Olísdeildarspáin 2019/20: Íslandsmeistararnir búnir að missa bæði þjálfarann og besta leikmanninn Henry Birgir Gunnarsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Óskar Ófeigur Jónsson skrifa 2. september 2019 10:00 Hergeir Grímsson lyfti Íslandsmeistarabikarnum síðasta vor. Vísir/Vilhelm Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins sex daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að áttunda liðinu í spá okkar.Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20: 1. sæti 2. sæti 3. sæti 4. sæti - (3. september)5. sæti - Selfoss6. sæti - Afturelding7. sæti - Stjarnan8. sæti - ÍR9. sæti - KA10. sæti - HK11. sæti - Fram12. sæti - FjölnirSelfoss tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn 2019 á heimavelli.Vísir/VilhelmÍþróttadeild spáir því að Íslandsmeistarar Selfoss endi í fimmta sæti deildarinnar. Selfyssingar enduðu í 2. sæti Olís-deildarinnar á síðasta tímabili en unnu átta af níu leikjum sínum í úrslitakeppninni. Selfoss tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með stórsigri á Haukum, 35-25, á heimavelli. Áralangt uppbyggingarstarf bar þá loks ávöxt. Nánast allir leikmenn í Íslandsmeistaraliði Selfoss eru uppaldir hjá félaginu. Selfoss missti þjálfara sinn, Patrek Jóhannesson, og besta leikmann deildarinnar, Elvar Örn Jónsson, til Skjern. Hannes Jón Jónsson var búinn að semja við Selfoss en hætti við. Þjálfaraleitin gekk illa og eftir að hafa talað við nánast alla þjálfara landsins og suma oftar en einu sinni réðu Selfyssingar Grím Hergeirsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins undanfarin ár. Skarð Elvars hefur ekki verið fyllt enda vaxa sambærilegir leikmenn ekki á trjánum. Þá sleit varnarmaðurinn öflugi, Sverrir Pálsson, krossband í hné og verður ekkert með í vetur. Selfoss stefnir áfram hátt en það verður þrautinni þyngri að verja Íslandsmeistaratitilinn.Komnir/Farnir:Komnir: Einar Baldvin Baldvinsson frá Val Magnús Öder Einarsson frá GróttuFarnir: Elvar Örn Jónsson til Skjern Håndbold Pawel Kiepulski til Wybrzeze GdanskSverrir Pálsson, sleit krossbandHaukur Þrastarson.Vísir/BáraHBStatz tölurnar frá síðasta tímabiliSóknarleikur Selfoss 2018/19 í tölum HBStatz Mörk skoruð í leik - 1. sæti (28,6) Skotnýting - 3. sæti (60,2%) Vítanýting - 12. sæti (64,4%) Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (59) Stoðsendingar í leik - 3. sæti (11,0) Tapaðir boltar í leik - 3. sæti (8,0)Vörn og markvarsla Selfoss 2018/19 í tölum HBStatz Mörk fengin á sig í leik - 4. sæti (26,3) Hlutfallsmarkvarsla - 9. sæti (30,1%) Varin víti - 11. sæti (11) Stolnir boltar - 1. sæti (90) Varin skot í vörn - 8. sæti (43) Lögleg stopp í leik - 1. sæti (22,2)Árni Steinn Steinþórsson.Vísir/VilhelmLíklegt byrjunarlið Selfoss í vetur Markvörður - Einar Baldvin Baldvinsson - 22 ára Vinstra horn - Hergeir Grímsson - 22 ára Vinstri skytta - Haukur Þrastarson - 18 ára Miðja - Nökkvi Dan Elliðason - 22 ára Hægri skytta - Árni Steinn Steinþórsson - 28 ára Hægra horn - Alexander Már Egan - 22 ára Lína - Atli Ævar Ingólfsson - 31 árs Varnarmaður - Tryggvi Þórisson - 17 áraTryggvi Þórisson er stór og stæðilegur línumaður.vísir/ernirFylgist með Selfoss hefur framleitt handboltamenn á færibandi undanfarin ár. Tryggvi Þórisson (f. 2002) gæti orðið næstur til að stökkva fram á sjónarsviðið. Tryggvi er hávaxinn línumaður sem gæti fengið hlutverk í vörn Selfoss eftir að Sverrir heltist úr lestinni.Grímur Hergeirsson með Íslandsmeistarabikarinn.Vísir/VilhelmÞjálfarinn Grímur Hergeirsson hefur verið aðstoðarþjálfari Selfoss undanfarin ár en er núna við stýrið á skútunni. Þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Þrátt fyrir að vera elsti þjálfari deildarinnar er Grímur sá reynsluminnsti þegar kemur að því að vera aðalþjálfari. Grímur lék með Selfossi á árum áður og einnig í Noregi. Sonur hans, Hergeir, er fyrirliði Selfoss og bróður hans, Þóri, þekkja allir.Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: Selfoss Hvað segir sérfræðingurinn?„Það er erfitt að dæma Selfoss af þessum leikjum sem ég hef séð með þeim á undirbúningstímabilinu. Það hefur vantað bæði Hauk og Árna Stein inn í liðið en maður sér að það eru ákveðnar áherslubreytingar með nýjum þjálfara. Þjálfarinn þarf að stíga í mjög stór sport nú þegar Patrekur (Jóhannesson) er farinn,“ segir Guðlaugur Arnarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Selfoss-liðið. „Það verður virkilega fróðlegt að sjá það hvernig þetta Selfosslið þróast í vetur. Ég reikna samt með með svolítið erfiðri byrjun hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.Patrekur Jóhannesson gerði frábæra hluti mðe Selfossliðið.Vísir/VilhelmHversu langt síðan að Selfoss ... ... varð Íslandsmeistari: 0 ár (2019) ... varð deildarmeistari: Aldrei ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2019) ... varð bikarmeistari: Aldrei ... komst í bikarúrslit: 26 ár (1993) ... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019) ... komst í undanúrslit: 0 ár (2019) ... komst í lokaúrslit: 0 ár (2019) ... féll úr deildinni: 8 ár (2011) ... kom upp í deildina: 3 ár (2016)Gengi Selfoss í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil: 2018-19 2. sæti í deildinni 2017-18 2. sæti í deildinni 2016-17 5. sæti í deildinni 2015-16 B-deild (3. sæti) 2014-15 B-deild (4. sæti) 2013-14 B-deild (3. sæti) 2012-13 B-deild (5. sæti) 2011-12 B-deild (4. sæti)Gengi Selfoss í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil: 2018-19 Íslandsmeistari 2017-18 Undanúrslit 2016-17 Átta liða úrslit 2015-16 B-deild 2014-15 B-deild 2013-14 B-deild 2012-13 B-deild 2011-12 B-deildAtli Ævar Ingólfsson með bikarinn.Vísir/VilhelmAð lokum Hvernig fylgir maður eftir fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins? Því fá Selfyssingar að svara í vetur. Hamra þeir járnið meðan það er heitt eða reynist bikarþynnkan sem erfið. Elvar hefur verið besti leikmaður deildarinnar undanfarin tvö ár, frábær á báðum endum vallarins, og skarð hans er ekki hægt að fylla. Ekki hjálpar til að missa Sverri út. Selfyssingar eru því orðnir mjög þunnskipaðir í miðri vörninni. Varnarleikurinn er því talsvert stórt spurningarmerki fyrir tímabilið. Selfoss býr svo vel að eiga einn efnilegasta leikmann heims, Hauk Þrastarson, í sínum röðum og hann fær enn meiri ábyrgð við brotthvarf Elvars og þarf að taka oftar af skarið. Nökkvi Dan Elliðason reyndist Selfossi gríðarlega mikilvægur í fyrra og hann verður í enn stærra hlutverki í vetur. Einar Sverrisson er væntanlegur eftir áramót og svo þurfa Selfyssingar að krossleggja fingur og vonast til að öxlin á Árna Steini Steinþórssyni haldi. Selfyssingar verða góðir í vetur en verða þeir nógu góðir til að berjast um titla? Olís-deild karla Tengdar fréttir Olísdeildarspáin 2019/20: Meiri óvissa hjá Aftureldingu en síðustu ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 6. sæti Olís deildar karla í vetur. 30. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Herslumuninn hefur vantað hjá ÍR-ingum undanfarin ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍR 8. sæti Olís deildar karla í vetur. 28. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: KA með nánast sama lið og endar í sama sæti Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 9. sæti Olís deildar karla í vetur. 27. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: HK stendur á tímamótum og heldur sér uppi Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 10. sæti Olís deildar karla í vetur. 26. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Stjarnan vill meira en meðalmennskuna síðustu ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 7. sæti Olís deildar karla í vetur. 29. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Framarar hafa daðrað við fallið en nú er komið að því Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram 11. sæti Olís deildar karla í vetur. 23. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Fjölnisliðið stoppar stutt á meðal þeirra bestu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fjölni 12. sæti Olís deildar karla í vetur. 22. ágúst 2019 10:00 Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti Fleiri fréttir Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Sjá meira
Handboltatímabilið 2019 til 2020 hefst eftir aðeins sex daga. Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í Olís deildina í handbolta með því að birta spá okkar um lokastöðuna í deildinni. Olís deild karla hefst 8. september næstkomandi og nú er komið að áttunda liðinu í spá okkar.Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20: 1. sæti 2. sæti 3. sæti 4. sæti - (3. september)5. sæti - Selfoss6. sæti - Afturelding7. sæti - Stjarnan8. sæti - ÍR9. sæti - KA10. sæti - HK11. sæti - Fram12. sæti - FjölnirSelfoss tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn 2019 á heimavelli.Vísir/VilhelmÍþróttadeild spáir því að Íslandsmeistarar Selfoss endi í fimmta sæti deildarinnar. Selfyssingar enduðu í 2. sæti Olís-deildarinnar á síðasta tímabili en unnu átta af níu leikjum sínum í úrslitakeppninni. Selfoss tryggði sér fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins með stórsigri á Haukum, 35-25, á heimavelli. Áralangt uppbyggingarstarf bar þá loks ávöxt. Nánast allir leikmenn í Íslandsmeistaraliði Selfoss eru uppaldir hjá félaginu. Selfoss missti þjálfara sinn, Patrek Jóhannesson, og besta leikmann deildarinnar, Elvar Örn Jónsson, til Skjern. Hannes Jón Jónsson var búinn að semja við Selfoss en hætti við. Þjálfaraleitin gekk illa og eftir að hafa talað við nánast alla þjálfara landsins og suma oftar en einu sinni réðu Selfyssingar Grím Hergeirsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins undanfarin ár. Skarð Elvars hefur ekki verið fyllt enda vaxa sambærilegir leikmenn ekki á trjánum. Þá sleit varnarmaðurinn öflugi, Sverrir Pálsson, krossband í hné og verður ekkert með í vetur. Selfoss stefnir áfram hátt en það verður þrautinni þyngri að verja Íslandsmeistaratitilinn.Komnir/Farnir:Komnir: Einar Baldvin Baldvinsson frá Val Magnús Öder Einarsson frá GróttuFarnir: Elvar Örn Jónsson til Skjern Håndbold Pawel Kiepulski til Wybrzeze GdanskSverrir Pálsson, sleit krossbandHaukur Þrastarson.Vísir/BáraHBStatz tölurnar frá síðasta tímabiliSóknarleikur Selfoss 2018/19 í tölum HBStatz Mörk skoruð í leik - 1. sæti (28,6) Skotnýting - 3. sæti (60,2%) Vítanýting - 12. sæti (64,4%) Hraðaupphlaupsmörk - 6. sæti (59) Stoðsendingar í leik - 3. sæti (11,0) Tapaðir boltar í leik - 3. sæti (8,0)Vörn og markvarsla Selfoss 2018/19 í tölum HBStatz Mörk fengin á sig í leik - 4. sæti (26,3) Hlutfallsmarkvarsla - 9. sæti (30,1%) Varin víti - 11. sæti (11) Stolnir boltar - 1. sæti (90) Varin skot í vörn - 8. sæti (43) Lögleg stopp í leik - 1. sæti (22,2)Árni Steinn Steinþórsson.Vísir/VilhelmLíklegt byrjunarlið Selfoss í vetur Markvörður - Einar Baldvin Baldvinsson - 22 ára Vinstra horn - Hergeir Grímsson - 22 ára Vinstri skytta - Haukur Þrastarson - 18 ára Miðja - Nökkvi Dan Elliðason - 22 ára Hægri skytta - Árni Steinn Steinþórsson - 28 ára Hægra horn - Alexander Már Egan - 22 ára Lína - Atli Ævar Ingólfsson - 31 árs Varnarmaður - Tryggvi Þórisson - 17 áraTryggvi Þórisson er stór og stæðilegur línumaður.vísir/ernirFylgist með Selfoss hefur framleitt handboltamenn á færibandi undanfarin ár. Tryggvi Þórisson (f. 2002) gæti orðið næstur til að stökkva fram á sjónarsviðið. Tryggvi er hávaxinn línumaður sem gæti fengið hlutverk í vörn Selfoss eftir að Sverrir heltist úr lestinni.Grímur Hergeirsson með Íslandsmeistarabikarinn.Vísir/VilhelmÞjálfarinn Grímur Hergeirsson hefur verið aðstoðarþjálfari Selfoss undanfarin ár en er núna við stýrið á skútunni. Þetta er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks. Þrátt fyrir að vera elsti þjálfari deildarinnar er Grímur sá reynsluminnsti þegar kemur að því að vera aðalþjálfari. Grímur lék með Selfossi á árum áður og einnig í Noregi. Sonur hans, Hergeir, er fyrirliði Selfoss og bróður hans, Þóri, þekkja allir.Klippa: Olísdeildarspá Stöð 2 Sport: Selfoss Hvað segir sérfræðingurinn?„Það er erfitt að dæma Selfoss af þessum leikjum sem ég hef séð með þeim á undirbúningstímabilinu. Það hefur vantað bæði Hauk og Árna Stein inn í liðið en maður sér að það eru ákveðnar áherslubreytingar með nýjum þjálfara. Þjálfarinn þarf að stíga í mjög stór sport nú þegar Patrekur (Jóhannesson) er farinn,“ segir Guðlaugur Arnarsson, sérfræðingur Stöðvar 2 Sports, um Selfoss-liðið. „Það verður virkilega fróðlegt að sjá það hvernig þetta Selfosslið þróast í vetur. Ég reikna samt með með svolítið erfiðri byrjun hjá þeim,“ sagði Guðlaugur.Patrekur Jóhannesson gerði frábæra hluti mðe Selfossliðið.Vísir/VilhelmHversu langt síðan að Selfoss ... ... varð Íslandsmeistari: 0 ár (2019) ... varð deildarmeistari: Aldrei ... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 0 ár (2019) ... varð bikarmeistari: Aldrei ... komst í bikarúrslit: 26 ár (1993) ... komst í úrslitakeppni: 0 ár (2019) ... komst í undanúrslit: 0 ár (2019) ... komst í lokaúrslit: 0 ár (2019) ... féll úr deildinni: 8 ár (2011) ... kom upp í deildina: 3 ár (2016)Gengi Selfoss í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil: 2018-19 2. sæti í deildinni 2017-18 2. sæti í deildinni 2016-17 5. sæti í deildinni 2015-16 B-deild (3. sæti) 2014-15 B-deild (4. sæti) 2013-14 B-deild (3. sæti) 2012-13 B-deild (5. sæti) 2011-12 B-deild (4. sæti)Gengi Selfoss í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil: 2018-19 Íslandsmeistari 2017-18 Undanúrslit 2016-17 Átta liða úrslit 2015-16 B-deild 2014-15 B-deild 2013-14 B-deild 2012-13 B-deild 2011-12 B-deildAtli Ævar Ingólfsson með bikarinn.Vísir/VilhelmAð lokum Hvernig fylgir maður eftir fyrsta Íslandsmeistaratitlinum í sögu félagsins? Því fá Selfyssingar að svara í vetur. Hamra þeir járnið meðan það er heitt eða reynist bikarþynnkan sem erfið. Elvar hefur verið besti leikmaður deildarinnar undanfarin tvö ár, frábær á báðum endum vallarins, og skarð hans er ekki hægt að fylla. Ekki hjálpar til að missa Sverri út. Selfyssingar eru því orðnir mjög þunnskipaðir í miðri vörninni. Varnarleikurinn er því talsvert stórt spurningarmerki fyrir tímabilið. Selfoss býr svo vel að eiga einn efnilegasta leikmann heims, Hauk Þrastarson, í sínum röðum og hann fær enn meiri ábyrgð við brotthvarf Elvars og þarf að taka oftar af skarið. Nökkvi Dan Elliðason reyndist Selfossi gríðarlega mikilvægur í fyrra og hann verður í enn stærra hlutverki í vetur. Einar Sverrisson er væntanlegur eftir áramót og svo þurfa Selfyssingar að krossleggja fingur og vonast til að öxlin á Árna Steini Steinþórssyni haldi. Selfyssingar verða góðir í vetur en verða þeir nógu góðir til að berjast um titla?
Olís-deild karla Tengdar fréttir Olísdeildarspáin 2019/20: Meiri óvissa hjá Aftureldingu en síðustu ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 6. sæti Olís deildar karla í vetur. 30. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Herslumuninn hefur vantað hjá ÍR-ingum undanfarin ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍR 8. sæti Olís deildar karla í vetur. 28. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: KA með nánast sama lið og endar í sama sæti Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 9. sæti Olís deildar karla í vetur. 27. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: HK stendur á tímamótum og heldur sér uppi Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 10. sæti Olís deildar karla í vetur. 26. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Stjarnan vill meira en meðalmennskuna síðustu ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 7. sæti Olís deildar karla í vetur. 29. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Framarar hafa daðrað við fallið en nú er komið að því Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram 11. sæti Olís deildar karla í vetur. 23. ágúst 2019 10:00 Olísdeildarspáin 2019/20: Fjölnisliðið stoppar stutt á meðal þeirra bestu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fjölni 12. sæti Olís deildar karla í vetur. 22. ágúst 2019 10:00 Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Körfubolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti Fleiri fréttir Monsi með eitt besta mark vikunnar í Evrópudeildinni Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM „Stolt af sjálfri mér“ Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM „Þetta er mjög ljúft“ Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Hófu titilvörnina með öruggum sigri Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Fimmta tap Gróttu í röð Sjö íslensk mörk í sjötta sigri Veszprém í röð Heimaliðin byrja vel á EM Ekki eins „starstruck“ og í fyrra Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Þórir ekki sáttur við nýtt hlutverk Noru Mørk Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Haukar á 30 tíma ferðalagi: „Verð sennilega bara í hjólastól“ Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Skrýtið en venst Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri ÍBV (eða Haukar) í erfiðan slag í bikarnum „Önnur eins vitleysa hefur komið frá þessu félagi“ Haukar dæmdir úr bikarnum og ÍBV fer áfram Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Sjá meira
Olísdeildarspáin 2019/20: Meiri óvissa hjá Aftureldingu en síðustu ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 6. sæti Olís deildar karla í vetur. 30. ágúst 2019 10:00
Olísdeildarspáin 2019/20: Herslumuninn hefur vantað hjá ÍR-ingum undanfarin ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍR 8. sæti Olís deildar karla í vetur. 28. ágúst 2019 10:00
Olísdeildarspáin 2019/20: KA með nánast sama lið og endar í sama sæti Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 9. sæti Olís deildar karla í vetur. 27. ágúst 2019 10:00
Olísdeildarspáin 2019/20: HK stendur á tímamótum og heldur sér uppi Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir HK 10. sæti Olís deildar karla í vetur. 26. ágúst 2019 10:00
Olísdeildarspáin 2019/20: Stjarnan vill meira en meðalmennskuna síðustu ár Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 7. sæti Olís deildar karla í vetur. 29. ágúst 2019 10:00
Olísdeildarspáin 2019/20: Framarar hafa daðrað við fallið en nú er komið að því Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fram 11. sæti Olís deildar karla í vetur. 23. ágúst 2019 10:00
Olísdeildarspáin 2019/20: Fjölnisliðið stoppar stutt á meðal þeirra bestu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fjölni 12. sæti Olís deildar karla í vetur. 22. ágúst 2019 10:00