Innlent Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun. Innlent 26.11.2024 06:10 Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Fyrrverandi Miðflokksmaður, sem nú styður oddvita Framsóknar í Suðurkjördæmi af heilum hug, gengst við því að hafa birt færslu á síðu fyrrnefnda flokksins nokkrum vikum eftir brotthvarf hans þaðan. Færslan innihélt opið bréf þar sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði oddvita Miðflokksins í Reykjavík suður til syndanna. Innlent 26.11.2024 00:09 Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Stórkostlegar aðstæður hafa skapast í frostinu til skautaiðkunar og fluglendingar á Hafravatni. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur nýttu aðstæðurnar í dag til að æfa sig á meðan skautafólk lék sér á ísnum. Innlent 25.11.2024 21:01 Tvær á toppnum Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar. Innlent 25.11.2024 21:01 Gasmengun helsta hættan í Grindavík Virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni hefur ekki minnkað jafn hratt og í fyrri gosum og er hraunflæðið á við kröftugustu gosin í Fagradalsfjalli. Aðgengi að Grindavík var aukið á ný í dag. Innlent 25.11.2024 19:50 „Það má Guð vita“ Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Innlent 25.11.2024 19:05 Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Fjöldi sjálfboðaliða leggja hönd á plóg við leitina að kettinum Diego, einum frægasta ketti landsins, var numinn á brott úr versluninni A4 í Skeifunni í gær og ekkert hefur spurst til hans síðan. Atvikið náðist á öryggismyndavél en vinir og vandamenn kattarins vona að hann skili sér heill heim. Innlent 25.11.2024 19:01 „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Kári Stefánsson segir Snorra Másson, oddvita Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, vera búinn að koma sér út í erfiðar aðstæður. Snorri sé í flokki hverra stefnumál honum mislíkar og eigi erfitt með að horfast í augu við sjálfan sig. Innlent 25.11.2024 18:05 Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Við ræðum við Ástráð Haraldsson, ríkissáttasemjara, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 um stöðuna í lok dags. Innlent 25.11.2024 18:01 Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Fjöldi fólks tekur nú þátt í leit að kettinum Diego, sem hvarf í gærkvöldi. Talið er að honum hafi verið stolið, en vitnum ber ekki saman um hvort karl eða kona tók köttinn ófrjálsri hendi. Talskona dýravinasamtaka heitir viðkomandi fullum trúnaði, skili hann kettinum. Innlent 25.11.2024 17:55 Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni Hagstofunnar 750 þúsund krónur auk vaxta vegna uppsagnar hans frá stofnuninni árið 2015. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 25.11.2024 17:37 Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43 Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Jón Hjörleifur Stefánsson aðventisti segir hóp aðventista hafa kært leynisamning sem stjórnin gerði við Eden Mining, millilið sem hefur gert samning um efnissölu til Heidelberg. Þetta hljóti að setja yfirstandandi íbúakosningu um hvort Heidelberg fái að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn í uppnám. Innlent 25.11.2024 16:25 Enn talsverður kraftur í eldgosinu Frá því um kvöldmatarleytið í gær dró enn frekar úr gosóróa og sýnilegri virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni. Virknin náði aftur stöðugleika eftir miðnætti. Enn er talsverður kraftur í gosinu og hefur virknin ekki minnkað jafn hratt og í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 25.11.2024 16:00 Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Þó fyrirhugaðar Alþingiskosningar séu æsispennandi er ekki síður tekist hart á um önnur atkvæði íbúa í Ölfusi; hvort þeir munu samþykkja atvinnustarfsemi Heidelberg Materials í Þorlákshöfn eða ekki. Mikið er undir. Innlent 25.11.2024 15:44 Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, boðar dramatískar breytingar í tengslum við Flokk fólksins í næstu könnun. Ekki væri hægt að greina miklar breytingar að öðru leyti í könnunum sem sýndi umturnun á íslensku flokkakerfi. Innlent 25.11.2024 14:49 Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25.11.2024 14:32 Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu. Innlent 25.11.2024 14:22 Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Fréttir af hvarfi kattarins Diego vöktu athygli í gær en hann hefur verið sagður einn frægasti köttur landsins. Grunur er um að Diego hafi verið rænt í Skeifunni en kötturinn hefur lengi verið fastagestur í verslunum Hagkaupa og A4. Verslunarstjóri A4 í Skeifunni staðfestir að á öryggismyndavélum megi sjá hvar meintur ræningi hafi gengið inn í verslunina á sjöunda tímanum í gærkvöldi og haft köttinn með sér á brott. Innlent 25.11.2024 14:14 Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Lögreglumenn sem voru á leið um Sæbraut í Reykjavík að kvöldi mánudags í síðustu viku sáu skyndilega vígahnött á himni. Innlent 25.11.2024 13:34 Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Sara Þöll Finnbogadóttir hefur hlotið kjör í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins (e. European Youth Forum — YFJ), fyrst Íslendinga. YFJ eru stærstu regnhlífasamtök alþjóðlegra frjálsra félagasamtaka og landssambanda ungmennafélaga í Evrópu sem vinna að hagsmunum og réttindum ungs fólks. Sara var kjörin á aðalþingi samtakanna í Gent í Belgíu þann 22. nóvember. Innlent 25.11.2024 13:32 Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Jane Goodall, stofnandi Jane Goodall Institute og sérstakur sendiherra Sameinuðu þjóðanna fyrir friði, hvetur forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, og forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til að beita sér gegn hvalveiðum. Það gerir Goodall í aðsendri grein á Vísi í dag. Innlent 25.11.2024 13:04 Opna Grindavík á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið í samvinnu við Grindavíkurnefndina að auka aðgengi að Grindavíkurbæ. Bænum var lokað á miðvikudag þegar enn eitt eldgosið hófst á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 25.11.2024 13:03 Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Kosningavika er runninn upp. Landsmenn ganga að kjörborðinu næstkomandi laugardag og kjósa til Alþingis. Innlent 25.11.2024 12:28 Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Ráðgjafar-og greiningarstöð vantar allt tvö hundruð og fimmtíu milljónir í fjárveitingar til að geta staðið undir lögbundinni þjónustu að sögn forstjóra. Tilvísanir hafi aukist um 60 prósent síðustu ár á meðan hafi fjárveitingar verið skornar niður á fjárlögum. Verði ekki breyting þurfi stofnunin að skera niður þjónustu. Innlent 25.11.2024 12:18 Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Veðrið gæti sett strik í reikninginn á kjördag þegar spáð er leiðindaveðri um mest allt land sem gæti torveldað flutning atkvæða til talningastaða. Hátt í átján þúsund manns hafa nú þegar kosið utan kjörfundar. Innlent 25.11.2024 11:52 Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Andri Steinn Hilmarsson, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gerir athugasemd við frétt Vísis sem hann telur geta alið á misskilningi. Hann segir vert að taka vel utan um hvað má og hvað ekki má í kjörklefanum. Innlent 25.11.2024 11:46 Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Fertug íslensk kona sætir gæsluvarðhaldi á Tenerife á Spáni vegna gruns um að hafa ráðist á tengdamóður sína og mágkonu á föstudagskvöld. Vitni lýsir því að herbergi á hóteli fjölskyldunnar hafi verið þakið blóði eftir árásina. Innlent 25.11.2024 11:41 Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Rannsókn lögreglunnar á stunguárás við Skúlagötu í Reykjavík, sem átti sér stað á Menningarnótt, 24. ágúst síðastliðinn, er lokið. Lögregla hefur sent gögn málsins til Héraðssakóknara. Innlent 25.11.2024 11:40 Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjaradeilum í Karphúsinu. Innlent 25.11.2024 11:37 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun. Innlent 26.11.2024 06:10
Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Fyrrverandi Miðflokksmaður, sem nú styður oddvita Framsóknar í Suðurkjördæmi af heilum hug, gengst við því að hafa birt færslu á síðu fyrrnefnda flokksins nokkrum vikum eftir brotthvarf hans þaðan. Færslan innihélt opið bréf þar sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar sagði oddvita Miðflokksins í Reykjavík suður til syndanna. Innlent 26.11.2024 00:09
Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Stórkostlegar aðstæður hafa skapast í frostinu til skautaiðkunar og fluglendingar á Hafravatni. Félagar í Fisfélagi Reykjavíkur nýttu aðstæðurnar í dag til að æfa sig á meðan skautafólk lék sér á ísnum. Innlent 25.11.2024 21:01
Tvær á toppnum Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar. Innlent 25.11.2024 21:01
Gasmengun helsta hættan í Grindavík Virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni hefur ekki minnkað jafn hratt og í fyrri gosum og er hraunflæðið á við kröftugustu gosin í Fagradalsfjalli. Aðgengi að Grindavík var aukið á ný í dag. Innlent 25.11.2024 19:50
„Það má Guð vita“ Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Innlent 25.11.2024 19:05
Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Fjöldi sjálfboðaliða leggja hönd á plóg við leitina að kettinum Diego, einum frægasta ketti landsins, var numinn á brott úr versluninni A4 í Skeifunni í gær og ekkert hefur spurst til hans síðan. Atvikið náðist á öryggismyndavél en vinir og vandamenn kattarins vona að hann skili sér heill heim. Innlent 25.11.2024 19:01
„Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Kári Stefánsson segir Snorra Másson, oddvita Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, vera búinn að koma sér út í erfiðar aðstæður. Snorri sé í flokki hverra stefnumál honum mislíkar og eigi erfitt með að horfast í augu við sjálfan sig. Innlent 25.11.2024 18:05
Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Unnið er hörðum höndum að því að ná saman kjarasamningi við lækna sem reyndist flóknari en talið var í upphafi. Samningsaðilar eru þó vongóðir. Sömuleiðis eru bundnar vonir um að jákvæð niðurstaða náist í deilu sveitarfélaga og ríkis við kennara. Við ræðum við Ástráð Haraldsson, ríkissáttasemjara, í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 um stöðuna í lok dags. Innlent 25.11.2024 18:01
Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Fjöldi fólks tekur nú þátt í leit að kettinum Diego, sem hvarf í gærkvöldi. Talið er að honum hafi verið stolið, en vitnum ber ekki saman um hvort karl eða kona tók köttinn ófrjálsri hendi. Talskona dýravinasamtaka heitir viðkomandi fullum trúnaði, skili hann kettinum. Innlent 25.11.2024 17:55
Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Íslenska ríkið þarf að greiða fyrrverandi starfsmanni Hagstofunnar 750 þúsund krónur auk vaxta vegna uppsagnar hans frá stofnuninni árið 2015. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 25.11.2024 17:37
Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43
Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Jón Hjörleifur Stefánsson aðventisti segir hóp aðventista hafa kært leynisamning sem stjórnin gerði við Eden Mining, millilið sem hefur gert samning um efnissölu til Heidelberg. Þetta hljóti að setja yfirstandandi íbúakosningu um hvort Heidelberg fái að reisa verksmiðju í Þorlákshöfn í uppnám. Innlent 25.11.2024 16:25
Enn talsverður kraftur í eldgosinu Frá því um kvöldmatarleytið í gær dró enn frekar úr gosóróa og sýnilegri virkni eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni. Virknin náði aftur stöðugleika eftir miðnætti. Enn er talsverður kraftur í gosinu og hefur virknin ekki minnkað jafn hratt og í fyrri eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 25.11.2024 16:00
Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Þó fyrirhugaðar Alþingiskosningar séu æsispennandi er ekki síður tekist hart á um önnur atkvæði íbúa í Ölfusi; hvort þeir munu samþykkja atvinnustarfsemi Heidelberg Materials í Þorlákshöfn eða ekki. Mikið er undir. Innlent 25.11.2024 15:44
Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, boðar dramatískar breytingar í tengslum við Flokk fólksins í næstu könnun. Ekki væri hægt að greina miklar breytingar að öðru leyti í könnunum sem sýndi umturnun á íslensku flokkakerfi. Innlent 25.11.2024 14:49
Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25.11.2024 14:32
Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu. Innlent 25.11.2024 14:22
Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Fréttir af hvarfi kattarins Diego vöktu athygli í gær en hann hefur verið sagður einn frægasti köttur landsins. Grunur er um að Diego hafi verið rænt í Skeifunni en kötturinn hefur lengi verið fastagestur í verslunum Hagkaupa og A4. Verslunarstjóri A4 í Skeifunni staðfestir að á öryggismyndavélum megi sjá hvar meintur ræningi hafi gengið inn í verslunina á sjöunda tímanum í gærkvöldi og haft köttinn með sér á brott. Innlent 25.11.2024 14:14
Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Lögreglumenn sem voru á leið um Sæbraut í Reykjavík að kvöldi mánudags í síðustu viku sáu skyndilega vígahnött á himni. Innlent 25.11.2024 13:34
Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Sara Þöll Finnbogadóttir hefur hlotið kjör í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins (e. European Youth Forum — YFJ), fyrst Íslendinga. YFJ eru stærstu regnhlífasamtök alþjóðlegra frjálsra félagasamtaka og landssambanda ungmennafélaga í Evrópu sem vinna að hagsmunum og réttindum ungs fólks. Sara var kjörin á aðalþingi samtakanna í Gent í Belgíu þann 22. nóvember. Innlent 25.11.2024 13:32
Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Jane Goodall, stofnandi Jane Goodall Institute og sérstakur sendiherra Sameinuðu þjóðanna fyrir friði, hvetur forsætisráðherra, Bjarna Benediktsson, og forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til að beita sér gegn hvalveiðum. Það gerir Goodall í aðsendri grein á Vísi í dag. Innlent 25.11.2024 13:04
Opna Grindavík á ný Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið í samvinnu við Grindavíkurnefndina að auka aðgengi að Grindavíkurbæ. Bænum var lokað á miðvikudag þegar enn eitt eldgosið hófst á Sundhnúksgígaröðinni. Innlent 25.11.2024 13:03
Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Kosningavika er runninn upp. Landsmenn ganga að kjörborðinu næstkomandi laugardag og kjósa til Alþingis. Innlent 25.11.2024 12:28
Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Ráðgjafar-og greiningarstöð vantar allt tvö hundruð og fimmtíu milljónir í fjárveitingar til að geta staðið undir lögbundinni þjónustu að sögn forstjóra. Tilvísanir hafi aukist um 60 prósent síðustu ár á meðan hafi fjárveitingar verið skornar niður á fjárlögum. Verði ekki breyting þurfi stofnunin að skera niður þjónustu. Innlent 25.11.2024 12:18
Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Veðrið gæti sett strik í reikninginn á kjördag þegar spáð er leiðindaveðri um mest allt land sem gæti torveldað flutning atkvæða til talningastaða. Hátt í átján þúsund manns hafa nú þegar kosið utan kjörfundar. Innlent 25.11.2024 11:52
Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Andri Steinn Hilmarsson, starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, gerir athugasemd við frétt Vísis sem hann telur geta alið á misskilningi. Hann segir vert að taka vel utan um hvað má og hvað ekki má í kjörklefanum. Innlent 25.11.2024 11:46
Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Fertug íslensk kona sætir gæsluvarðhaldi á Tenerife á Spáni vegna gruns um að hafa ráðist á tengdamóður sína og mágkonu á föstudagskvöld. Vitni lýsir því að herbergi á hóteli fjölskyldunnar hafi verið þakið blóði eftir árásina. Innlent 25.11.2024 11:41
Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Rannsókn lögreglunnar á stunguárás við Skúlagötu í Reykjavík, sem átti sér stað á Menningarnótt, 24. ágúst síðastliðinn, er lokið. Lögregla hefur sent gögn málsins til Héraðssakóknara. Innlent 25.11.2024 11:40
Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á kjaradeilum í Karphúsinu. Innlent 25.11.2024 11:37