Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Móðir barns í leikskóla þar sem verkfall hefur staðið yfir í fjórar vikur, segir minnst þrjá foreldra hafa misst vinnuna vegna verkfallsins. Margir hafi klárað allt sumarorlof næsta árs, og flestir sjái fram á töluvert lægri útborgun mánaðarmótin fyrir jól. Innlent 26.11.2024 17:48 Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld Fundum samninganefnda kennara annars vegar og ríkis- og sveitarfélaga hins vegar í Karphúsinu var frestað um klukkan fjögur í dag. Ríkissáttasemjari segir nefndirnar eiga vinnufundi í fyrramálið en hittist svo hjá honum klukkan eitt á morgun. Innlent 26.11.2024 17:20 „Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út 3,800 tonna kvóta á djúpkarfa, en ráðlagður heildarafli Hafrannsóknarstofnunnar fyrir fiskveiðiárið er 0 tonn. Jón Gunnarsson, aðstoðarmaður matvælaráðherra, segir að djúpkarfi sé óhjákvæmilega veiddur sem meðafli, og með kvótanum sé hægt að nýta hann í verðmætasköpun. Innlent 26.11.2024 17:18 Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Skrifstofa Landskjörstjórnar fundaði nú síðdegis með formönnum yfirkjörstjórna landsbyggðarkjördæmanna þriggja, vegna aftakaveðurspár fyrir komandi kjördag. Framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar segir enn stefnt að því að kjörfundur fari fram alls staðar á laugardag, en hvorki fólk né atkvæði verði lögð í hættu. Innlent 26.11.2024 16:46 Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Nemendur í fjórða bekk Laugarnesskóla í Reykjavík munu flytja tímabundið í húsnæði KSÍ vegna framkvæmda í aðalbyggingu skólans. Innlent 26.11.2024 16:10 Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Virkni á gosstöðvunum hefur verið frekar stöðug síðan í gær samkvæmt nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur einnig fram að gosórói hafi haldist jafn síðan í gær, í takti við stöðuga gosvirkni í gígnum í nótt. Innlent 26.11.2024 15:54 Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið. Innlent 26.11.2024 15:18 Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Hópur kvikmyndagerðarmanna hefur lýst yfir stuðningi við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. Lilja kynnti á dögunum framtíðarsýn og aðgerðaáætlun í málefnum kvikmyndagerðar. Innlent 26.11.2024 14:51 Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Karlmaður hefur hlotið þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að taka þrjár myndir af berum kynfærum og rassi barnungs drengs á meðan hann svaf og síðan sent konu myndirnar á samskiptamiðlinum WhatsApp. Innlent 26.11.2024 14:22 Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Landskjörstjórn fundar nú síðdegis vegna slæmrar veðurspár á kjördag á Austurlandi og Norðvesturlandi. Innlent 26.11.2024 14:14 Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Kappleikarnir, öðruvísi og skemmtilegur kosningaþáttur, eru beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi í kvöld. Frambjóðendur tíu flokka mætast í myndveri og svara spurningum um þau mál sem helst brenna á ungu fólki. Innlent 26.11.2024 14:03 Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Rannsókn á margra milljóna króna þjófnaði í Hamraborg í Kópavogi, sem var framið í byrjun mars, er lokið og hefur verið sent til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 26.11.2024 13:06 Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins leggur til að fleiri heilbrigðisstéttum verði heimilt að gefa út vottorð í einstaka tilfellum og að dregið verði úr óþörfum vottorðaskrifum vegna stuttra veikindafjarvista frá skóla eða vinnu. Innlent 26.11.2024 13:03 Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Fyrsta skóflustungan að nýrri verknámsaðstöðu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík var tekin í morgun. Innlent 26.11.2024 12:44 Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Samninganefndir lækna og ríkis komu saman í Karphúsinu klukkan níu til að leggja lokahönd á kjarasamninga. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir líklegt að fundað verði í allan dag. Innlent 26.11.2024 12:32 Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með skýra mynd af atvikum þegar tæplega sjötug kona lést í Breiðholti í Reykjavík þann 13. október síðastliðinn. Sonur hennar er grunaður um að hafa ráðið henni bana. Innlent 26.11.2024 12:11 Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Um 43 prósent landsmanna vilja auka einkarekstur í heilbrigðiskerfinu en um 30 prósent halda rekstrarforminu óbreyttu. Alls vilja 27 prósent draga úr einkarekstri. Þá vilja 38 prósent auka einkarekstur í samgöngumálum og 28 prósent aukinn einkarekstur í menntakerfinu. Innlent 26.11.2024 12:02 Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Skeifukötturinn Diego er fundinn, heill á húfi. Hans hafði verið leitað af fjölda fólks síðan í fyrradag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir köttinn hafa verið tekinn ófrjálsri hendi, en hann fannst í heimahúsi í morgun. Innlent 26.11.2024 11:51 Svarar Kára fullum hálsi Snorri Másson, oddviti Miðflokksins í Reykjavík suður, telur það boða gott að Stefán heitinn Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, hafi vitjað sonar síns Kára Stefánssonar í draumi vegna þingframboðs Snorra. Innlent 26.11.2024 11:40 Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjarasamningsgerð í Karphúsinu en verið er að leggja lokahönd á samnig við lækna þar í dag. Innlent 26.11.2024 11:38 Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn Hvarf kattarins Diego er ekki formlega komið inn á borð lögreglu en fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leit að kettinum sem var numinn á brott úr Skeifunni í fyrradag. Sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu segist sjaldan hafa orðið vör við annan eins áhuga á leit að dýri. Innlent 26.11.2024 11:37 HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stendur fyrir hádegismálþingi með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram til Alþingis í komandi þingkosningum. Innlent 26.11.2024 11:32 Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins, sem gekkst við því í gær að hafa kostað færslu á Facebook-síðu flokksins í Suðurkjördæmi í óþökk fyrrum samherja sinna, stendur fast á sínu og sér lítið athugavert við það sem hann gerði. Hann segist eiga tilkall til síðunnar sem stofnandi hennar. Innlent 26.11.2024 11:09 Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Hneykslismál stjórnmálamanna hafa alls ekki jafn mikið vægi hjá kjósendum og þeim er gefið í stjórnmálaumræðunni og í fjölmiðlum. Þetta segir Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor, og Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, tekur undir. Innlent 26.11.2024 10:40 Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Skipað hefur verið í rannsóknarnefnd vegna snjóflóðsins í Súðavík í janúar árið 1995. Nefndinni er meðal annars ætlað að varpa ljósi á hvernig snjóflóðavörnum var háttað, almannavarnaaðgerðir í aðdraganda og kjölfar flóðsins og eftirfylgni stjórnvalda. Innlent 26.11.2024 10:30 Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur „Ertu búinn?“ spurði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í orðaskaki við Heimi Karlsson, einn þáttastjórnanda Bítisins á Bylgjunni, þegar síðarnefndi sagði marga velta því fyrir sér í hvað skattpeningarnir væru að fara. Innlent 26.11.2024 10:11 Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Kristín Edwald formaður landskjörstjórnar segir mikilvægt að fólk vandi sig í kjörklefanum. Það eigi bara að setja X við sitt framboð og vilji það breyta eða strika út megi aðeins gera það við það framboð sem þau kjósa. Kristín segir landskjörstjórn í góðu sambandi við Veðurstofuna og ef veður verði svo slæmt á laugardag að ekki verði hægt að kjósa alls staðar sé heimild til að fresta kosningum í allt að viku. Innlent 26.11.2024 08:56 Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Marín Þórsdóttir, verkefnastjóri heimferðar- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra, segir ríkja vantraust um störf deildarinnar sem hún vill eyða. Hún segir starfsmenn framfylgja erfiðum ákvörðunum en ekkert annað standi þeim til boða. Vilji fólk breyta verklaginu verði það að leita annað en til þeirra. Innlent 26.11.2024 08:11 Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan 3:45 í morgun vegna fiskibáts hafði misst vélarafl og var þá staddur um 22 sjómílur austur af Barðanum. Fjórir skipverjar voru um borð í fiskibátnum. Innlent 26.11.2024 07:54 Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar líkamsárás eftir að maður leitaði á lögreglustöð með talsverða áverka í nótt. Var hann fluttur á slysadeild. Innlent 26.11.2024 06:18 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Móðir barns í leikskóla þar sem verkfall hefur staðið yfir í fjórar vikur, segir minnst þrjá foreldra hafa misst vinnuna vegna verkfallsins. Margir hafi klárað allt sumarorlof næsta árs, og flestir sjái fram á töluvert lægri útborgun mánaðarmótin fyrir jól. Innlent 26.11.2024 17:48
Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld Fundum samninganefnda kennara annars vegar og ríkis- og sveitarfélaga hins vegar í Karphúsinu var frestað um klukkan fjögur í dag. Ríkissáttasemjari segir nefndirnar eiga vinnufundi í fyrramálið en hittist svo hjá honum klukkan eitt á morgun. Innlent 26.11.2024 17:20
„Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út 3,800 tonna kvóta á djúpkarfa, en ráðlagður heildarafli Hafrannsóknarstofnunnar fyrir fiskveiðiárið er 0 tonn. Jón Gunnarsson, aðstoðarmaður matvælaráðherra, segir að djúpkarfi sé óhjákvæmilega veiddur sem meðafli, og með kvótanum sé hægt að nýta hann í verðmætasköpun. Innlent 26.11.2024 17:18
Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Skrifstofa Landskjörstjórnar fundaði nú síðdegis með formönnum yfirkjörstjórna landsbyggðarkjördæmanna þriggja, vegna aftakaveðurspár fyrir komandi kjördag. Framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar segir enn stefnt að því að kjörfundur fari fram alls staðar á laugardag, en hvorki fólk né atkvæði verði lögð í hættu. Innlent 26.11.2024 16:46
Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Nemendur í fjórða bekk Laugarnesskóla í Reykjavík munu flytja tímabundið í húsnæði KSÍ vegna framkvæmda í aðalbyggingu skólans. Innlent 26.11.2024 16:10
Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Virkni á gosstöðvunum hefur verið frekar stöðug síðan í gær samkvæmt nýrri tilkynningu frá Veðurstofunni. Þar kemur einnig fram að gosórói hafi haldist jafn síðan í gær, í takti við stöðuga gosvirkni í gígnum í nótt. Innlent 26.11.2024 15:54
Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Foreldrum barna í leikskólanum Laugasól var tilkynnt í gær að járnbending húsnæðis leikskólans væri ekki góð. Verkfræðistofur leggja til að húsið verði rifið. Innlent 26.11.2024 15:18
Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Hópur kvikmyndagerðarmanna hefur lýst yfir stuðningi við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. Lilja kynnti á dögunum framtíðarsýn og aðgerðaáætlun í málefnum kvikmyndagerðar. Innlent 26.11.2024 14:51
Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Karlmaður hefur hlotið þriggja mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að taka þrjár myndir af berum kynfærum og rassi barnungs drengs á meðan hann svaf og síðan sent konu myndirnar á samskiptamiðlinum WhatsApp. Innlent 26.11.2024 14:22
Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Landskjörstjórn fundar nú síðdegis vegna slæmrar veðurspár á kjördag á Austurlandi og Norðvesturlandi. Innlent 26.11.2024 14:14
Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Kappleikarnir, öðruvísi og skemmtilegur kosningaþáttur, eru beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi í kvöld. Frambjóðendur tíu flokka mætast í myndveri og svara spurningum um þau mál sem helst brenna á ungu fólki. Innlent 26.11.2024 14:03
Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Rannsókn á margra milljóna króna þjófnaði í Hamraborg í Kópavogi, sem var framið í byrjun mars, er lokið og hefur verið sent til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 26.11.2024 13:06
Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins leggur til að fleiri heilbrigðisstéttum verði heimilt að gefa út vottorð í einstaka tilfellum og að dregið verði úr óþörfum vottorðaskrifum vegna stuttra veikindafjarvista frá skóla eða vinnu. Innlent 26.11.2024 13:03
Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Fyrsta skóflustungan að nýrri verknámsaðstöðu í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í Reykjavík var tekin í morgun. Innlent 26.11.2024 12:44
Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Samninganefndir lækna og ríkis komu saman í Karphúsinu klukkan níu til að leggja lokahönd á kjarasamninga. Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir líklegt að fundað verði í allan dag. Innlent 26.11.2024 12:32
Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með skýra mynd af atvikum þegar tæplega sjötug kona lést í Breiðholti í Reykjavík þann 13. október síðastliðinn. Sonur hennar er grunaður um að hafa ráðið henni bana. Innlent 26.11.2024 12:11
Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Um 43 prósent landsmanna vilja auka einkarekstur í heilbrigðiskerfinu en um 30 prósent halda rekstrarforminu óbreyttu. Alls vilja 27 prósent draga úr einkarekstri. Þá vilja 38 prósent auka einkarekstur í samgöngumálum og 28 prósent aukinn einkarekstur í menntakerfinu. Innlent 26.11.2024 12:02
Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Skeifukötturinn Diego er fundinn, heill á húfi. Hans hafði verið leitað af fjölda fólks síðan í fyrradag. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir köttinn hafa verið tekinn ófrjálsri hendi, en hann fannst í heimahúsi í morgun. Innlent 26.11.2024 11:51
Svarar Kára fullum hálsi Snorri Másson, oddviti Miðflokksins í Reykjavík suður, telur það boða gott að Stefán heitinn Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, hafi vitjað sonar síns Kára Stefánssonar í draumi vegna þingframboðs Snorra. Innlent 26.11.2024 11:40
Lokahönd lögð á kjarasamning lækna í Karphúsinu og Kappleikar í kvöld Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjarasamningsgerð í Karphúsinu en verið er að leggja lokahönd á samnig við lækna þar í dag. Innlent 26.11.2024 11:38
Þúsundir áhugasamra sjálfboðaliða en engin formleg lögreglurannsókn Hvarf kattarins Diego er ekki formlega komið inn á borð lögreglu en fjöldi sjálfboðaliða tekur þátt í leit að kettinum sem var numinn á brott úr Skeifunni í fyrradag. Sjálfboðaliði hjá Dýrfinnu segist sjaldan hafa orðið vör við annan eins áhuga á leit að dýri. Innlent 26.11.2024 11:37
HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Lögrétta, félag laganema við Háskólann í Reykjavík, stendur fyrir hádegismálþingi með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram til Alþingis í komandi þingkosningum. Innlent 26.11.2024 11:32
Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins, sem gekkst við því í gær að hafa kostað færslu á Facebook-síðu flokksins í Suðurkjördæmi í óþökk fyrrum samherja sinna, stendur fast á sínu og sér lítið athugavert við það sem hann gerði. Hann segist eiga tilkall til síðunnar sem stofnandi hennar. Innlent 26.11.2024 11:09
Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Hneykslismál stjórnmálamanna hafa alls ekki jafn mikið vægi hjá kjósendum og þeim er gefið í stjórnmálaumræðunni og í fjölmiðlum. Þetta segir Eiríkur Bergmann, stjórnmálafræðiprófessor, og Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, tekur undir. Innlent 26.11.2024 10:40
Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Skipað hefur verið í rannsóknarnefnd vegna snjóflóðsins í Súðavík í janúar árið 1995. Nefndinni er meðal annars ætlað að varpa ljósi á hvernig snjóflóðavörnum var háttað, almannavarnaaðgerðir í aðdraganda og kjölfar flóðsins og eftirfylgni stjórnvalda. Innlent 26.11.2024 10:30
Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur „Ertu búinn?“ spurði Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í orðaskaki við Heimi Karlsson, einn þáttastjórnanda Bítisins á Bylgjunni, þegar síðarnefndi sagði marga velta því fyrir sér í hvað skattpeningarnir væru að fara. Innlent 26.11.2024 10:11
Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Kristín Edwald formaður landskjörstjórnar segir mikilvægt að fólk vandi sig í kjörklefanum. Það eigi bara að setja X við sitt framboð og vilji það breyta eða strika út megi aðeins gera það við það framboð sem þau kjósa. Kristín segir landskjörstjórn í góðu sambandi við Veðurstofuna og ef veður verði svo slæmt á laugardag að ekki verði hægt að kjósa alls staðar sé heimild til að fresta kosningum í allt að viku. Innlent 26.11.2024 08:56
Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Marín Þórsdóttir, verkefnastjóri heimferðar- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra, segir ríkja vantraust um störf deildarinnar sem hún vill eyða. Hún segir starfsmenn framfylgja erfiðum ákvörðunum en ekkert annað standi þeim til boða. Vilji fólk breyta verklaginu verði það að leita annað en til þeirra. Innlent 26.11.2024 08:11
Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar í Neskaupstað var kölluð út um klukkan 3:45 í morgun vegna fiskibáts hafði misst vélarafl og var þá staddur um 22 sjómílur austur af Barðanum. Fjórir skipverjar voru um borð í fiskibátnum. Innlent 26.11.2024 07:54
Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar líkamsárás eftir að maður leitaði á lögreglustöð með talsverða áverka í nótt. Var hann fluttur á slysadeild. Innlent 26.11.2024 06:18