að hjálpa liðinu eins og við getum. Við höfum gert það alltaf og gerðum það í dag," sagði Logi. Logi hefur spilað marga rosalega leiki á ferlinum en í hvaða sæti er þessi leikur hjá honum? „Þessi er ábyggilega í topp þremur á ferlinum. Þess vegna vildi maður vilja vinna hann en svona er þetta," sagði Logi sem gat ekki falið þreytuna eftir fimmta leikinn á sex dögum. „Núna fer ég og hvíli mig aðeins enda laskaður. Ætli ég hvíli mig ekki tvær til þrjár vikur enda þarf ég að ná mér af meiðslum og svona," sagði Logi sem vill ekki gefa neitt strax út um framhaldið. „Ég ætla að bíða og sjá hvaða lið fara með okkur í undankeppnina næst. Þetta er svo gaman að mig langar að prófa þetta aftur. Ég held að ég sé ekkert hættur alveg strax," sagði Logi að lokum.
EM 2015 í Berlín Tengdar fréttir Umfjöllun, myndir og viðtöl: Tyrkland - Ísland 111-102 | Mögnuð frammistaða en tap í framlengingu Ísland var ótrúlega nálægt sínum fyrsta sigri á stórmóti í fimmta og síðasta leik sínum á Evrópumótinu í Berlín en íslensku strákarnir enduðu eftirminnilegt Evrópumót með níu stiga tapi á móti Tyrkjum í kvöld, 111-102. 10. september 2015 21:00 Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti „Við vorum bara klaufar“ Handbolti Ótrúlegur átta marka einleikur tryggði HK stig Handbolti Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Kristinn: Við vorum geggjaðir Uppgjörið: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Lögmál leiksins: „Leifur, ertu með glósur?“ Dwayne Lautier á leið í aðgerð og verður frá í 6-8 vikur Sneri aftur í landsliðið í fyrsta sinn eftir að hafa misst nýrað Kallaði dómarann tík og rúmlega það LaMelo Ball í 50-stiga klúbbinn Sjá meira
Umfjöllun, myndir og viðtöl: Tyrkland - Ísland 111-102 | Mögnuð frammistaða en tap í framlengingu Ísland var ótrúlega nálægt sínum fyrsta sigri á stórmóti í fimmta og síðasta leik sínum á Evrópumótinu í Berlín en íslensku strákarnir enduðu eftirminnilegt Evrópumót með níu stiga tapi á móti Tyrkjum í kvöld, 111-102. 10. september 2015 21:00