Erlent Gerðu árásir á útibú meintrar fjármálaþjónustu Hezbollah Hundruð íbúa Beirút flúðu heimili sín í gærkvöldi eftir að Ísraelsher gaf út að árásir væru yfirvofandi á útibú fjármálasamsteypunnar Al-Qard Al-Hassan Association. Erlent 21.10.2024 06:52 Þrír táningar létust í bílslysi í Svíþjóð Þrír ungir piltar – tveir ára og einn sautján – eru látnir eftir að bílslys varð skammt frá Luleå í norðurhluta Svíþjóðar í nótt. Átján ára stúlka slasaðist einnig lífshættulega í slysinu. Erlent 20.10.2024 12:59 Enn rafmagnslaust á Kúbu Enn er rafmagnslaust á Kúbu eftir að stjórnvöldum mistókst í þriðja sinn að koma á rafmagni rétt fyrir miðnætti í gær, laugardag. Rafmagn fór fyrst af á föstudag þegar bilun varð í einu stærsta orkuveri landsins. Í gær, laugardag, hrundi kerfið svo aftur þegar var verið að reyna að koma aftur á rafmagni. Erlent 20.10.2024 08:45 „Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur sakað Hezbollah um að reyna að ráða sig af dögum í dag eftir að dróna frá Líbanon var skotið í átt að heimili hans í bænum Caesarea. Hvorki forsætisráðherrann né kona hans voru heima og sakaði engan. Erlent 19.10.2024 22:17 Aftur rafmagnslaust á Kúbu Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á. Erlent 19.10.2024 13:36 Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sprengjudróni hæfði heimili Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, snemma í morgun. Um er að ræða hús hans í Sesareu í norðurhluta Ísraels. Erlent 19.10.2024 10:42 Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ „Skekkjumörkin eru yfirleitt í kringum tvö og hálft til þrjú og hálft prósent, þannig að þetta er allt innan skekkjumarka,“ sagði Friðjón R. Friðjónsson, sérlegur áhugamaður um bandarísk stjórnmál, í Baráttunni um Bandaríkin í vikunni. Erlent 19.10.2024 09:01 Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Leiðtogar Evrópusambandsins leita nú leiða til að draga úr flæði farand- og flóttafólks til heimsálfunnar. Stuðningur við slíkar aðgerðir hefur aukist töluvert og er sú aukning rakin til aukins fylgis fjar-hægri flokka í Evrópu, sem eru verulega mótfallnir fólksflutningum til Evrópu. Erlent 18.10.2024 17:02 Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18.10.2024 15:31 Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Elon Musk, einn auðugasti maður heims, bar í gær upp gamlar og ósannar samsæriskenningar um kosningasvik í forsetakosningunum 2020. Það gerði hann á kosningafundi fyrir Donald Trump í Pennsylvaníu og gaf hann meðal annars til kynna að kosningavélar Dominion Voting Systems hefðu verið notuð til kosningasvika. Erlent 18.10.2024 14:21 Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Saksóknarar í Noregi hafa fellt niður rannsókn á Tom Hagen, auðkýfingi, sem var sakaður um að myrða eiginkonu sína, Anne-Elisabeth Hagen. Engar sannanir hafi komið fram um að Hagen hafi borið ábyrgð á hvarfi hennar fyrir sex árum. Erlent 18.10.2024 10:04 Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur ákveðið að senda fjögur stórfylki, eða um tólf þúsund hermenn, til aðstoðar Rússa við innrás þeirra í Úkraínu. Kim sendi hóp sérveitarmanna tli Rússlands í ágúst þar sem þeir fengu fölsk skilríki og hljóta þjálfun, áður en þeir verða sendir til Úkraínu. Erlent 18.10.2024 09:51 Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Sænska öryggislögreglan telur að írönsk stjórnvöld hafi fengið þarlend glæpagengi til þess að ráðast á ísraels fyrirtæki og sendiskrifstofur á Norðurlöndum undanfarnar vikur. Gengin hafa notað unglinga sem handbendi sín í þeim árásum. Erlent 18.10.2024 09:35 Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Ísraelsher hefur birt myndskeið sem er sagt sýna hinstu stund Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas og skipuleggjanda árásanna 7. október. Erlent 18.10.2024 08:55 Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hvatt Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, til að horfa fram á við og taka næstu skref í átt að vopnahléi á Gasa, í kjölfar fregna af því að Ísraelsher hefði banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas. Erlent 18.10.2024 07:31 Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir fall leiðtoga Hamas Yahya Sinwar „upphafið að endinum“ en Ísraelar muni „ekki stöðva stríðið“. Erlent 17.10.2024 23:38 Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Ísraelski herinn hefur staðfest að þeir hafi banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas-samtakanna, í átökum á Gasaströndinni í gær. Lík hans fannst í dag og í DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að um hann hafi verið að ræða. Erlent 17.10.2024 17:52 Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31 „Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17.10.2024 11:35 Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrataflokksins, var til viðtals á Fox News í gær og sitt sýnist hverjum um hvernig hún stóð sig. Erlent 17.10.2024 10:41 Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. Erlent 17.10.2024 10:22 Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Ítalska þingið samþykkti bann við því að fólk leiti eftir staðgöngumæðrun erlendis í gær. Andstæðingar ríkisstjórnar Giorgiu Meloni forsætisráðherra segja lögunum beint að samkynja pörum. Erlent 17.10.2024 08:46 Hundrað ára Carter búinn að kjósa Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti sem varð hundrað ára á dögunum, er búinn að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Hann kaus með utankjörstaðaratkvæði, sem var lagt í pósthólf við dómshús í borginni Americus í Georgíuríki. Erlent 16.10.2024 21:52 Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. Erlent 16.10.2024 15:33 Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22 Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið. Erlent 16.10.2024 09:05 Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Bandaríska ríkið hefur sektað flugfélagið Lufthansa um fjórar milljónir dala fyrir að hafa bannað gyðingum að ganga um borð í vél félagsins árið 2022 þar sem sumir þeirra neituðu að bera sóttvarnagrímu. Erlent 16.10.2024 08:15 Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Auðjöfurinn Elon Musk gaf 75 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 10 milljarða króna, í kosningasjóðinn America PAC á aðeins þremur mánuðum, sem fjármagnar aðgerðir til að fá kjósendur Donald Trump á kjörstað í barátturíkjunum sjö. Erlent 16.10.2024 07:09 Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust. Erlent 16.10.2024 06:44 Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur viðrað þá hugmynd að aðildarríkin horfi til þess að gera samninga um „úrvinnslumiðstöðvar“ fyrir hælisleitendur utan sambandsins. Erlent 16.10.2024 06:23 « ‹ 8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 334 ›
Gerðu árásir á útibú meintrar fjármálaþjónustu Hezbollah Hundruð íbúa Beirút flúðu heimili sín í gærkvöldi eftir að Ísraelsher gaf út að árásir væru yfirvofandi á útibú fjármálasamsteypunnar Al-Qard Al-Hassan Association. Erlent 21.10.2024 06:52
Þrír táningar létust í bílslysi í Svíþjóð Þrír ungir piltar – tveir ára og einn sautján – eru látnir eftir að bílslys varð skammt frá Luleå í norðurhluta Svíþjóðar í nótt. Átján ára stúlka slasaðist einnig lífshættulega í slysinu. Erlent 20.10.2024 12:59
Enn rafmagnslaust á Kúbu Enn er rafmagnslaust á Kúbu eftir að stjórnvöldum mistókst í þriðja sinn að koma á rafmagni rétt fyrir miðnætti í gær, laugardag. Rafmagn fór fyrst af á föstudag þegar bilun varð í einu stærsta orkuveri landsins. Í gær, laugardag, hrundi kerfið svo aftur þegar var verið að reyna að koma aftur á rafmagni. Erlent 20.10.2024 08:45
„Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur sakað Hezbollah um að reyna að ráða sig af dögum í dag eftir að dróna frá Líbanon var skotið í átt að heimili hans í bænum Caesarea. Hvorki forsætisráðherrann né kona hans voru heima og sakaði engan. Erlent 19.10.2024 22:17
Aftur rafmagnslaust á Kúbu Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á. Erlent 19.10.2024 13:36
Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sprengjudróni hæfði heimili Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, snemma í morgun. Um er að ræða hús hans í Sesareu í norðurhluta Ísraels. Erlent 19.10.2024 10:42
Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ „Skekkjumörkin eru yfirleitt í kringum tvö og hálft til þrjú og hálft prósent, þannig að þetta er allt innan skekkjumarka,“ sagði Friðjón R. Friðjónsson, sérlegur áhugamaður um bandarísk stjórnmál, í Baráttunni um Bandaríkin í vikunni. Erlent 19.10.2024 09:01
Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Leiðtogar Evrópusambandsins leita nú leiða til að draga úr flæði farand- og flóttafólks til heimsálfunnar. Stuðningur við slíkar aðgerðir hefur aukist töluvert og er sú aukning rakin til aukins fylgis fjar-hægri flokka í Evrópu, sem eru verulega mótfallnir fólksflutningum til Evrópu. Erlent 18.10.2024 17:02
Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18.10.2024 15:31
Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Elon Musk, einn auðugasti maður heims, bar í gær upp gamlar og ósannar samsæriskenningar um kosningasvik í forsetakosningunum 2020. Það gerði hann á kosningafundi fyrir Donald Trump í Pennsylvaníu og gaf hann meðal annars til kynna að kosningavélar Dominion Voting Systems hefðu verið notuð til kosningasvika. Erlent 18.10.2024 14:21
Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Saksóknarar í Noregi hafa fellt niður rannsókn á Tom Hagen, auðkýfingi, sem var sakaður um að myrða eiginkonu sína, Anne-Elisabeth Hagen. Engar sannanir hafi komið fram um að Hagen hafi borið ábyrgð á hvarfi hennar fyrir sex árum. Erlent 18.10.2024 10:04
Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur ákveðið að senda fjögur stórfylki, eða um tólf þúsund hermenn, til aðstoðar Rússa við innrás þeirra í Úkraínu. Kim sendi hóp sérveitarmanna tli Rússlands í ágúst þar sem þeir fengu fölsk skilríki og hljóta þjálfun, áður en þeir verða sendir til Úkraínu. Erlent 18.10.2024 09:51
Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Sænska öryggislögreglan telur að írönsk stjórnvöld hafi fengið þarlend glæpagengi til þess að ráðast á ísraels fyrirtæki og sendiskrifstofur á Norðurlöndum undanfarnar vikur. Gengin hafa notað unglinga sem handbendi sín í þeim árásum. Erlent 18.10.2024 09:35
Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Ísraelsher hefur birt myndskeið sem er sagt sýna hinstu stund Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas og skipuleggjanda árásanna 7. október. Erlent 18.10.2024 08:55
Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hvatt Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, til að horfa fram á við og taka næstu skref í átt að vopnahléi á Gasa, í kjölfar fregna af því að Ísraelsher hefði banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas. Erlent 18.10.2024 07:31
Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir fall leiðtoga Hamas Yahya Sinwar „upphafið að endinum“ en Ísraelar muni „ekki stöðva stríðið“. Erlent 17.10.2024 23:38
Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Ísraelski herinn hefur staðfest að þeir hafi banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas-samtakanna, í átökum á Gasaströndinni í gær. Lík hans fannst í dag og í DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að um hann hafi verið að ræða. Erlent 17.10.2024 17:52
Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31
„Einstök sýning“ á getu Bandaríkjanna í loftárásum Tvær B-2 sprengjuflugvélar voru í nótt notaðar til að varpa sprengjum á neðanjarðarbyrgi Húta í Jemen. Sprengjuflugvélarnar búa yfir tækni sem gerir erfitt að sjá þær á ratsjám og eru meðal háþróuðustu herflugvéla heims. Erlent 17.10.2024 11:35
Mætti á Fox í gær og á í viðræðum um viðtal við Rogan Kamala Harris, varaforseti Bandaríkjanna og forsetaefni Demókrataflokksins, var til viðtals á Fox News í gær og sitt sýnist hverjum um hvernig hún stóð sig. Erlent 17.10.2024 10:41
Biður um meiri pening vegna „fáránlegra“ laga Lögmaður Rex Heuermann, sem ákærður hefur verið fyrir sex morð í Gilgo Beach-málinu svokallaða, vill að lífsýni í málinu verði útilokuð frá réttarhöldunum. Í dómsal í Suffolk-sýslu í New York í gær, lýsti lögmaðurinn tækninni sem notuð var við að bendla Heuermann við morðin við „töfra“. Erlent 17.10.2024 10:22
Banna Ítölum að finna staðgöngumæður erlendis Ítalska þingið samþykkti bann við því að fólk leiti eftir staðgöngumæðrun erlendis í gær. Andstæðingar ríkisstjórnar Giorgiu Meloni forsætisráðherra segja lögunum beint að samkynja pörum. Erlent 17.10.2024 08:46
Hundrað ára Carter búinn að kjósa Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti sem varð hundrað ára á dögunum, er búinn að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Hann kaus með utankjörstaðaratkvæði, sem var lagt í pósthólf við dómshús í borginni Americus í Georgíuríki. Erlent 16.10.2024 21:52
Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. Erlent 16.10.2024 15:33
Opinberaði „siguráætlun“ sína á þingi Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kynnti á þingi landsins í morgun „siguráætlun“ sína. Í ávarpi á þinginu fór hann yfir helstu atriði áætlunarinnar og reyndi að stappa stálinu í þjóð sína. Áætlunin veltur að miklu leyti á bakhjörlum Úkraínu og skilyrðislausu boði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Erlent 16.10.2024 11:22
Klófestu leigumorðingja sem dulbjó sig sem gamlan mann Lögreglan í Serbíu handtók í gær leigumorðingja sem myrti mann í Belgrad fyrir skipulögð glæpasamtök árið 2021. Leigumorðinginn er sagður hafa dulbúið sig sem gamlan mann til þess að nálgast fórnarlambið. Erlent 16.10.2024 09:05
Metsekt fyrir að mismuna gyðingum og banna þeim að fljúga Bandaríska ríkið hefur sektað flugfélagið Lufthansa um fjórar milljónir dala fyrir að hafa bannað gyðingum að ganga um borð í vél félagsins árið 2022 þar sem sumir þeirra neituðu að bera sóttvarnagrímu. Erlent 16.10.2024 08:15
Lagði Trump til 10 milljarða króna á þremur mánuðum Auðjöfurinn Elon Musk gaf 75 milljónir dala, jafnvirði rúmlega 10 milljarða króna, í kosningasjóðinn America PAC á aðeins þremur mánuðum, sem fjármagnar aðgerðir til að fá kjósendur Donald Trump á kjörstað í barátturíkjunum sjö. Erlent 16.10.2024 07:09
Halda áfram árásum á Beirút en með gult spjald frá Bandaríkjunum Ísraelsher gerði loftárásir á skotmörk í Beirút, höfuðborg Líbanon, í morgun í fyrsta sinn í fimm daga. Samkvæmt hernum var ráðist gegn vopnageymslum Hezbollah í suðurhluta Beirút og var íbúum á svæðinu ráðlagt að forða sér áður en þær hófust. Erlent 16.10.2024 06:44
Hugmyndir uppi um „úrvinnslumiðstöðvar“ utan Evrópusambandsins Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur viðrað þá hugmynd að aðildarríkin horfi til þess að gera samninga um „úrvinnslumiðstöðvar“ fyrir hælisleitendur utan sambandsins. Erlent 16.10.2024 06:23