Strákarnir byrja á sigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2016 19:30 Íslenska U-20 ára liðið sem tekur þátt á EM. vísir/stefán Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann eins marks sigur, 32-31, á Rússum í fyrsta leik sínum í B-riðli á EM í Danmörku í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en undir lokin. Þegar þrjár mínútur voru eftir var Ísland í góðri stöðu, þremur mörkum yfir, 31-28. Rússar hleyptu spennu í leikinn með því að skora tvö mörk í röð en Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 32. mark Íslendinga úr hægra horninu og tryggði sigurinn. Íslenska liðið byrjaði illa en vann sig vel inn í leikinn og leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 15-13. Ísland var með undirtökin í seinni hálfleik en náði aldrei að hrista rússneska liðið af sér. Íslensku strákunum tókst þó að landa sigrinum á endanum, ekki síst vegna góðrar innkomu Einars Baldvins Baldvinssonar í markið. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk og var valinn besti maður íslenska liðsins af mótshöldurum. Óðinn Þór skoraði sjö mörk og Elvar Örn Jónsson átti einnig skínandi leik, bæði í horninu og fyrir utan, og skoraði sex mörk. Ísland er með tvö stig í B-riðli líkt og Spánn sem vann nauman sigur á Slóveníu, 21-20, fyrr í dag.Markaskorarar Íslands:Ómar Ingi Magnússon 8, Óðinn Þór Ríkharðsson 7, Elvar Örn Jónsson 6, Aron Dagur Pálsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Arnar Freyr Arnarsson 2, Birkir Benediktsson 1, Hákon Daði Styrmisson 1, Ýmir Örn Gíslason 1. Handbolti Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Sjá meira
Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann eins marks sigur, 32-31, á Rússum í fyrsta leik sínum í B-riðli á EM í Danmörku í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en undir lokin. Þegar þrjár mínútur voru eftir var Ísland í góðri stöðu, þremur mörkum yfir, 31-28. Rússar hleyptu spennu í leikinn með því að skora tvö mörk í röð en Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 32. mark Íslendinga úr hægra horninu og tryggði sigurinn. Íslenska liðið byrjaði illa en vann sig vel inn í leikinn og leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 15-13. Ísland var með undirtökin í seinni hálfleik en náði aldrei að hrista rússneska liðið af sér. Íslensku strákunum tókst þó að landa sigrinum á endanum, ekki síst vegna góðrar innkomu Einars Baldvins Baldvinssonar í markið. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk og var valinn besti maður íslenska liðsins af mótshöldurum. Óðinn Þór skoraði sjö mörk og Elvar Örn Jónsson átti einnig skínandi leik, bæði í horninu og fyrir utan, og skoraði sex mörk. Ísland er með tvö stig í B-riðli líkt og Spánn sem vann nauman sigur á Slóveníu, 21-20, fyrr í dag.Markaskorarar Íslands:Ómar Ingi Magnússon 8, Óðinn Þór Ríkharðsson 7, Elvar Örn Jónsson 6, Aron Dagur Pálsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Arnar Freyr Arnarsson 2, Birkir Benediktsson 1, Hákon Daði Styrmisson 1, Ýmir Örn Gíslason 1.
Handbolti Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Fleiri fréttir „Maður finnur aðeins fyrir fiðrildunum“ Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Sjá meira