Píratar tilbúnir til þess að styðja minnihlutastjórn VG, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. október 2016 13:03 Umboðsmenn Pírata, þau Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarthy og Einar Brynjólfsson, áttu um 45 mínútna langan fund með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessastöðum í dag. Eftir fundinn sögðu þau fjölmiðlamönnum að þau væru tilbúin til þess að styðja minnihlutastjórn þriggja flokka, það er Viðreisnar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar. Birgitta sagði í samtali við blaðamenn að úrslit kosninganna bæru með sér að verið væri að kalla eftir meiri breidd í stjórnskipan landsins en áður hefur þekkst. Því hafi þau borið upp hugmynd Pírata, sem rædd var á þingflokksfundi þeirra í gærkvöldi, að flokkurinn myndi styðja minnihlutastjórn Viðreisnar, VG og Bjartrar framtíðar. Það væri þó ekki nægur þingstyrkur fyrir meirihluta og því þyrfti Samfylkingin einnig að verja stjórnina falli eða taka þátt í henni. Aðspurð um hvers vegna þau gerðu ekki kröfu um að sitja í ríkisstjórn sögðu þau að það hefði fyrst og fremst með flækjustigið að gera. Það væri flókið ef að formenn fimm flokka myndu eiga sæti við ríkisstjórnarborðið og að þetta útspil þeirra væri til þess fallið að skapa frið og stöðugleika. „Við erum að þessu til að ná fram breytingum í samfélaginu en ekki til þess að ná völdum,“ sagði Smári. Þá voru þau spurð hvernig forsetinn hefði tekið þessu. „Hann hljómaði opinn fyrir þessu og ætlaði að ræða þetta við aðra en svo verðum við bara að sjá til hvað kemur út úr þessu,“ sagði Smári. Birgitta sagði jafnframt að Píratar væru með þessu útspili sínu ekki að segja að þau vilji ekki vera í fimm flokka stjórn, þau vildu einfaldlega leggja þetta til málanna ef það gæti orðið til þess að leysa einhverja hnúta. Kosningar 2016 Tengdar fréttir Bjarni sagði Guðna að hann teldi Sjálfstæðisflokkinn geta verið kjölfestuna í næstu stjórn Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn frá Bessastöðum en hann og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands funduðu í um hálftíma núna í morgun um næstu skref varðandi myndun nýrrar ríkisstjórnar. 31. október 2016 10:54 Katrín sagði Guðna að fyrsti valkostur Vinstri grænna væri fimm flokka stjórn til vinstri Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna átti um hálftíma langan fund með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessastöðum núna á milli klukkan ellefu og hálftólf. 31. október 2016 11:48 Mest lesið Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Innlent „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Innlent Kanónurnar sem eru að hverfa Innlent „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Innlent Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Innlent Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Innlent Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða „Þannig fór um sjóferð þá“ Framsókn: Það verður alltaf sviðasulta í kæliborðinu Boltinn kominn til þeirra sem unnu kosningarnar Sjá meira
Umboðsmenn Pírata, þau Birgitta Jónsdóttir, Smári McCarthy og Einar Brynjólfsson, áttu um 45 mínútna langan fund með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessastöðum í dag. Eftir fundinn sögðu þau fjölmiðlamönnum að þau væru tilbúin til þess að styðja minnihlutastjórn þriggja flokka, það er Viðreisnar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar. Birgitta sagði í samtali við blaðamenn að úrslit kosninganna bæru með sér að verið væri að kalla eftir meiri breidd í stjórnskipan landsins en áður hefur þekkst. Því hafi þau borið upp hugmynd Pírata, sem rædd var á þingflokksfundi þeirra í gærkvöldi, að flokkurinn myndi styðja minnihlutastjórn Viðreisnar, VG og Bjartrar framtíðar. Það væri þó ekki nægur þingstyrkur fyrir meirihluta og því þyrfti Samfylkingin einnig að verja stjórnina falli eða taka þátt í henni. Aðspurð um hvers vegna þau gerðu ekki kröfu um að sitja í ríkisstjórn sögðu þau að það hefði fyrst og fremst með flækjustigið að gera. Það væri flókið ef að formenn fimm flokka myndu eiga sæti við ríkisstjórnarborðið og að þetta útspil þeirra væri til þess fallið að skapa frið og stöðugleika. „Við erum að þessu til að ná fram breytingum í samfélaginu en ekki til þess að ná völdum,“ sagði Smári. Þá voru þau spurð hvernig forsetinn hefði tekið þessu. „Hann hljómaði opinn fyrir þessu og ætlaði að ræða þetta við aðra en svo verðum við bara að sjá til hvað kemur út úr þessu,“ sagði Smári. Birgitta sagði jafnframt að Píratar væru með þessu útspili sínu ekki að segja að þau vilji ekki vera í fimm flokka stjórn, þau vildu einfaldlega leggja þetta til málanna ef það gæti orðið til þess að leysa einhverja hnúta.
Kosningar 2016 Tengdar fréttir Bjarni sagði Guðna að hann teldi Sjálfstæðisflokkinn geta verið kjölfestuna í næstu stjórn Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn frá Bessastöðum en hann og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands funduðu í um hálftíma núna í morgun um næstu skref varðandi myndun nýrrar ríkisstjórnar. 31. október 2016 10:54 Katrín sagði Guðna að fyrsti valkostur Vinstri grænna væri fimm flokka stjórn til vinstri Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna átti um hálftíma langan fund með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessastöðum núna á milli klukkan ellefu og hálftólf. 31. október 2016 11:48 Mest lesið Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki Innlent Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Innlent „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Innlent Kanónurnar sem eru að hverfa Innlent „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Innlent Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Innlent „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Innlent Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Innlent Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Innlent Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins Innlent Fleiri fréttir „Ég ætla að standa mig betur“ „Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð „Vinstri vængurinn er í raun og veru úti“ „En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ „Ekkert sérstök upplifun“ og „ákveðinn léttir“ að missa þingsæti Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Flokkssystkin ætla samferða í vinnuna og Vinstri græn syrgja Formenn gera upp kosningaúrslitin í beinni á Stöð 2 Kveikt í póstkössum og blaðagámi Embætti og stöður sem losna eftir kosningar Óviss með framtíð sína innan Pírata Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Brynjar hvetur flokk sinn til að fara í naflaskoðun Eldur í íbúð í Vesturbergi VG rak ekki kosningabaráttuna á yfirdrætti 31 snýr ekki aftur á þing Halla forseti hittir alla formennina á morgun „Langt frá því sem við í Vinstri grænum vonuðum“ Aldursforseti þingsins er grjóthörð í horn að taka Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða „Þannig fór um sjóferð þá“ Framsókn: Það verður alltaf sviðasulta í kæliborðinu Boltinn kominn til þeirra sem unnu kosningarnar Sjá meira
Bjarni sagði Guðna að hann teldi Sjálfstæðisflokkinn geta verið kjölfestuna í næstu stjórn Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn frá Bessastöðum en hann og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands funduðu í um hálftíma núna í morgun um næstu skref varðandi myndun nýrrar ríkisstjórnar. 31. október 2016 10:54
Katrín sagði Guðna að fyrsti valkostur Vinstri grænna væri fimm flokka stjórn til vinstri Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna átti um hálftíma langan fund með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands á Bessastöðum núna á milli klukkan ellefu og hálftólf. 31. október 2016 11:48