Fréttir Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Stjórnvöld í Þýskalandi hyggjast smíða nýtt app þar sem landsmenn munu geta leitað upplýsinga um næsta loftvarnaskýli eða annað skjól gegn loftárásum, svo sem neðanjarðarlestarstöðvar. Erlent 26.11.2024 08:03 Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan 3:45 í morgun vegna fiskibáts hafði misst vélarafl og var þá staddur um 22 sjómílur austur af Barðanum. Fjórir skipverjar voru um borð í fiskibátnum. Innlent 26.11.2024 07:54 Hiti að sex stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestanátt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, í dag. Spáð er dálitlum skúrum eða éljum, en þurrt að kalla á austanverðu landinu. Veður 26.11.2024 07:08 Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Donald Trump, sem tekur við forsetaembættinu í Bandaríkjunum 20. janúar á næsta ári, hefur ítrekað hótanir sínar um að hækka tolla á innfluttar vörur frá Kína, Mexíkó og Kanada verulega á fyrstu dögum sínum í embætti. Erlent 26.11.2024 06:55 Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Ákæruvaldið í Avignon í Frakklandi hefur farið fram á að Domnique Pelicot, sem hefur játað að hafa byrlað fyrir eiginkonu sinni og nauðgað henni, auk þess að bjóða öðrum að gera slíkt hið sama, verði dæmdur í 20 ára fangelsi. Erlent 26.11.2024 06:43 Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar líkamsárás eftir að maður leitaði á lögreglustöð með talsverða áverka í nótt. Var hann fluttur á slysadeild. Innlent 26.11.2024 06:18 Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun. Innlent 26.11.2024 06:10 Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Fyrrverandi Miðflokksmaður, sem nú styður oddvita Framsóknar í Suðurkjördæmi af heilum hug, gengst við því að hafa birt færslu á síðu fyrrnefnda flokksins nokkrum vikum eftir brotthvarf hans þaðan. Færslan innihélt opið bréf þar sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði oddvita Miðflokksins í Reykjavík suður til syndanna. Innlent 26.11.2024 00:09 Annarri ákærunni formlega vísað frá Dómari hefur samþykkt að vísa frá ákæru á hendur Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintra ólögmætra tilrauna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði. Erlent 25.11.2024 23:25 Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Faðir Elon Musk segir stuðning sinn við Donald Trump ástæðuna fyrir því að sonurinn afneitaði honum fyrir sjö árum. Elon hafi loksins yfirgefið frjálslyndu fígúruna sem hann var áður. Hann rifjar upp hvernig móðurafi Elon flutti til Suður-Afríku vegna stuðnings við aðskilnaðarstefnu ríkisins. Erlent 25.11.2024 22:03 Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Sérstakur saksóknari sem falið var að rannsaka málefni Donalds Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur óskað eftir því að tveimur málum á hendur Trump verði vísað frá. Erlent 25.11.2024 21:49 Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Stórkostlegar aðstæður hafa skapast í frostinu til skautaiðkunar og fluglendingar á Hafravatni. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur nýttu aðstæðurnar í dag til að æfa sig á meðan skautafólk lék sér á ísnum. Innlent 25.11.2024 21:01 Tvær á toppnum Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar. Innlent 25.11.2024 21:01 Gasmengun helsta hættan í Grindavík Virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni hefur ekki minnkað jafn hratt og í fyrri gosum og er hraunflæðið á við kröftugustu gosin í Fagradalsfjalli. Aðgengi að Grindavík var aukið á ný í dag. Innlent 25.11.2024 19:50 „Það má Guð vita“ Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Innlent 25.11.2024 19:05 Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Fjöldi sjálfboðaliða leggja hönd á plóg við leitina að kettinum Diego, einum frægasta ketti landsins, var numinn á brott úr versluninni A4 í Skeifunni í gær og ekkert hefur spurst til hans síðan. Atvikið náðist á öryggismyndavél en vinir og vandamenn kattarins vona að hann skili sér heill heim. Innlent 25.11.2024 19:01 „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Kári Stefánsson segir Snorra Másson, oddvita Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, vera búinn að koma sér út í erfiðar aðstæður. Snorri sé í flokki hverra stefnumál honum mislíkar og eigi erfitt með að horfast í augu við sjálfan sig. Innlent 25.11.2024 18:05 Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Við ræðum við Ástráð Haraldsson, ríkissáttasemjara, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 um stöðuna í lok dags. Innlent 25.11.2024 18:01 Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Fjöldi fólks tekur nú þátt í leit að kettinum Diego, sem hvarf í gærkvöldi. Talið er að honum hafi verið stolið, en vitnum ber ekki saman um hvort karl eða kona tók köttinn ófrjálsri hendi. Talskona dýravinasamtaka heitir viðkomandi fullum trúnaði, skili hann kettinum. Innlent 25.11.2024 17:55 Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni Hagstofunnar 750 þúsund krónur auk vaxta vegna uppsagnar hans frá stofnuninni árið 2015. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 25.11.2024 17:37 Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43 Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Jón Hjörleifur Stefánsson aðventisti segir hóp aðventista hafa kært leynisamning sem stjórnin gerði við Eden Mining, millilið sem hefur gert samning um efnissölu til Heidelberg. Þetta hljóti að setja yfirstandandi íbúakosningu um hvort Heidelberg fái að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn í uppnám. Innlent 25.11.2024 16:25 Enn talsverður kraftur í eldgosinu Frá því um kvöldmatarleytið í gær dró enn frekar úr gosóróa og sýnilegri virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni. Virknin náði aftur stöðugleika eftir miðnætti. Enn er talsverður kraftur í gosinu og hefur virknin ekki minnkað jafn hratt og í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 25.11.2024 16:00 Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Þó fyrirhugaðar Alþingiskosningar séu æsispennandi er ekki síður tekist hart á um önnur atkvæði íbúa í Ölfusi; hvort þeir munu samþykkja atvinnustarfsemi Heidelberg Materials í Þorlákshöfn eða ekki. Mikið er undir. Innlent 25.11.2024 15:44 Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ísraelsríki og Hezbollah-samtökin eru sögð nálgast samkomulag um vopnahlé. Axos-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni að skilmálar vopnahlésins liggi fyrir þó enn eigi eftir að staðfesta þá. Erlent 25.11.2024 15:02 Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, boðar dramatískar breytingar í tengslum við Flokk fólksins í næstu könnun. Ekki væri hægt að greina miklar breytingar að öðru leyti í könnunum sem sýndi umturnun á íslensku flokkakerfi. Innlent 25.11.2024 14:49 Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25.11.2024 14:32 Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu. Innlent 25.11.2024 14:22 Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Fréttir af hvarfi kattarins Diego vöktu athygli í gær en hann hefur verið sagður einn frægasti köttur landsins. Grunur er um að Diego hafi verið rænt í Skeifunni en kötturinn hefur lengi verið fastagestur í verslunum Hagkaupa og A4. Verslunarstjóri A4 í Skeifunni staðfestir að á öryggismyndavélum megi sjá hvar meintur ræningi hafi gengið inn í verslunina á sjöunda tímanum í gærkvöldi og haft köttinn með sér á brott. Innlent 25.11.2024 14:14 Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Lögreglumenn sem voru á leið um Sæbraut í Reykjavík að kvöldi mánudags í síðustu viku sáu skyndilega vígahnött á himni. Innlent 25.11.2024 13:34 « ‹ 6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 334 ›
Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Stjórnvöld í Þýskalandi hyggjast smíða nýtt app þar sem landsmenn munu geta leitað upplýsinga um næsta loftvarnaskýli eða annað skjól gegn loftárásum, svo sem neðanjarðarlestarstöðvar. Erlent 26.11.2024 08:03
Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan 3:45 í morgun vegna fiskibáts hafði misst vélarafl og var þá staddur um 22 sjómílur austur af Barðanum. Fjórir skipverjar voru um borð í fiskibátnum. Innlent 26.11.2024 07:54
Hiti að sex stigum Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestanátt, átta til fimmtán metrum á sekúndu, í dag. Spáð er dálitlum skúrum eða éljum, en þurrt að kalla á austanverðu landinu. Veður 26.11.2024 07:08
Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Donald Trump, sem tekur við forsetaembættinu í Bandaríkjunum 20. janúar á næsta ári, hefur ítrekað hótanir sínar um að hækka tolla á innfluttar vörur frá Kína, Mexíkó og Kanada verulega á fyrstu dögum sínum í embætti. Erlent 26.11.2024 06:55
Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Ákæruvaldið í Avignon í Frakklandi hefur farið fram á að Domnique Pelicot, sem hefur játað að hafa byrlað fyrir eiginkonu sinni og nauðgað henni, auk þess að bjóða öðrum að gera slíkt hið sama, verði dæmdur í 20 ára fangelsi. Erlent 26.11.2024 06:43
Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar líkamsárás eftir að maður leitaði á lögreglustöð með talsverða áverka í nótt. Var hann fluttur á slysadeild. Innlent 26.11.2024 06:18
Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun. Innlent 26.11.2024 06:10
Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Fyrrverandi Miðflokksmaður, sem nú styður oddvita Framsóknar í Suðurkjördæmi af heilum hug, gengst við því að hafa birt færslu á síðu fyrrnefnda flokksins nokkrum vikum eftir brotthvarf hans þaðan. Færslan innihélt opið bréf þar sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði oddvita Miðflokksins í Reykjavík suður til syndanna. Innlent 26.11.2024 00:09
Annarri ákærunni formlega vísað frá Dómari hefur samþykkt að vísa frá ákæru á hendur Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintra ólögmætra tilrauna hans til að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020, sem hann tapaði. Erlent 25.11.2024 23:25
Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Faðir Elon Musk segir stuðning sinn við Donald Trump ástæðuna fyrir því að sonurinn afneitaði honum fyrir sjö árum. Elon hafi loksins yfirgefið frjálslyndu fígúruna sem hann var áður. Hann rifjar upp hvernig móðurafi Elon flutti til Suður-Afríku vegna stuðnings við aðskilnaðarstefnu ríkisins. Erlent 25.11.2024 22:03
Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Sérstakur saksóknari sem falið var að rannsaka málefni Donalds Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, hefur óskað eftir því að tveimur málum á hendur Trump verði vísað frá. Erlent 25.11.2024 21:49
Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Stórkostlegar aðstæður hafa skapast í frostinu til skautaiðkunar og fluglendingar á Hafravatni. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur nýttu aðstæðurnar í dag til að æfa sig á meðan skautafólk lék sér á ísnum. Innlent 25.11.2024 21:01
Tvær á toppnum Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar. Innlent 25.11.2024 21:01
Gasmengun helsta hættan í Grindavík Virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni hefur ekki minnkað jafn hratt og í fyrri gosum og er hraunflæðið á við kröftugustu gosin í Fagradalsfjalli. Aðgengi að Grindavík var aukið á ný í dag. Innlent 25.11.2024 19:50
„Það má Guð vita“ Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Innlent 25.11.2024 19:05
Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Fjöldi sjálfboðaliða leggja hönd á plóg við leitina að kettinum Diego, einum frægasta ketti landsins, var numinn á brott úr versluninni A4 í Skeifunni í gær og ekkert hefur spurst til hans síðan. Atvikið náðist á öryggismyndavél en vinir og vandamenn kattarins vona að hann skili sér heill heim. Innlent 25.11.2024 19:01
„Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Kári Stefánsson segir Snorra Másson, oddvita Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, vera búinn að koma sér út í erfiðar aðstæður. Snorri sé í flokki hverra stefnumál honum mislíkar og eigi erfitt með að horfast í augu við sjálfan sig. Innlent 25.11.2024 18:05
Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Við ræðum við Ástráð Haraldsson, ríkissáttasemjara, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 um stöðuna í lok dags. Innlent 25.11.2024 18:01
Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Fjöldi fólks tekur nú þátt í leit að kettinum Diego, sem hvarf í gærkvöldi. Talið er að honum hafi verið stolið, en vitnum ber ekki saman um hvort karl eða kona tók köttinn ófrjálsri hendi. Talskona dýravinasamtaka heitir viðkomandi fullum trúnaði, skili hann kettinum. Innlent 25.11.2024 17:55
Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni Hagstofunnar 750 þúsund krónur auk vaxta vegna uppsagnar hans frá stofnuninni árið 2015. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 25.11.2024 17:37
Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43
Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Jón Hjörleifur Stefánsson aðventisti segir hóp aðventista hafa kært leynisamning sem stjórnin gerði við Eden Mining, millilið sem hefur gert samning um efnissölu til Heidelberg. Þetta hljóti að setja yfirstandandi íbúakosningu um hvort Heidelberg fái að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn í uppnám. Innlent 25.11.2024 16:25
Enn talsverður kraftur í eldgosinu Frá því um kvöldmatarleytið í gær dró enn frekar úr gosóróa og sýnilegri virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni. Virknin náði aftur stöðugleika eftir miðnætti. Enn er talsverður kraftur í gosinu og hefur virknin ekki minnkað jafn hratt og í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 25.11.2024 16:00
Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Þó fyrirhugaðar Alþingiskosningar séu æsispennandi er ekki síður tekist hart á um önnur atkvæði íbúa í Ölfusi; hvort þeir munu samþykkja atvinnustarfsemi Heidelberg Materials í Þorlákshöfn eða ekki. Mikið er undir. Innlent 25.11.2024 15:44
Ísrael og Hezbollah sögð við það að gera vopnahlé Ísraelsríki og Hezbollah-samtökin eru sögð nálgast samkomulag um vopnahlé. Axos-fréttastofan hefur eftir bandarískum embættismanni að skilmálar vopnahlésins liggi fyrir þó enn eigi eftir að staðfesta þá. Erlent 25.11.2024 15:02
Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, boðar dramatískar breytingar í tengslum við Flokk fólksins í næstu könnun. Ekki væri hægt að greina miklar breytingar að öðru leyti í könnunum sem sýndi umturnun á íslensku flokkakerfi. Innlent 25.11.2024 14:49
Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25.11.2024 14:32
Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu. Innlent 25.11.2024 14:22
Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Fréttir af hvarfi kattarins Diego vöktu athygli í gær en hann hefur verið sagður einn frægasti köttur landsins. Grunur er um að Diego hafi verið rænt í Skeifunni en kötturinn hefur lengi verið fastagestur í verslunum Hagkaupa og A4. Verslunarstjóri A4 í Skeifunni staðfestir að á öryggismyndavélum megi sjá hvar meintur ræningi hafi gengið inn í verslunina á sjöunda tímanum í gærkvöldi og haft köttinn með sér á brott. Innlent 25.11.2024 14:14
Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Lögreglumenn sem voru á leið um Sæbraut í Reykjavík að kvöldi mánudags í síðustu viku sáu skyndilega vígahnött á himni. Innlent 25.11.2024 13:34