Tónlist Plötusamningur við 8MM Blúsarinn Elliði Tumason, eða ET Tumason eins og hann kallar sig, hefur skrifað undir plötusamning við þýska útgáfufyrirtækið 8MM Musik, sem hefur einnig Singapore Sling á sínum snærum. Tónlist 18.5.2007 10:00 Mögnuð tónlistarblanda Goran Bregovic leikur ásamt Wedding & Funeral Band í Laugardalshöllinni annað kvöld. Tónleikarnir eru samvinnuverkefni Vorblóts og Listahátíðar í Reykjavík. Trausti Júlíusson leit yfir fjölbreyttan feril Gorans sem spannar yfir 30 ár. Tónlist 18.5.2007 09:00 Sýnir þungarokksþætti á Youtube Gunnar Guðbjörnsson gerir reglulega þætti um íslenskar þungarokkshljómsveitir og setur þá á heimasíðuna Youtube, einn í hverri viku. Changer reið á vaðið og á eftir henni kom hljómsveitin Severed Crotch. Næst á dagskrá eru síðan Momentum og I Adapt. Tónlist 18.5.2007 08:45 Lög níunda áratugarins Safnplatan „100 íslensk 80’s lög á 5 geislaplötum“ kemur út mánudaginn 4. júní. Plöturnar eru fimm saman í einum pakka með hundrað lögum frá níunda áratugnum og eru öll með íslenskum flytjendum. Tónlist 18.5.2007 08:45 Gróska í óperusmíð Heimsókn óperustjóra sem halda samráðsfund hér á landi um framtíðarhorfur listgreinarinnar er kærkomið innlegg í umræðu um tónlistarhús og óperuflutning. Í dag verða einnig kynntar þrjár nýjar íslenskar óperur sem eru í smíðum. Tónlist 18.5.2007 07:00 Fallegur fjársjóður Bigga Birgir Örn Steinarsson hefur fengið góða dóma fyrir fyrstu sólóplötu sína Id í kanadíska tímaritinu Inside Entertainment og í tímaritinu Soundcheck. Platan kemur út í Bretlandi í júní en kom út hér á landi á síðasta ári. Tónlist 18.5.2007 06:45 Rúnk gefur af sér Ég hrjáðist eitt sinn af sjúkdómnum „ungur og vitlaus” (og geri líklegast enn) og þess vegna, er ég var spurður að því í vetur hvort ég fílaði ekki sveitina Rúnk, spurði ég kæruleysislega til baka: „Rúnk, var það ekki bara einhver B pönksveit?” Nei, sú var svo sannarlega ekki raunin og fyrir þrekvirki góðra manna komst ég loks yfir einu breiðskífu Rúnks (fyrir utan eina jólaplötu), Ghengi Dahls. Tónlist 18.5.2007 06:30 Amen frá Trössum komin út Þungarokksveitin Trassar hefur gefið út sína fyrstu plötu, Amen. Trassar var stofnuð fyrir tuttugu árum og telst því vera ein fyrsta þungarokksveit landsins. Tónlist 18.5.2007 06:00 Feist: The Reminder - Fjórar stjörnur Kanadíska söngkonan Feist er án alls vafa ein mest sjarmerandi tónlistarkona sem komið hefur fram síðustu ár. (Leslie) Feist hefur unnið með fjölmörgum frábærum listamönnum að undanförnu og má þar helst nefna Peaches, Kings of Convenience og síðast en ekki síst Broken Social Scene. Tónlist 18.5.2007 06:00 Stafrænn McCartney Öll lög sem Paul McCartney hefur gefið út á sólóferli sínum og með hljómsveitinni Wings verða fáanleg í stafrænu formi á netinu á næstunni. Ekki hefur þó enn verið ákveðið hvort eða hvenær plötur Bítlanna verði fáanlegar í stafrænni útgáfu. Tónlist 18.5.2007 03:00 Trentemøller á morgun Danski tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Trentemøller spilar á Gauknum annað kvöld. Tónlist 18.5.2007 01:00 Black Rebel Motorcycle Club: Baby 81- þrjár störnur Eftir frábærar tvær fyrstu plötur steig Black Rebel Motorcycle Club heldur betur feilspor á síðustu plötu sinni, Howl. Í hálfgerðu hrokakasti ætlaði sveitin að setja saman tímamótaverk þar sem gospel, blús, sveitatónlist og rokk áttu að mynda ómótstæðilega heild en líklegast fór minnst fyrir því síðastnefnda og útkoman var langt því frá nógu aðlaðandi. Platan átti þó sína spretti og sýndi að BRMC er hljómsveit í fremstu röð. Tónlist 17.5.2007 15:00 Groban bræddi íslensku kvenþjóðina Bandaríski hjartaknúsarinn Josh Groban hélt vel heppnaða tónleika í Laugardalshöll í fyrrakvöld þar sem hann söng öll sín frægustu lög. Húsfyllir var í salnum og skemmti fólk sér hið besta. Tónlist 17.5.2007 12:30 Malta vill banna símakosningu Malta hefur óskað eftir því að nokkrum þjóðum frá Austur-Evrópu sem taka þátt í Eurovision verði bannað að taka þátt í símakosningu. Vill Robert Abela, yfirmaður Eurovision á Möltu, að rannsakað verði hvernig kosning þessara þjóða fari fram því stigagjöf margra þeirra sé ekki einungis byggð á kosningu almennings. Tónlist 17.5.2007 10:45 Silvía Nótt seld til Svíþjóðar Hópnum sem stendur að baki Silvíu Nótt hefur borist tilboð frá sænsku sjónvarpsstöðinni TV4 en hún er stærsta einkarekna sjónvarpsstöðin þar í landi. Gaukur Úlfarsson, leikstjóri þáttanna, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið og sagði þetta vissulega mikil gleðitíðindi. Tónlist 17.5.2007 10:15 Mótetta og Morthens Nú er tími tónleikanna og þá einkum þeirra sem kenndir eru við burtfararpróf. Í dag heldur Rósa Jóhannesdóttir einsöngstónleika í Áskirkju ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara. Rósa lýkur um þessar mundir burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík. Tónlist 17.5.2007 09:30 Góður gestur Orgelsnillingurinn Michael Radulescu heldur tvenna tónleika hér á landi, þá fyrri í Langholtskirkju í kvöld en þá síðari í Hallgrímskirkju á sunnudag. Radulescu hefur starfað sem prófessor í organleik við Tónlistarháskólann í Vínarborg frá árinu 1968 en hann er auk þess mjög flytjandi. Ferðalag hans hingað er fyrir milligöngu Kórs Langholtskirkju, Listvinafélags Hallgrímskirkju og Tónskóla þjóðkirkjunnar. Tónlist 17.5.2007 09:00 Til heiðurs Douglas Kvintett Andrésar Þórs leikur tónlist eftir trompetleikarann Dave Douglas á tónleikum Djassklúbbsins Múlans á DOMO í kvöld kl. 21. Ásamt Andrési sem leikur á gítar skipa kvintettinn þeir, Sigurður Flosason á altsaxófón, Eiríkur Orri Ólafsson á trompet, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Tónlist 17.5.2007 05:00 Wulfgang - Tvær stjörnur Alls hafa þrjú lög með hinni efnilegu Wulfgang fengið útvarpsspilun. Að mínu mati hafa þau aldrei gefið neitt til kynna annað en að sveitin hafi örlítið fram að færa en lítið meira en það. Annað efni á plötunni gefur manni heldur ekki ástæðu til þess að hampa Wulfgang á neinn sérstakan hátt. Tónlist 16.5.2007 09:15 Putumayo gefur út Tómas R. Einarsson Lög eftir Tómas R. Einarsson eru væntanlega á tveimur erlendum safndiskum á næstunni. Annars vegar á safndisk sem kólumbíski plötusnúðurinn DJ El Chino og kemur lagið af disknum Romm Tomm Tomm og er það dæmi um velheppnaða evrópska latínska tónlist. Hins vegar kemur lag eftir Tómas út á safndisk frá útgáfunni Putumayo World Music og er það af disknum Havana. Tónlist 14.5.2007 10:40 Samdi nýtt stef fyrir Ríkisútvarpið „Þetta er stef sem ég samdi síðasta sumar,“ segir Sveinbjörn Thorarensen, betur þekktur sem Hermigervill, sem samdi nýtt stef sem hljóma mun undir samlesnu auglýsingunum á Rás eitt og tvö. „Ég fékk Björn Thorarensen, pabba minn til að spila á hljómborð fyrir mig. Þannig að þetta er svona feðga samvinna. Hann spilaði með Mezzoforte í gamla daga og kemur með smá áhrif þaðan. Sjálfur spilaði ég á gítar.“ Tónlist 14.5.2007 07:00 Fönkskotin tónlist Platan Fnykur með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar kemur út á föstudag á vegum SJS Musik. Sama dag heldur Stórsveitin útgáfutónleika á tónlistarhátíðinni Vorblóti. Tónlist 14.5.2007 02:00 Líf og fjör á vorhátíð Vorhátíð Laugarneshverfis hefst klukkan 14 í dag. „Þetta er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem börnin eru í forgrunni,“ sagði séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Laugarneskirkju, sem verður kynnir á hátíðinni. Tónlist 13.5.2007 11:30 Tónamínútur fyrir flautu og píanó Verk Atla Heimis Sveinssonar, Tónamínútur, verður flutt á tónleikum í Þjóðleikhúsinu á morgun í tilefni af Listahátíð í Reykjavík. Tónamínútur er verk fyrir einleiksflautu og flautu og píanó en flytjendur verða Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og tónskáldið sjálft. Tónlist 12.5.2007 14:15 Tilraunakenndari Leaves Hljómsveitin Leaves er komin langt með upptökur á sinni þriðju plötu. Arnar Guðjónsson söngvari segir tónlistina tilraunakenndari en áður. „Við ætlum ekkert að gefa út fyrr en við erum orðnir ánægðir. Við ætlum að taka upp tvö lög í viðbót áður en við segjum þetta gott,“ segir Arnar Guðjónsson, söngvari Leaves. Tónlist 12.5.2007 13:30 Spáir tveimur undankeppnum að ári „Þetta er nákvæmlega það sem ég spáði fyrir um fyrir þremur árum,“ sagði Jónatan Garðarsson, þaulreyndur Eurovision-spekingur, um úrslitin í undankeppni Eurovision. Mikillar óánægju hefur orðið vart bæði á Íslandi og í löndum á borð við Noreg, Danmörku og Holland, þar sem enginn keppandi frá vesturhluta Evrópu komst áfram. Tónlist 12.5.2007 13:00 Þrír rómantískir menn Saxófónleikarinn Sigurður Flosason og píanóleikarinn Kjartan Valdemarsson halda tónleika með völdum sönglögum eftir Franz Schubert í eigin útsetningum í Laugarneskirkju kl. 16 í dag. Þar geta íbúar á höfuðborgarsvæðinu róað taugar sínar á kjördag og varið innilegri klukkustund með með þremur rómantískum karlmönnum: Kjartani, Sigurði og Franz. Tónlist 12.5.2007 12:45 Kvöldmessa og vorhátíð Síðasta kvöldmessa vetrarins í Laugarneskirkju verður flutt annað kvöld að lokinni vorhátíð safnaðarins. Þar verður flutt Misa criolla, argentínsk messa eftir Ariel Ramírez, í stað hefðbundinna messuliða og auk þess sungnir suðrænir sálmar til þess að æsa upp sumarskapið. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Tónlist 12.5.2007 11:30 Minntust Syd Barrett Meðlimir Pink Floyd stigu allir á svið á minningartónleikum um Syd Barrett, fyrrverandi liðsmann sveitarinnar, í London fyrir skömmu. Roger Waters, sem hélt tónleika í Egilshöll á síðasta ári, spilaði einn á sviðinu en David Gilmore spilaði með trommaranum Nick Mason og hljómborðsleikaranum Rick Wright sem báðir voru í Pink Floyd. Gilmore og félagar spiluðu nokkur lög, þar á meðal fyrsta smáskífulag Pink Floyd, Arnold Layne. Tónlist 12.5.2007 11:15 múm í september Hljómsveitin múm hefur lokið upptökum á sinni fjórðu hljóðversplötu og er hún væntanleg í búðir 24. september. „Hún er töluvert skemmtilegri en platan á undan [Summer Make Good]. Hún er miklu lausari í sér. Við slepptum okkur miklu meira við hana,“ segir Örvar Þóreyjarson Smárason, meðlimur múm. Tónlist 11.5.2007 09:15 « ‹ 198 199 200 201 202 203 204 205 206 … 226 ›
Plötusamningur við 8MM Blúsarinn Elliði Tumason, eða ET Tumason eins og hann kallar sig, hefur skrifað undir plötusamning við þýska útgáfufyrirtækið 8MM Musik, sem hefur einnig Singapore Sling á sínum snærum. Tónlist 18.5.2007 10:00
Mögnuð tónlistarblanda Goran Bregovic leikur ásamt Wedding & Funeral Band í Laugardalshöllinni annað kvöld. Tónleikarnir eru samvinnuverkefni Vorblóts og Listahátíðar í Reykjavík. Trausti Júlíusson leit yfir fjölbreyttan feril Gorans sem spannar yfir 30 ár. Tónlist 18.5.2007 09:00
Sýnir þungarokksþætti á Youtube Gunnar Guðbjörnsson gerir reglulega þætti um íslenskar þungarokkshljómsveitir og setur þá á heimasíðuna Youtube, einn í hverri viku. Changer reið á vaðið og á eftir henni kom hljómsveitin Severed Crotch. Næst á dagskrá eru síðan Momentum og I Adapt. Tónlist 18.5.2007 08:45
Lög níunda áratugarins Safnplatan „100 íslensk 80’s lög á 5 geislaplötum“ kemur út mánudaginn 4. júní. Plöturnar eru fimm saman í einum pakka með hundrað lögum frá níunda áratugnum og eru öll með íslenskum flytjendum. Tónlist 18.5.2007 08:45
Gróska í óperusmíð Heimsókn óperustjóra sem halda samráðsfund hér á landi um framtíðarhorfur listgreinarinnar er kærkomið innlegg í umræðu um tónlistarhús og óperuflutning. Í dag verða einnig kynntar þrjár nýjar íslenskar óperur sem eru í smíðum. Tónlist 18.5.2007 07:00
Fallegur fjársjóður Bigga Birgir Örn Steinarsson hefur fengið góða dóma fyrir fyrstu sólóplötu sína Id í kanadíska tímaritinu Inside Entertainment og í tímaritinu Soundcheck. Platan kemur út í Bretlandi í júní en kom út hér á landi á síðasta ári. Tónlist 18.5.2007 06:45
Rúnk gefur af sér Ég hrjáðist eitt sinn af sjúkdómnum „ungur og vitlaus” (og geri líklegast enn) og þess vegna, er ég var spurður að því í vetur hvort ég fílaði ekki sveitina Rúnk, spurði ég kæruleysislega til baka: „Rúnk, var það ekki bara einhver B pönksveit?” Nei, sú var svo sannarlega ekki raunin og fyrir þrekvirki góðra manna komst ég loks yfir einu breiðskífu Rúnks (fyrir utan eina jólaplötu), Ghengi Dahls. Tónlist 18.5.2007 06:30
Amen frá Trössum komin út Þungarokksveitin Trassar hefur gefið út sína fyrstu plötu, Amen. Trassar var stofnuð fyrir tuttugu árum og telst því vera ein fyrsta þungarokksveit landsins. Tónlist 18.5.2007 06:00
Feist: The Reminder - Fjórar stjörnur Kanadíska söngkonan Feist er án alls vafa ein mest sjarmerandi tónlistarkona sem komið hefur fram síðustu ár. (Leslie) Feist hefur unnið með fjölmörgum frábærum listamönnum að undanförnu og má þar helst nefna Peaches, Kings of Convenience og síðast en ekki síst Broken Social Scene. Tónlist 18.5.2007 06:00
Stafrænn McCartney Öll lög sem Paul McCartney hefur gefið út á sólóferli sínum og með hljómsveitinni Wings verða fáanleg í stafrænu formi á netinu á næstunni. Ekki hefur þó enn verið ákveðið hvort eða hvenær plötur Bítlanna verði fáanlegar í stafrænni útgáfu. Tónlist 18.5.2007 03:00
Trentemøller á morgun Danski tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Trentemøller spilar á Gauknum annað kvöld. Tónlist 18.5.2007 01:00
Black Rebel Motorcycle Club: Baby 81- þrjár störnur Eftir frábærar tvær fyrstu plötur steig Black Rebel Motorcycle Club heldur betur feilspor á síðustu plötu sinni, Howl. Í hálfgerðu hrokakasti ætlaði sveitin að setja saman tímamótaverk þar sem gospel, blús, sveitatónlist og rokk áttu að mynda ómótstæðilega heild en líklegast fór minnst fyrir því síðastnefnda og útkoman var langt því frá nógu aðlaðandi. Platan átti þó sína spretti og sýndi að BRMC er hljómsveit í fremstu röð. Tónlist 17.5.2007 15:00
Groban bræddi íslensku kvenþjóðina Bandaríski hjartaknúsarinn Josh Groban hélt vel heppnaða tónleika í Laugardalshöll í fyrrakvöld þar sem hann söng öll sín frægustu lög. Húsfyllir var í salnum og skemmti fólk sér hið besta. Tónlist 17.5.2007 12:30
Malta vill banna símakosningu Malta hefur óskað eftir því að nokkrum þjóðum frá Austur-Evrópu sem taka þátt í Eurovision verði bannað að taka þátt í símakosningu. Vill Robert Abela, yfirmaður Eurovision á Möltu, að rannsakað verði hvernig kosning þessara þjóða fari fram því stigagjöf margra þeirra sé ekki einungis byggð á kosningu almennings. Tónlist 17.5.2007 10:45
Silvía Nótt seld til Svíþjóðar Hópnum sem stendur að baki Silvíu Nótt hefur borist tilboð frá sænsku sjónvarpsstöðinni TV4 en hún er stærsta einkarekna sjónvarpsstöðin þar í landi. Gaukur Úlfarsson, leikstjóri þáttanna, staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið og sagði þetta vissulega mikil gleðitíðindi. Tónlist 17.5.2007 10:15
Mótetta og Morthens Nú er tími tónleikanna og þá einkum þeirra sem kenndir eru við burtfararpróf. Í dag heldur Rósa Jóhannesdóttir einsöngstónleika í Áskirkju ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara. Rósa lýkur um þessar mundir burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík. Tónlist 17.5.2007 09:30
Góður gestur Orgelsnillingurinn Michael Radulescu heldur tvenna tónleika hér á landi, þá fyrri í Langholtskirkju í kvöld en þá síðari í Hallgrímskirkju á sunnudag. Radulescu hefur starfað sem prófessor í organleik við Tónlistarháskólann í Vínarborg frá árinu 1968 en hann er auk þess mjög flytjandi. Ferðalag hans hingað er fyrir milligöngu Kórs Langholtskirkju, Listvinafélags Hallgrímskirkju og Tónskóla þjóðkirkjunnar. Tónlist 17.5.2007 09:00
Til heiðurs Douglas Kvintett Andrésar Þórs leikur tónlist eftir trompetleikarann Dave Douglas á tónleikum Djassklúbbsins Múlans á DOMO í kvöld kl. 21. Ásamt Andrési sem leikur á gítar skipa kvintettinn þeir, Sigurður Flosason á altsaxófón, Eiríkur Orri Ólafsson á trompet, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Tónlist 17.5.2007 05:00
Wulfgang - Tvær stjörnur Alls hafa þrjú lög með hinni efnilegu Wulfgang fengið útvarpsspilun. Að mínu mati hafa þau aldrei gefið neitt til kynna annað en að sveitin hafi örlítið fram að færa en lítið meira en það. Annað efni á plötunni gefur manni heldur ekki ástæðu til þess að hampa Wulfgang á neinn sérstakan hátt. Tónlist 16.5.2007 09:15
Putumayo gefur út Tómas R. Einarsson Lög eftir Tómas R. Einarsson eru væntanlega á tveimur erlendum safndiskum á næstunni. Annars vegar á safndisk sem kólumbíski plötusnúðurinn DJ El Chino og kemur lagið af disknum Romm Tomm Tomm og er það dæmi um velheppnaða evrópska latínska tónlist. Hins vegar kemur lag eftir Tómas út á safndisk frá útgáfunni Putumayo World Music og er það af disknum Havana. Tónlist 14.5.2007 10:40
Samdi nýtt stef fyrir Ríkisútvarpið „Þetta er stef sem ég samdi síðasta sumar,“ segir Sveinbjörn Thorarensen, betur þekktur sem Hermigervill, sem samdi nýtt stef sem hljóma mun undir samlesnu auglýsingunum á Rás eitt og tvö. „Ég fékk Björn Thorarensen, pabba minn til að spila á hljómborð fyrir mig. Þannig að þetta er svona feðga samvinna. Hann spilaði með Mezzoforte í gamla daga og kemur með smá áhrif þaðan. Sjálfur spilaði ég á gítar.“ Tónlist 14.5.2007 07:00
Fönkskotin tónlist Platan Fnykur með Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar kemur út á föstudag á vegum SJS Musik. Sama dag heldur Stórsveitin útgáfutónleika á tónlistarhátíðinni Vorblóti. Tónlist 14.5.2007 02:00
Líf og fjör á vorhátíð Vorhátíð Laugarneshverfis hefst klukkan 14 í dag. „Þetta er sannkölluð fjölskylduhátíð þar sem börnin eru í forgrunni,“ sagði séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Laugarneskirkju, sem verður kynnir á hátíðinni. Tónlist 13.5.2007 11:30
Tónamínútur fyrir flautu og píanó Verk Atla Heimis Sveinssonar, Tónamínútur, verður flutt á tónleikum í Þjóðleikhúsinu á morgun í tilefni af Listahátíð í Reykjavík. Tónamínútur er verk fyrir einleiksflautu og flautu og píanó en flytjendur verða Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og tónskáldið sjálft. Tónlist 12.5.2007 14:15
Tilraunakenndari Leaves Hljómsveitin Leaves er komin langt með upptökur á sinni þriðju plötu. Arnar Guðjónsson söngvari segir tónlistina tilraunakenndari en áður. „Við ætlum ekkert að gefa út fyrr en við erum orðnir ánægðir. Við ætlum að taka upp tvö lög í viðbót áður en við segjum þetta gott,“ segir Arnar Guðjónsson, söngvari Leaves. Tónlist 12.5.2007 13:30
Spáir tveimur undankeppnum að ári „Þetta er nákvæmlega það sem ég spáði fyrir um fyrir þremur árum,“ sagði Jónatan Garðarsson, þaulreyndur Eurovision-spekingur, um úrslitin í undankeppni Eurovision. Mikillar óánægju hefur orðið vart bæði á Íslandi og í löndum á borð við Noreg, Danmörku og Holland, þar sem enginn keppandi frá vesturhluta Evrópu komst áfram. Tónlist 12.5.2007 13:00
Þrír rómantískir menn Saxófónleikarinn Sigurður Flosason og píanóleikarinn Kjartan Valdemarsson halda tónleika með völdum sönglögum eftir Franz Schubert í eigin útsetningum í Laugarneskirkju kl. 16 í dag. Þar geta íbúar á höfuðborgarsvæðinu róað taugar sínar á kjördag og varið innilegri klukkustund með með þremur rómantískum karlmönnum: Kjartani, Sigurði og Franz. Tónlist 12.5.2007 12:45
Kvöldmessa og vorhátíð Síðasta kvöldmessa vetrarins í Laugarneskirkju verður flutt annað kvöld að lokinni vorhátíð safnaðarins. Þar verður flutt Misa criolla, argentínsk messa eftir Ariel Ramírez, í stað hefðbundinna messuliða og auk þess sungnir suðrænir sálmar til þess að æsa upp sumarskapið. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Tónlist 12.5.2007 11:30
Minntust Syd Barrett Meðlimir Pink Floyd stigu allir á svið á minningartónleikum um Syd Barrett, fyrrverandi liðsmann sveitarinnar, í London fyrir skömmu. Roger Waters, sem hélt tónleika í Egilshöll á síðasta ári, spilaði einn á sviðinu en David Gilmore spilaði með trommaranum Nick Mason og hljómborðsleikaranum Rick Wright sem báðir voru í Pink Floyd. Gilmore og félagar spiluðu nokkur lög, þar á meðal fyrsta smáskífulag Pink Floyd, Arnold Layne. Tónlist 12.5.2007 11:15
múm í september Hljómsveitin múm hefur lokið upptökum á sinni fjórðu hljóðversplötu og er hún væntanleg í búðir 24. september. „Hún er töluvert skemmtilegri en platan á undan [Summer Make Good]. Hún er miklu lausari í sér. Við slepptum okkur miklu meira við hana,“ segir Örvar Þóreyjarson Smárason, meðlimur múm. Tónlist 11.5.2007 09:15