Fréttir Segist sækja fé í aukafjárveitingu vegna inngildingar Barnamálaráðherra segir að fyrir atbeina núverandi fjármálaráðherra sé hægt að stórefla Ráðgjafar-og geiningarmiðstöð barna. Fé til þess sé m.a. sótt í aukafjárveitingu í fjárlögum til inngildingar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fullyrðingar barnamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun stofnunarinnar barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna. Innlent 27.11.2024 12:54 Læknar á lokasprettinum í kjaraviðræðum Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags íslands er jákvæð fyrir framhaldi kjaraviðræðna lækna í dag. Hún segir að hennar tilfinning sé að þau séu að komast á lokasprettinn. Innlent 27.11.2024 12:41 Tvær sviðsmyndir á kjördag Kjördegi í heild sinni verður ekki frestað að sögn framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem liggur yfir veðurspánni. Veðrið gæti þó valdið því að niðurstaða kosninga liggi fyrir síðar en ella. Innlent 27.11.2024 12:03 Alls 914 umsóknir um uppkaup í Grindavík samþykktar Alls hafa 914 umsóknir um kaup á húsnæði í Grindavík verið samþykktar hjá fasteignafélaginu Þórkötlu. Afhending hefur farið fram í 822 tilvikum. Þá hefur fasteignafélaginu borist 17 umsóknir um svokallaða hollvinasamninga vegna eigna sem þau hafa keypt í Grindavík. Í október á þessu ári þáðu 571 einstaklingur frá Grindavík leigustuðning en þeim hefur fækkað um nærri helming frá því í febrúar þegar 901 þáði slíkan stuðning. Innlent 27.11.2024 11:47 Iðgjöld til NTÍ munu hækka um fimmtíu prósent Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, eða NTÍ, sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um fimmtíu prósent. Þessi heimild mun verða nýtt frá og með komandi nýársdegi. Innlent 27.11.2024 11:42 Allt á suðupunkti í Þorlákshöfn vegna kosninganna Mikill hasar er nú í sveitarfélaginu Ölfusi en þar er nú yfirstandandi íbúakosning þar sem kosið er um það hvort Heidelberg Materials fái starfsleyfi í Þorlákshöfn fyrir mölunarverksmiðju sína. Meðal annars hefur verið dreift nafnlausum bæklingum þar sem verkefninu er fundið flest til foráttu. Innlent 27.11.2024 11:35 Veðrið gæti sett strik í reikninginn á kjördag Í hádegisfréttum verður rætt við framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem segir að slæmt veður á kjördag geti sett strik í reikninginn. Innlent 27.11.2024 11:35 Bein útsending: HÍ og heimsmarkmiðin - Ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi „Ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi“ er yfirskift fundar sem Háskóli Íslands, í samvinnu við Sjálfbærnistofnun HÍ, stendur fyrir í dag. Fundurinn er liður í nýrri viðburðaröð um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Innlent 27.11.2024 11:31 Verulega dregið úr hættu á að hraun nái innviðum Hraun frá eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni rennur nú til austurs og ógnar ekki innviðum. Fáar vísbendingar eru um hvort landris sé hafið á ný eða ekki. Innlent 27.11.2024 11:26 Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, sagði í gær að til greina kæmi að beita eigin tollum á vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hótaði því að setja 25 prósenta toll á vörur frá Mexíkó, stöðvi yfirvöld þar ekki flæði fíkniefna og farand- og flóttafólks yfir landamæri ríkjanna. Erlent 27.11.2024 11:17 Settu bílslys á svið Karlmaður hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að sviðsetja bílslys í Hafnarfirði árið 2021. Innlent 27.11.2024 10:36 Segir „taugaveikluðum“ Framsóknarmönnum að róa sig Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir fullyrðingar barna- og menntamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna. Innlent 27.11.2024 10:32 Ríkar kröfur gerðar í nýrri auglýsingu um sendiherraembætti Embætti sendiherra án staðarákvörðunar hefur verið auglýst á Starfatorgi en miklar og ítarlegar hæfniskröfur eru gerðar til umsækjenda. Innlent 27.11.2024 08:36 Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir yfirgnæfandi líkur á óveðri á Austurlandi og hríðarveðri á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum á kjördag. Hann segir líklegt að einhverjir vegir teppist á kjördag. Veður 27.11.2024 08:34 Þveraði Krýsuvíkurveg í mikilli hálku Krýsuvíkurvegur er lokaður vegna bíls sem þverar veginn. Innlent 27.11.2024 08:16 Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur stórfellt fíkniefnamál til rannsóknar þar sem lagt hefur verið hald á tæplega þrjú kíló af MDMA-kristöllum og 1781 stykki af MDMA-töflum. Innlent 27.11.2024 08:01 Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Kristian White, 34 ára lögreglumaður, hefur verið fundinn sekur um að hafa banað Clare Nowland, 95 ára, þegar hann skaut hana með rafbyssu. Nowland féll, fékk höfuðhögg og lést í kjölfarið. Erlent 27.11.2024 07:22 Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan tíu til átján metrum á sekúndu og skúrum eða slydduéljum, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Veður 27.11.2024 07:14 Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefur tilkynnt að Norðmenn ætli sér að auka fjárhagslegan stuðning við Úkraínumenn á næsta ári, eftir að hafa ákveðið að draga töluvert úr honum. Í heildina stendur til að veita Úkraínumönnum að minnsta kosti þrjátíu milljarða norskra króna á næsta ári, eftir viðræður við stjórnarandstöðuna. Erlent 27.11.2024 07:02 Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27.11.2024 06:45 Útlendingalögin séu misnotuð líkt og önnur kerfi velferðarríkisins Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að telja megi nokkuð víst að útlendingalögin á Íslandi séu misnotuð með svipuðum hætti og menn misnoti önnur kerfi velferðarríkisins. Innlent 27.11.2024 06:38 Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum en varað við gasmengun Nóttin var tíðindalítil á gosstöðvunum, samkvæmt náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Innlent 27.11.2024 06:24 Svik og prettir reyndust falsfréttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna einstaklinga sem voru sakaðir um að hafa komið sér í gistingu á hóteli í póstnúmerinu 104 „með svikum og prettum“. Innlent 27.11.2024 06:17 Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi „Það heldur áfram að malla. Okkur sýnist það streyma að langmestu leyti til austurs í átt að Fagradalsfjalli og þá ógnar það ekki Svartsengi.“ Innlent 26.11.2024 23:32 Það sem oftast ógildir kjörseðilinn Það er grundvallaratriði að eiga ekki við lista annarra flokka en þess sem maður hyggst kjósa en slíkt getur ógilt kjörseðilinn. Þetta segir formaður landskjörstjórnar. Dæmi eru um að fólk setji önnur tákn en kross á kjörseðil og kasti þannig atkvæði sínu á glæ. Innlent 26.11.2024 22:01 Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið Samninganefndir lækna og ríkisins hafa fundað í allt kvöld. Fundi er að ljúka og vonast formaður Læknafélagsins til þess að samningar náist í fyrramálið. Innlent 26.11.2024 21:40 FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Mikil ánægja ríkir í Breiðholti með þá ákvörðun ríkis og borgar að stækka Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni sem ráðgert er að rísi 2026. Innlent 26.11.2024 21:02 Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26.11.2024 20:10 Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Barna-og menntamálaráðherra segir skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa komið í veg fyrir að ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna hafi fengið nægt fjármagn til að sinna þjónustu sinni að fullu. Núverandi fjármálaráðherra ætli að taka á málinu. Innlent 26.11.2024 20:00 Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Nýtt meðferðarheimili fyrir ungmenni var í dag opnað í Mosfellsbæ en heimilinu er ætlað að vera viðbót við greiningar- og meðferðardeild Stuðla. Meðferðarheimilið heitir Blönduhlíð og stendur við Farsældartún þar sem sérstakt þjónustuþorp fyrir börn á að rísa. Innlent 26.11.2024 20:00 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Segist sækja fé í aukafjárveitingu vegna inngildingar Barnamálaráðherra segir að fyrir atbeina núverandi fjármálaráðherra sé hægt að stórefla Ráðgjafar-og geiningarmiðstöð barna. Fé til þess sé m.a. sótt í aukafjárveitingu í fjárlögum til inngildingar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir fullyrðingar barnamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun stofnunarinnar barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna. Innlent 27.11.2024 12:54
Læknar á lokasprettinum í kjaraviðræðum Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags íslands er jákvæð fyrir framhaldi kjaraviðræðna lækna í dag. Hún segir að hennar tilfinning sé að þau séu að komast á lokasprettinn. Innlent 27.11.2024 12:41
Tvær sviðsmyndir á kjördag Kjördegi í heild sinni verður ekki frestað að sögn framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem liggur yfir veðurspánni. Veðrið gæti þó valdið því að niðurstaða kosninga liggi fyrir síðar en ella. Innlent 27.11.2024 12:03
Alls 914 umsóknir um uppkaup í Grindavík samþykktar Alls hafa 914 umsóknir um kaup á húsnæði í Grindavík verið samþykktar hjá fasteignafélaginu Þórkötlu. Afhending hefur farið fram í 822 tilvikum. Þá hefur fasteignafélaginu borist 17 umsóknir um svokallaða hollvinasamninga vegna eigna sem þau hafa keypt í Grindavík. Í október á þessu ári þáðu 571 einstaklingur frá Grindavík leigustuðning en þeim hefur fækkað um nærri helming frá því í febrúar þegar 901 þáði slíkan stuðning. Innlent 27.11.2024 11:47
Iðgjöld til NTÍ munu hækka um fimmtíu prósent Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um Náttúruhamfaratryggingu Íslands, eða NTÍ, sem felur í sér heimild stofnunarinnar til þess að hækka iðgjöld tímabundið um fimmtíu prósent. Þessi heimild mun verða nýtt frá og með komandi nýársdegi. Innlent 27.11.2024 11:42
Allt á suðupunkti í Þorlákshöfn vegna kosninganna Mikill hasar er nú í sveitarfélaginu Ölfusi en þar er nú yfirstandandi íbúakosning þar sem kosið er um það hvort Heidelberg Materials fái starfsleyfi í Þorlákshöfn fyrir mölunarverksmiðju sína. Meðal annars hefur verið dreift nafnlausum bæklingum þar sem verkefninu er fundið flest til foráttu. Innlent 27.11.2024 11:35
Veðrið gæti sett strik í reikninginn á kjördag Í hádegisfréttum verður rætt við framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem segir að slæmt veður á kjördag geti sett strik í reikninginn. Innlent 27.11.2024 11:35
Bein útsending: HÍ og heimsmarkmiðin - Ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi „Ofbeldi meðal barna og ungmenna á Íslandi“ er yfirskift fundar sem Háskóli Íslands, í samvinnu við Sjálfbærnistofnun HÍ, stendur fyrir í dag. Fundurinn er liður í nýrri viðburðaröð um brýnustu verkefni og áskoranir sem þjóðir heims standa frammi fyrir. Innlent 27.11.2024 11:31
Verulega dregið úr hættu á að hraun nái innviðum Hraun frá eldgosinu á Sundhnúkagígaröðinni rennur nú til austurs og ógnar ekki innviðum. Fáar vísbendingar eru um hvort landris sé hafið á ný eða ekki. Innlent 27.11.2024 11:26
Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, sagði í gær að til greina kæmi að beita eigin tollum á vörur frá Bandaríkjunum. Er það eftir að Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hótaði því að setja 25 prósenta toll á vörur frá Mexíkó, stöðvi yfirvöld þar ekki flæði fíkniefna og farand- og flóttafólks yfir landamæri ríkjanna. Erlent 27.11.2024 11:17
Settu bílslys á svið Karlmaður hefur hlotið tveggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að sviðsetja bílslys í Hafnarfirði árið 2021. Innlent 27.11.2024 10:36
Segir „taugaveikluðum“ Framsóknarmönnum að róa sig Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir fullyrðingar barna- og menntamálaráðherra, um að Bjarni Benediktsson hafi staðið fjármögnun ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna fyrir þrifum, vera til marks um taugaveiklun Framsóknarmanna. Innlent 27.11.2024 10:32
Ríkar kröfur gerðar í nýrri auglýsingu um sendiherraembætti Embætti sendiherra án staðarákvörðunar hefur verið auglýst á Starfatorgi en miklar og ítarlegar hæfniskröfur eru gerðar til umsækjenda. Innlent 27.11.2024 08:36
Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir yfirgnæfandi líkur á óveðri á Austurlandi og hríðarveðri á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum á kjördag. Hann segir líklegt að einhverjir vegir teppist á kjördag. Veður 27.11.2024 08:34
Þveraði Krýsuvíkurveg í mikilli hálku Krýsuvíkurvegur er lokaður vegna bíls sem þverar veginn. Innlent 27.11.2024 08:16
Fundu gríðarlegt magn fíkniefna í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur stórfellt fíkniefnamál til rannsóknar þar sem lagt hefur verið hald á tæplega þrjú kíló af MDMA-kristöllum og 1781 stykki af MDMA-töflum. Innlent 27.11.2024 08:01
Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Kristian White, 34 ára lögreglumaður, hefur verið fundinn sekur um að hafa banað Clare Nowland, 95 ára, þegar hann skaut hana með rafbyssu. Nowland féll, fékk höfuðhögg og lést í kjölfarið. Erlent 27.11.2024 07:22
Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan tíu til átján metrum á sekúndu og skúrum eða slydduéljum, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Veður 27.11.2024 07:14
Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefur tilkynnt að Norðmenn ætli sér að auka fjárhagslegan stuðning við Úkraínumenn á næsta ári, eftir að hafa ákveðið að draga töluvert úr honum. Í heildina stendur til að veita Úkraínumönnum að minnsta kosti þrjátíu milljarða norskra króna á næsta ári, eftir viðræður við stjórnarandstöðuna. Erlent 27.11.2024 07:02
Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé á milli Ísraela og Hezbollah samtakanna í Líbanon tók gildi klukkan fjögur í nótt. Erlent 27.11.2024 06:45
Útlendingalögin séu misnotuð líkt og önnur kerfi velferðarríkisins Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að telja megi nokkuð víst að útlendingalögin á Íslandi séu misnotuð með svipuðum hætti og menn misnoti önnur kerfi velferðarríkisins. Innlent 27.11.2024 06:38
Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum en varað við gasmengun Nóttin var tíðindalítil á gosstöðvunum, samkvæmt náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Innlent 27.11.2024 06:24
Svik og prettir reyndust falsfréttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna einstaklinga sem voru sakaðir um að hafa komið sér í gistingu á hóteli í póstnúmerinu 104 „með svikum og prettum“. Innlent 27.11.2024 06:17
Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi „Það heldur áfram að malla. Okkur sýnist það streyma að langmestu leyti til austurs í átt að Fagradalsfjalli og þá ógnar það ekki Svartsengi.“ Innlent 26.11.2024 23:32
Það sem oftast ógildir kjörseðilinn Það er grundvallaratriði að eiga ekki við lista annarra flokka en þess sem maður hyggst kjósa en slíkt getur ógilt kjörseðilinn. Þetta segir formaður landskjörstjórnar. Dæmi eru um að fólk setji önnur tákn en kross á kjörseðil og kasti þannig atkvæði sínu á glæ. Innlent 26.11.2024 22:01
Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið Samninganefndir lækna og ríkisins hafa fundað í allt kvöld. Fundi er að ljúka og vonast formaður Læknafélagsins til þess að samningar náist í fyrramálið. Innlent 26.11.2024 21:40
FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Mikil ánægja ríkir í Breiðholti með þá ákvörðun ríkis og borgar að stækka Fjölbrautarskólann í Breiðholti. Fulltrúar Framsóknarflokksins tóku fyrstu skóflustunguna að byggingunni sem ráðgert er að rísi 2026. Innlent 26.11.2024 21:02
Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels mun leggja fram tillögu um vopnahlé milli Ísraels og Líbanon fyrir ríkisstjórn sína til samþykktar. Þetta tilkynnti ráðherrann í kvöld en ítrekaði að vopnahlé í Líbanon hafi engin áhrif á stríðið á Gasa. Erlent 26.11.2024 20:10
Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Barna-og menntamálaráðherra segir skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins hafa komið í veg fyrir að ráðgjafar-og greiningarmiðstöð barna hafi fengið nægt fjármagn til að sinna þjónustu sinni að fullu. Núverandi fjármálaráðherra ætli að taka á málinu. Innlent 26.11.2024 20:00
Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Nýtt meðferðarheimili fyrir ungmenni var í dag opnað í Mosfellsbæ en heimilinu er ætlað að vera viðbót við greiningar- og meðferðardeild Stuðla. Meðferðarheimilið heitir Blönduhlíð og stendur við Farsældartún þar sem sérstakt þjónustuþorp fyrir börn á að rísa. Innlent 26.11.2024 20:00