Fátt kemur í veg fyrir sigur Clinton Guðsteinn Bjarnason skrifar 22. október 2016 07:00 Dolan kardináli ásamt Hillary Clinton, Donald Trump og Melaniu, eiginkonu Trumps, á góðgerðarkvöldi kaþólsku kirkjunnar í New York, þar sem brandararnir fuku. Vísir/AFP Líkurnar á sigri Hillary Clinton í forsetakosningum mælast nú um eða yfir 90 prósent, samkvæmt þeim fjölmiðlum, fyrirtækjum og stofnunum sem grannt fylgjast með skoðanakönnunum. Bilið á milli hennar og Donalds Trump hefur breikkað jafnt og þétt síðustu vikurnar. Trump hefur ekki tekist að bæta stöðu sína í þrennum sjónvarpskappræðum sem nú er lokið. Þvert á móti hefur staða hans versnað. Samkvæmt samantekt kosningavefsins fivethirtyeight.com mældist Clinton með 1,5 prósenta forskot þegar fyrstu kappræðurnar voru haldnar þann 26. september síðastliðinn. Forskot hennar var komið upp í 5,6 prósent þegar kappræðum númer tvö var sjónvarpað þann 9. október. Og þegar þriðju og síðustu kappræðurnar voru haldnar nú á miðvikudagskvöldið var, þá var forskot hennar orðið 6,6 prósent. Kappræðurnar hafa allar verið hatrammar, þar sem forsetaefnin hafa skotið fast hvort á annað. Trump hefur þó jafnan verið orðljótari og nokkrum sinnum misst stjórn á sér, sem greinilega hefur ekki hjálpað honum. Á fimmtudagskvöldið, daginn eftir síðustu kappræðurnar, komu þau síðan saman á góðgerðarkvöldi kaþólsku kirkjunnar í New York og gerðu óspart grín að hvort öðru og sjálfu sér. Löng hefð er fyrir uppákomu af þessu tagi en brandararnir þóttu misvel heppnaðir að þessu sinni. Aðeins tvær og hálf vika er nú til kosninga, sem verða haldnar þriðjudaginn 8. nóvember. Afar sjaldgæft er að fylgi breytist mikið til kosninga þegar svona langt er komið. Til þess að svo yrði þá þyrfti eitthvað óvænt að koma til. Allt bendir því til þess að Trump nái ekki einu sinni 200 kjörmönnum af 538 á kjörmannasamkomunum í desember þegar forseti verður formlega valinn. Fyrirkomulag forsetakosninga í Bandaríkjunum er þannig að kjósendur í hverju hinna 50 ríkja Bandaríkjanna kjósa svonefnda kjörmenn, sem koma síðan saman og velja formlega forseta fyrir hönd kjósenda.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Baulað á Trump á góðgerðarkvöldverði Trump og Clinton mættu á góðgerðakvöldverð í New York sem átti að einkennast af léttu gríni. 21. október 2016 10:24 Obama segir ummæli Trump hættuleg Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það hættulegt af Donald Trump forsetaframbjóðanda að neita að gefa það út fyrirfram að hann muni una niðurstöðum forsetakosninganna í nóvember. 21. október 2016 07:49 Trump segist munu viðurkenna niðurstöðuna ef hann sigrar Donald Trump hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa neitað að greina frá því hvort hann muni viðurkenna niðurstöður kosninganna. 20. október 2016 17:28 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Kennaraverkfalli frestað Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Fleiri fréttir Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Sjá meira
Líkurnar á sigri Hillary Clinton í forsetakosningum mælast nú um eða yfir 90 prósent, samkvæmt þeim fjölmiðlum, fyrirtækjum og stofnunum sem grannt fylgjast með skoðanakönnunum. Bilið á milli hennar og Donalds Trump hefur breikkað jafnt og þétt síðustu vikurnar. Trump hefur ekki tekist að bæta stöðu sína í þrennum sjónvarpskappræðum sem nú er lokið. Þvert á móti hefur staða hans versnað. Samkvæmt samantekt kosningavefsins fivethirtyeight.com mældist Clinton með 1,5 prósenta forskot þegar fyrstu kappræðurnar voru haldnar þann 26. september síðastliðinn. Forskot hennar var komið upp í 5,6 prósent þegar kappræðum númer tvö var sjónvarpað þann 9. október. Og þegar þriðju og síðustu kappræðurnar voru haldnar nú á miðvikudagskvöldið var, þá var forskot hennar orðið 6,6 prósent. Kappræðurnar hafa allar verið hatrammar, þar sem forsetaefnin hafa skotið fast hvort á annað. Trump hefur þó jafnan verið orðljótari og nokkrum sinnum misst stjórn á sér, sem greinilega hefur ekki hjálpað honum. Á fimmtudagskvöldið, daginn eftir síðustu kappræðurnar, komu þau síðan saman á góðgerðarkvöldi kaþólsku kirkjunnar í New York og gerðu óspart grín að hvort öðru og sjálfu sér. Löng hefð er fyrir uppákomu af þessu tagi en brandararnir þóttu misvel heppnaðir að þessu sinni. Aðeins tvær og hálf vika er nú til kosninga, sem verða haldnar þriðjudaginn 8. nóvember. Afar sjaldgæft er að fylgi breytist mikið til kosninga þegar svona langt er komið. Til þess að svo yrði þá þyrfti eitthvað óvænt að koma til. Allt bendir því til þess að Trump nái ekki einu sinni 200 kjörmönnum af 538 á kjörmannasamkomunum í desember þegar forseti verður formlega valinn. Fyrirkomulag forsetakosninga í Bandaríkjunum er þannig að kjósendur í hverju hinna 50 ríkja Bandaríkjanna kjósa svonefnda kjörmenn, sem koma síðan saman og velja formlega forseta fyrir hönd kjósenda.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Tengdar fréttir Baulað á Trump á góðgerðarkvöldverði Trump og Clinton mættu á góðgerðakvöldverð í New York sem átti að einkennast af léttu gríni. 21. október 2016 10:24 Obama segir ummæli Trump hættuleg Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það hættulegt af Donald Trump forsetaframbjóðanda að neita að gefa það út fyrirfram að hann muni una niðurstöðum forsetakosninganna í nóvember. 21. október 2016 07:49 Trump segist munu viðurkenna niðurstöðuna ef hann sigrar Donald Trump hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa neitað að greina frá því hvort hann muni viðurkenna niðurstöður kosninganna. 20. október 2016 17:28 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Kennaraverkfalli frestað Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Fleiri fréttir Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Sjá meira
Baulað á Trump á góðgerðarkvöldverði Trump og Clinton mættu á góðgerðakvöldverð í New York sem átti að einkennast af léttu gríni. 21. október 2016 10:24
Obama segir ummæli Trump hættuleg Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það hættulegt af Donald Trump forsetaframbjóðanda að neita að gefa það út fyrirfram að hann muni una niðurstöðum forsetakosninganna í nóvember. 21. október 2016 07:49
Trump segist munu viðurkenna niðurstöðuna ef hann sigrar Donald Trump hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa neitað að greina frá því hvort hann muni viðurkenna niðurstöður kosninganna. 20. október 2016 17:28