Bíó og sjónvarp Gerir það gott í Þýskalandi Þorleifi Erni Arnarssyni hafa borist fimm tilboð frá þýskum leikhúsum í kjölfar sýninga á Eilífri hamingju í Berlín í febrúar. Þorleifur er leikstjóri sýningarinnar og stundar nú leikstjóranám í Berlín. „Leikhúsin eru öll að ákveða hvað þau ætla að gera næsta vetur. Það á eftir að koma í ljós hvað passar inn og hvað ég get tekið að mér,“ sagði Þorleifur og bendir á að staðan sé enn nokkuð óljós. Bíó og sjónvarp 8.5.2007 10:00 Spiderman slær í gegn á Íslandi Spiderman 3 sló heldur betur í gegn hér heima eins og víðast hvar um heiminn. Myndina sáu hátt í 15 þúsunds manns á aðeins þremur dögum og er þetta því stærri opnun en bæði Spiderman 1 og Spiderman 2. Bíó og sjónvarp 7.5.2007 13:42 Köngulóarmaðurinn snýr aftur Sam Raimi mætir til leiks nú um helgina með þriðju myndina um Köngulóarmanninn Peter Parker en kvikmyndahúsagestir hafa bundist þessum veggjaklifrara og ofurhuga miklum tryggðarböndum. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 09:15 Áhorfendur varaðir við Japanskur dreifingaraðili kvikmyndarinnar Babel hefur varað fólk við því að því gæti liðið illa við að horfa á myndina. Að sögn dreifingaraðilans hafa fimmtán manns kvartað undan ógleði eftir að hafa horft á myndina. Um er að ræða atriði þar sem persóna japönsku leikkonunnar Rinko Kikuchi fer á næturklúbb með ljósum sem blikka ákaft. Hefur áhorfendum orðið óglatt við það að horfa á ljósin. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 09:00 Cusack til liðs við Óttar og De Bont John Cusack er fyrsti leikarinn sem skrifar undir samning um að leika í kvikmyndinni Stoppin Power en henni er leikstýrt af Jan De Bont. Íslendingar eiga sinn hlut í myndinni en tökumaður myndarinnar verður Óttar Guðnason. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 08:45 Háskólabíó verði heimavöllur Íslands Sena hefur tekið við rekstri Háskólabíós af Sambíóunum og hyggst gera kvikmyndahúsið að heimavelli íslenskrar kvikmyndagerðar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að bjóða upp á „tveir fyrir einn“-tilboð á spennumyndirnar Köld slóð og Mýrina. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 07:30 Sjóræningjar og Spartverjar einoka MTV-hátíðina Stórsmellurinn 300 og sjóræningjarnir á Karíbahafinu berjast um hylli áhorfenda á MTV-kvikmyndaverðlaununum sem afhent verða í Los Angeles. Báðar eru tilnefndar sem besta myndin og keppa þar við Little Miss Sunshine, Blades of Glory og Borat. Tilkynnt hefur verið að Sarah Silverman muni kynna hátíðina, sem verður sýnd í beinni útsendingu í fyrsta sinn. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 06:45 Knightley býðst hlutverk í leikhúsi Leikkonan Keira Knightley íhugar alvarlega að hætta kvikmyndaleik en leikkonan segir að kastljós fjölmiðlanna sé orðið alltof mikið. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Elle. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 06:30 Þegar múrinn féll Græna ljósið tekur til sýningar um helgina þýsku myndina Líf hinna eða Das Leben der Anderen en hún hlaut Óskarsverðlaun sem besta erlenda myndin fyrr á árinu. Að venju býður Græna ljósið félögum í kvikmyndaklúbbnum sínum frítt á myndina um opnunarhelgina en þeir fá sendan miðakvóta á föstudaginn sem þeir geta notað á midi.is. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 06:30 Leiklistarveisla í Borgó Leiklistarveisla verður haldin í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20 í tilefni af menningarhátíðinni List án landamæra. Bíó og sjónvarp 30.4.2007 08:00 Alltaf á leið til leikhússins Menn hafa löngum afgreitt leikrit Halldórs Laxness sem einhvers konar aukagetu. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur segir að leikritaskrif hans hafi verið mikilvægur hluti af hans listrænu leit og glímu og eigi skilið verðugri sess. Hann ræðir um olnbogabarnið Straumrof á Gljúfrasteini í dag. Bíó og sjónvarp 29.4.2007 10:00 Fjalakötturinn sýnir þrjár myndir byggðar á sögum Astridar Lindgren Fjalakötturinn sýnir þrjár myndir byggðar á sögum Astridar Lindgren nú um helgina, auk þess sem síðustu sýningar á myndum franska kvikmyndagerðarmannsins Raymond Depardon fara fram. Bíó og sjónvarp 29.4.2007 08:00 Spaugstofan kveður í bili með olíubaði og látum „Það er alltaf með ákveðinni tregablandinni ánægju sem maður fer í frí,“ segir Pálmi Gestsson, sérlegur blaðafulltrúi Spaugstofunnar. Síðasti þáttur hinna dáðu Spaugstofumanna verður sýndur í kvöld á Ríkissjónvarpinu. Bíó og sjónvarp 28.4.2007 14:00 Nemar í skóla tímans Leikararnir góðkunnu Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Skúlason fagna 40 ára leikafmæli sínu um þessar mundir, en þau útskrifuðust bæði frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins í maí 1967 að loknu þriggja ára námi. Af þessu tilefni efna þau til leiklistardagskrár í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og flytja þar brot úr klassískum leikverkum eftir Shakespeare, Edward Albee og Halldór Laxness. Bíó og sjónvarp 28.4.2007 13:00 Rúni Júl í Partílandið Rokkarinn Rúnar Júlíusson hefur fallist á að koma fram í Partílandinu, leikriti sem sett verður upp á Listahátíð í Reykjavík í næsta mánuði. Rúnar verður einn fjölmargra gestaleikara sem koma fram í verkinu en þeir verða allir þjóðþekktir og koma fram sem þeir sjálfir. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 09:30 Íslensk götulist í Englandi Þórdís Claessen opnar einkasýningu í Urbis-safninu í Manchester 9. maí næstkomandi. Vel gæti farið svo að Ósómakindin rati á veggi safnsins. „Ég verð með bókarkynningu fyrir Icepick og sýningu í kringum það. Hún verður uppi í þrjá mánuði, alveg fram í ágúst,“ útskýrði Þórdís. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 09:30 Flottar heimildarmyndir fyrir vestan „Við ætlum að frumsýna tæplega tuttugu nýjar íslenskar heimildarmyndir,“ segir Hálfdán Pedersen, einn skipuleggjenda heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborg "07 sem verður haldin í fallegu gömlu bíóhúsi á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 09:00 Í þykjustuleik Adam Sandler leikur slökkviliðsmann sem þykist vera samkynhneigður í nýjustu kvikmynd sinni I Now Pronounce You Chuck and Larry. Í myndinni þykjast Sandler og Kevin James, sem leikur í þáttunum The King of Queens, vera par til að svíkja út bætur. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 08:00 Köngulóarmaðurinn mættur Kvikmyndin Spider-Man 3 var frumsýnd á Leicester-torgi í London á dögunum með pompi og prakt. Allar stjörnur myndarinnar létu vitaskuld sjá sig, þar á meðal Tobey Maguire og Kirsten Dunst. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 07:30 Óbeisluð fegurð á hvíta tjaldið Hrafnhildur Gunnarsdóttir vinnur að heimildarmynd um fegurðarsamkeppnina Óbeislaða fegurð, í samstarfi við Tinu Naccache frá Líbanon. Hrafnhildur og Tina hafa áður gert saman myndirnar Lifandi í limbó og Hver hengir upp þvottinn? auk þess sem Tina aðstoðaði Hrafnhildi við gerð myndarinnar Hrein og bein. Bíó og sjónvarp 24.4.2007 08:00 Producers kveður Söngleikurinn The Producers, sem er byggður á samnefndri kvikmynd Mel Brooks, hefur lokið göngu sinni á Broadway eftir rúmlega 2.500 sýningar. „Þetta hafa verið sex gleðileg ár og þið áhorfendur hafið staðið ykkur frábærlega í því að aðstoða okkur við þessa vel heppnuðu lokasýningu,“ sagði Mel Brooks. Bíó og sjónvarp 24.4.2007 07:00 Grettir - tvær stjörnur Er ástæða til að rifja upp gamla íslenska söngleiki og setja á svið með ærnum tilkostnaði? Víða er það gert í öðrum löndum að gamaldags verk eru endurvakin, oft vegna tónlistarinnar sem kann að geyma sígild númer, ellegar þess að höfundum tal- og söngtexta hefur á sinni tíð tekist að næla tíðaranda, móð, í fléttuna. Bíó og sjónvarp 24.4.2007 00:01 Horft inn um skráargatið Er hjónabandið hagkvæmnisráðstöfun, fyrirtæki eða loforð um skilyrðislausa ást? Elva Ósk Ólafsdóttir ræddi við blaðamann um hálan ís og heilmikinn þroska. Bíó og sjónvarp 20.4.2007 08:45 Gersemar gærdagsins, sýning Turak-leikhússins - fjórar stjörnur Landsmenn geta hugsað sér glatt til menningarglóðarinnar fram á vorið því enn stendur yfir franska menningarkynningin Pourquoi pas? og hingað streymir hæfileikafólk frá meginlandinu sem fúst er að skemmta okkur og fræða. Á mánudagskvöld var sett upp óvenjuleg leiksýning í Kúlu Þjóðleikhússins en sýning sú ferðast um landið þessa dagana og verður hún sett upp í flestum fjórðungum auk sýninga í Hafnarfirði og á Reykjanesi. Bíó og sjónvarp 20.4.2007 00:01 Óvænt samstaða myndast innan leikarastéttarinnar „Þetta er rétt og þessi samstaða er vægast stórkostleg,“ segir Randver Þorláksson, formaður Félags íslenskra leikara, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa þó nokkuð margir ungir leikarar hafnað hlutverkum í sjónvarpsþáttaröðinni Pressu vegna ósættis um launamál. Bíó og sjónvarp 19.4.2007 14:30 FBI í jákvæðu ljósi hvíta tjaldsins Fáar stofnanir eru jafn samofnar bandarísku þjóðlífi og alríkislögreglan, FBI, og Hollywood hefur löngum hrifist af FBI þótt lítið sé um gagnrýni á hana. Bíó og sjónvarp 19.4.2007 11:00 Dularfullar skepnur Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal í dag. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg. Bíó og sjónvarp 19.4.2007 11:00 Prófaður í hlutverk í næstu Harry Potter-mynd "Þetta er allt á mjög viðkvæmu stigi en er vissulega spennandi og magnað ef af verður," segir Jón Páll Eyjólfsson, leikari og leikstjóri, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann fór í prufur fyrir næstu Harry Potter-mynd. Um er að ræða Harry Potter og Blendingsprinsinn " sjöttu kvikmyndina um ævintýri galdramannsins unga sem kemur fyrir sjónir almennings á næsta ári. Bíó og sjónvarp 17.4.2007 07:00 Vill fá hlutverk í Harry Potter „Á þessu stigi fær maður bara að sjá búta úr handritinu og það hvílir mikil leynd yfir þessu öllu saman,“ segir Jón Páll Eyjólfsson leikari sem prófaður hefur verið fyrir hlutverk í sjöttu myndinni um Harry Potter. Sú heitir Harry Potter og Blendingsprinsinn og verður frumsýnd á næsta ári. Ekki fæst uppgefið um hvaða hlutverk er að ræða. Bíó og sjónvarp 17.4.2007 06:00 Portman kemur nakin fram Leikkonan Natalie Portman hefur fallist á að leika í kvikmyndinni Goya‘s Ghosts en ákvörðunin reyndist henni erfið þar eð hún þarf að fækka fötum í kvikmyndinni. Bíó og sjónvarp 16.4.2007 10:30 « ‹ 122 123 124 125 126 127 128 129 130 … 139 ›
Gerir það gott í Þýskalandi Þorleifi Erni Arnarssyni hafa borist fimm tilboð frá þýskum leikhúsum í kjölfar sýninga á Eilífri hamingju í Berlín í febrúar. Þorleifur er leikstjóri sýningarinnar og stundar nú leikstjóranám í Berlín. „Leikhúsin eru öll að ákveða hvað þau ætla að gera næsta vetur. Það á eftir að koma í ljós hvað passar inn og hvað ég get tekið að mér,“ sagði Þorleifur og bendir á að staðan sé enn nokkuð óljós. Bíó og sjónvarp 8.5.2007 10:00
Spiderman slær í gegn á Íslandi Spiderman 3 sló heldur betur í gegn hér heima eins og víðast hvar um heiminn. Myndina sáu hátt í 15 þúsunds manns á aðeins þremur dögum og er þetta því stærri opnun en bæði Spiderman 1 og Spiderman 2. Bíó og sjónvarp 7.5.2007 13:42
Köngulóarmaðurinn snýr aftur Sam Raimi mætir til leiks nú um helgina með þriðju myndina um Köngulóarmanninn Peter Parker en kvikmyndahúsagestir hafa bundist þessum veggjaklifrara og ofurhuga miklum tryggðarböndum. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 09:15
Áhorfendur varaðir við Japanskur dreifingaraðili kvikmyndarinnar Babel hefur varað fólk við því að því gæti liðið illa við að horfa á myndina. Að sögn dreifingaraðilans hafa fimmtán manns kvartað undan ógleði eftir að hafa horft á myndina. Um er að ræða atriði þar sem persóna japönsku leikkonunnar Rinko Kikuchi fer á næturklúbb með ljósum sem blikka ákaft. Hefur áhorfendum orðið óglatt við það að horfa á ljósin. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 09:00
Cusack til liðs við Óttar og De Bont John Cusack er fyrsti leikarinn sem skrifar undir samning um að leika í kvikmyndinni Stoppin Power en henni er leikstýrt af Jan De Bont. Íslendingar eiga sinn hlut í myndinni en tökumaður myndarinnar verður Óttar Guðnason. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 08:45
Háskólabíó verði heimavöllur Íslands Sena hefur tekið við rekstri Háskólabíós af Sambíóunum og hyggst gera kvikmyndahúsið að heimavelli íslenskrar kvikmyndagerðar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að bjóða upp á „tveir fyrir einn“-tilboð á spennumyndirnar Köld slóð og Mýrina. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 07:30
Sjóræningjar og Spartverjar einoka MTV-hátíðina Stórsmellurinn 300 og sjóræningjarnir á Karíbahafinu berjast um hylli áhorfenda á MTV-kvikmyndaverðlaununum sem afhent verða í Los Angeles. Báðar eru tilnefndar sem besta myndin og keppa þar við Little Miss Sunshine, Blades of Glory og Borat. Tilkynnt hefur verið að Sarah Silverman muni kynna hátíðina, sem verður sýnd í beinni útsendingu í fyrsta sinn. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 06:45
Knightley býðst hlutverk í leikhúsi Leikkonan Keira Knightley íhugar alvarlega að hætta kvikmyndaleik en leikkonan segir að kastljós fjölmiðlanna sé orðið alltof mikið. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Elle. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 06:30
Þegar múrinn féll Græna ljósið tekur til sýningar um helgina þýsku myndina Líf hinna eða Das Leben der Anderen en hún hlaut Óskarsverðlaun sem besta erlenda myndin fyrr á árinu. Að venju býður Græna ljósið félögum í kvikmyndaklúbbnum sínum frítt á myndina um opnunarhelgina en þeir fá sendan miðakvóta á föstudaginn sem þeir geta notað á midi.is. Bíó og sjónvarp 3.5.2007 06:30
Leiklistarveisla í Borgó Leiklistarveisla verður haldin í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20 í tilefni af menningarhátíðinni List án landamæra. Bíó og sjónvarp 30.4.2007 08:00
Alltaf á leið til leikhússins Menn hafa löngum afgreitt leikrit Halldórs Laxness sem einhvers konar aukagetu. Jón Viðar Jónsson leikhúsfræðingur segir að leikritaskrif hans hafi verið mikilvægur hluti af hans listrænu leit og glímu og eigi skilið verðugri sess. Hann ræðir um olnbogabarnið Straumrof á Gljúfrasteini í dag. Bíó og sjónvarp 29.4.2007 10:00
Fjalakötturinn sýnir þrjár myndir byggðar á sögum Astridar Lindgren Fjalakötturinn sýnir þrjár myndir byggðar á sögum Astridar Lindgren nú um helgina, auk þess sem síðustu sýningar á myndum franska kvikmyndagerðarmannsins Raymond Depardon fara fram. Bíó og sjónvarp 29.4.2007 08:00
Spaugstofan kveður í bili með olíubaði og látum „Það er alltaf með ákveðinni tregablandinni ánægju sem maður fer í frí,“ segir Pálmi Gestsson, sérlegur blaðafulltrúi Spaugstofunnar. Síðasti þáttur hinna dáðu Spaugstofumanna verður sýndur í kvöld á Ríkissjónvarpinu. Bíó og sjónvarp 28.4.2007 14:00
Nemar í skóla tímans Leikararnir góðkunnu Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Skúlason fagna 40 ára leikafmæli sínu um þessar mundir, en þau útskrifuðust bæði frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins í maí 1967 að loknu þriggja ára námi. Af þessu tilefni efna þau til leiklistardagskrár í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og flytja þar brot úr klassískum leikverkum eftir Shakespeare, Edward Albee og Halldór Laxness. Bíó og sjónvarp 28.4.2007 13:00
Rúni Júl í Partílandið Rokkarinn Rúnar Júlíusson hefur fallist á að koma fram í Partílandinu, leikriti sem sett verður upp á Listahátíð í Reykjavík í næsta mánuði. Rúnar verður einn fjölmargra gestaleikara sem koma fram í verkinu en þeir verða allir þjóðþekktir og koma fram sem þeir sjálfir. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 09:30
Íslensk götulist í Englandi Þórdís Claessen opnar einkasýningu í Urbis-safninu í Manchester 9. maí næstkomandi. Vel gæti farið svo að Ósómakindin rati á veggi safnsins. „Ég verð með bókarkynningu fyrir Icepick og sýningu í kringum það. Hún verður uppi í þrjá mánuði, alveg fram í ágúst,“ útskýrði Þórdís. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 09:30
Flottar heimildarmyndir fyrir vestan „Við ætlum að frumsýna tæplega tuttugu nýjar íslenskar heimildarmyndir,“ segir Hálfdán Pedersen, einn skipuleggjenda heimildarmyndahátíðarinnar Skjaldborg "07 sem verður haldin í fallegu gömlu bíóhúsi á Patreksfirði um Hvítasunnuhelgina. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 09:00
Í þykjustuleik Adam Sandler leikur slökkviliðsmann sem þykist vera samkynhneigður í nýjustu kvikmynd sinni I Now Pronounce You Chuck and Larry. Í myndinni þykjast Sandler og Kevin James, sem leikur í þáttunum The King of Queens, vera par til að svíkja út bætur. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 08:00
Köngulóarmaðurinn mættur Kvikmyndin Spider-Man 3 var frumsýnd á Leicester-torgi í London á dögunum með pompi og prakt. Allar stjörnur myndarinnar létu vitaskuld sjá sig, þar á meðal Tobey Maguire og Kirsten Dunst. Bíó og sjónvarp 25.4.2007 07:30
Óbeisluð fegurð á hvíta tjaldið Hrafnhildur Gunnarsdóttir vinnur að heimildarmynd um fegurðarsamkeppnina Óbeislaða fegurð, í samstarfi við Tinu Naccache frá Líbanon. Hrafnhildur og Tina hafa áður gert saman myndirnar Lifandi í limbó og Hver hengir upp þvottinn? auk þess sem Tina aðstoðaði Hrafnhildi við gerð myndarinnar Hrein og bein. Bíó og sjónvarp 24.4.2007 08:00
Producers kveður Söngleikurinn The Producers, sem er byggður á samnefndri kvikmynd Mel Brooks, hefur lokið göngu sinni á Broadway eftir rúmlega 2.500 sýningar. „Þetta hafa verið sex gleðileg ár og þið áhorfendur hafið staðið ykkur frábærlega í því að aðstoða okkur við þessa vel heppnuðu lokasýningu,“ sagði Mel Brooks. Bíó og sjónvarp 24.4.2007 07:00
Grettir - tvær stjörnur Er ástæða til að rifja upp gamla íslenska söngleiki og setja á svið með ærnum tilkostnaði? Víða er það gert í öðrum löndum að gamaldags verk eru endurvakin, oft vegna tónlistarinnar sem kann að geyma sígild númer, ellegar þess að höfundum tal- og söngtexta hefur á sinni tíð tekist að næla tíðaranda, móð, í fléttuna. Bíó og sjónvarp 24.4.2007 00:01
Horft inn um skráargatið Er hjónabandið hagkvæmnisráðstöfun, fyrirtæki eða loforð um skilyrðislausa ást? Elva Ósk Ólafsdóttir ræddi við blaðamann um hálan ís og heilmikinn þroska. Bíó og sjónvarp 20.4.2007 08:45
Gersemar gærdagsins, sýning Turak-leikhússins - fjórar stjörnur Landsmenn geta hugsað sér glatt til menningarglóðarinnar fram á vorið því enn stendur yfir franska menningarkynningin Pourquoi pas? og hingað streymir hæfileikafólk frá meginlandinu sem fúst er að skemmta okkur og fræða. Á mánudagskvöld var sett upp óvenjuleg leiksýning í Kúlu Þjóðleikhússins en sýning sú ferðast um landið þessa dagana og verður hún sett upp í flestum fjórðungum auk sýninga í Hafnarfirði og á Reykjanesi. Bíó og sjónvarp 20.4.2007 00:01
Óvænt samstaða myndast innan leikarastéttarinnar „Þetta er rétt og þessi samstaða er vægast stórkostleg,“ segir Randver Þorláksson, formaður Félags íslenskra leikara, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa þó nokkuð margir ungir leikarar hafnað hlutverkum í sjónvarpsþáttaröðinni Pressu vegna ósættis um launamál. Bíó og sjónvarp 19.4.2007 14:30
FBI í jákvæðu ljósi hvíta tjaldsins Fáar stofnanir eru jafn samofnar bandarísku þjóðlífi og alríkislögreglan, FBI, og Hollywood hefur löngum hrifist af FBI þótt lítið sé um gagnrýni á hana. Bíó og sjónvarp 19.4.2007 11:00
Dularfullar skepnur Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal í dag. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg. Bíó og sjónvarp 19.4.2007 11:00
Prófaður í hlutverk í næstu Harry Potter-mynd "Þetta er allt á mjög viðkvæmu stigi en er vissulega spennandi og magnað ef af verður," segir Jón Páll Eyjólfsson, leikari og leikstjóri, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann fór í prufur fyrir næstu Harry Potter-mynd. Um er að ræða Harry Potter og Blendingsprinsinn " sjöttu kvikmyndina um ævintýri galdramannsins unga sem kemur fyrir sjónir almennings á næsta ári. Bíó og sjónvarp 17.4.2007 07:00
Vill fá hlutverk í Harry Potter „Á þessu stigi fær maður bara að sjá búta úr handritinu og það hvílir mikil leynd yfir þessu öllu saman,“ segir Jón Páll Eyjólfsson leikari sem prófaður hefur verið fyrir hlutverk í sjöttu myndinni um Harry Potter. Sú heitir Harry Potter og Blendingsprinsinn og verður frumsýnd á næsta ári. Ekki fæst uppgefið um hvaða hlutverk er að ræða. Bíó og sjónvarp 17.4.2007 06:00
Portman kemur nakin fram Leikkonan Natalie Portman hefur fallist á að leika í kvikmyndinni Goya‘s Ghosts en ákvörðunin reyndist henni erfið þar eð hún þarf að fækka fötum í kvikmyndinni. Bíó og sjónvarp 16.4.2007 10:30