Umfjöllun: Skotland - Ísland 0-4 | Ísland með annan fótinn á EM Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. júní 2016 19:45 Harpa Þorsteinsdóttir hefur skorað sex mörk í undankeppninni. mynd/hilmar þór/ksí Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið í lokakeppni EM eftir stórsigur, 0-4, á Skotum í Falkirk í kvöld. Þarna mættust bestu lið riðilsins og þau voru bæði ósigruð. Eftir þennan leik er aðeins Ísland ósigrað og ekki heldur búið að fá á sig mark. Stelpunum dugar sigur gegn Makedóníu á þriðjudag til að gulltryggja EM-sætið. Makedónía er stigalaust í riðlinum og Ísland vann leikinn gegn þeim ytra, 0-4. Íslensku stelpurnar mættu gríðarlega ákveðnar til leiks og tóku völdin á vellinum strax í upphafi. Á 9. mínútu leiksins komst Ísland yfir. Hallbera Guðný Gísladóttir átti aukaspyrnu utan af kanti sem sigldi í gegnum allan pakkann í teignum og endaði í fjærhorninu. Okkar stúlkur efldust við markið og héldu áfram að sækja. Þær komust oft í ákjósanlegur stöður en lykilsendingar voru að klikka. Einfaldar sendingar inn fyrir vörn þegar komið var gott hlaup. Skotar gerðu sig einnig seka um slæm mistök er þær töpuðu boltanum fyrir framan eigið mark. Fanndís hefði getað refsað en skotið var ekki nógu gott. Sóknarþungi Skota var enginn og liðið átti ekki skot að marki Íslands í fyrri hálfleik. Er þær nálguðust teiginn þá var Glódís Perla Viggósdóttir mætt og hrifsaði til sín alla bolta. Hún kom bolta einnig vel í leik. Miklir yfirburðir hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik en munurinn aðeins eitt mark. Síðari hálfleikur byrjaði með látum og mínúta var liðin af hálfleiknum er Anna Björk fékk langbesta færi leiksins. Frír skalli um metra frá marki en Anna hitti ekki markið. Hrikalega illa farið með frábært færi. Skotum óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Læddist að manni sá grunur að íslenska liðinu myndi hefnast fyrir að nýta ekki færin sín í leiknum. Á 61. mínútu voru Skotar mjög nálægt því að jafna leikinn. Vantaði eitt skónúmer upp á að framherji þeirra skoraði. Það vakti stelpurnar. Aðeins mínútu síðar var staðan nefnilega orðin 2-0 fyrir Ísland. Hólmfríður með sendingu í miðjan teiginn þar sem Harpa skallaði boltann af krafti í netið. Aðeins þremur mínútum síðar kláraði íslenska liðið leikinn. Hallbera með hornspyrnu sem varmaðurinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skallaði inn fyrir marklínuna. Frábærlega gert. Þriðja markið á sjö mínútna kafla kom svo. Aftur var það skallamark og að þessu sinni var komið að Margréti Láru að stanga boltann í netið eftir sendingu Hörpu. Geggjaður sjö mínútna kafli sem gjörsamlega slátraði þessum leik. Leikur íslenska liðsins í kvöld var í einu orði sgt frábær. Liðið var gríðarlega vel skipulagt, gaf nánast engin færi á sér allan leikinn. Okkar stelpur voru sterkari, fljótari og miklu grimmari í alla bolta. Það var klassamunur á liðunum í þessum uppgjörsleik toppliðanna. Glódís Perla var besti maður íslenska liðsins en allar stelpurnar léku vel. Það var klassi, yfirvegun og öryggi yfir öllum aðgerðum Glódísar. Frábær og verður bara betri og betri. Ef að líkum lætur verður EM-hátíð í Dalnum eftir helgi og vonandi að fólk fjölmenni. EM 2017 í Hollandi Mest lesið Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims Handbolti Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Jenas missir annað starf Fótbolti Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Bein útsending: Höttur - KR | Höttur frumsýnir tvo nýja leikmenn Körfubolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Landsliðskonurnar okkar hrifnar af IceGuys Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Sjá meira
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið í lokakeppni EM eftir stórsigur, 0-4, á Skotum í Falkirk í kvöld. Þarna mættust bestu lið riðilsins og þau voru bæði ósigruð. Eftir þennan leik er aðeins Ísland ósigrað og ekki heldur búið að fá á sig mark. Stelpunum dugar sigur gegn Makedóníu á þriðjudag til að gulltryggja EM-sætið. Makedónía er stigalaust í riðlinum og Ísland vann leikinn gegn þeim ytra, 0-4. Íslensku stelpurnar mættu gríðarlega ákveðnar til leiks og tóku völdin á vellinum strax í upphafi. Á 9. mínútu leiksins komst Ísland yfir. Hallbera Guðný Gísladóttir átti aukaspyrnu utan af kanti sem sigldi í gegnum allan pakkann í teignum og endaði í fjærhorninu. Okkar stúlkur efldust við markið og héldu áfram að sækja. Þær komust oft í ákjósanlegur stöður en lykilsendingar voru að klikka. Einfaldar sendingar inn fyrir vörn þegar komið var gott hlaup. Skotar gerðu sig einnig seka um slæm mistök er þær töpuðu boltanum fyrir framan eigið mark. Fanndís hefði getað refsað en skotið var ekki nógu gott. Sóknarþungi Skota var enginn og liðið átti ekki skot að marki Íslands í fyrri hálfleik. Er þær nálguðust teiginn þá var Glódís Perla Viggósdóttir mætt og hrifsaði til sín alla bolta. Hún kom bolta einnig vel í leik. Miklir yfirburðir hjá íslenska liðinu í fyrri hálfleik en munurinn aðeins eitt mark. Síðari hálfleikur byrjaði með látum og mínúta var liðin af hálfleiknum er Anna Björk fékk langbesta færi leiksins. Frír skalli um metra frá marki en Anna hitti ekki markið. Hrikalega illa farið með frábært færi. Skotum óx ásmegin eftir því sem leið á hálfleikinn. Læddist að manni sá grunur að íslenska liðinu myndi hefnast fyrir að nýta ekki færin sín í leiknum. Á 61. mínútu voru Skotar mjög nálægt því að jafna leikinn. Vantaði eitt skónúmer upp á að framherji þeirra skoraði. Það vakti stelpurnar. Aðeins mínútu síðar var staðan nefnilega orðin 2-0 fyrir Ísland. Hólmfríður með sendingu í miðjan teiginn þar sem Harpa skallaði boltann af krafti í netið. Aðeins þremur mínútum síðar kláraði íslenska liðið leikinn. Hallbera með hornspyrnu sem varmaðurinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skallaði inn fyrir marklínuna. Frábærlega gert. Þriðja markið á sjö mínútna kafla kom svo. Aftur var það skallamark og að þessu sinni var komið að Margréti Láru að stanga boltann í netið eftir sendingu Hörpu. Geggjaður sjö mínútna kafli sem gjörsamlega slátraði þessum leik. Leikur íslenska liðsins í kvöld var í einu orði sgt frábær. Liðið var gríðarlega vel skipulagt, gaf nánast engin færi á sér allan leikinn. Okkar stelpur voru sterkari, fljótari og miklu grimmari í alla bolta. Það var klassamunur á liðunum í þessum uppgjörsleik toppliðanna. Glódís Perla var besti maður íslenska liðsins en allar stelpurnar léku vel. Það var klassi, yfirvegun og öryggi yfir öllum aðgerðum Glódísar. Frábær og verður bara betri og betri. Ef að líkum lætur verður EM-hátíð í Dalnum eftir helgi og vonandi að fólk fjölmenni.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Uppgjörið: Holland - Ísland 27-25 | Hetjuleg frammistaða gegn einu besta liði heims Handbolti Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Jenas missir annað starf Fótbolti Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Bein útsending: Höttur - KR | Höttur frumsýnir tvo nýja leikmenn Körfubolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Fleiri fréttir Sterkt lið Íslands gegn Kanada í kvöld Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Landsliðskonurnar okkar hrifnar af IceGuys Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Sjá meira