Sýknaður af manndrápsákæru 22. desember 2004 00:01
Tvítugur maður var sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Maðurinn var talinn hafa ekið bifreið sinni of hratt miðað við aðstæður og ekki gætt nægrar varúðar þegar árekstur við aðra bifreið olli banaslysi. Áreksturinn varð á Reykjanesbraut þann 24. september í fyrra, skammt frá gatnamótunum við Grindavíkurveg, en þar missti maðurinn stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún fór hægra megin út í vegöxlina, rakst á ljósastaur og kastaðist yfir á mótlæga akrein á aðra bifreið sem kom þar að. Ökumaður þeirrar bifreiðar lést af völdum áverka sem hann fékk. Í dómnum segir að ekki hafi verið upplýst á óyggjandi hátt að maðurinn hafi sýnt af sér refsivert gáleysi í umferðinni. Þá sé óupplýst hvers vegna hann missti stjórn á bifreið sinni; ekki sé loku fyrir það skotið að bifreiðin hafi bilað skömmu fyrir áreksturinn eða hjólbarði sprungið. Maðurinn var því sýknaður af ákærunni og ríkissjóði gert að greiða sakarkostnað, þar á meðal málsvarnarlaun verjanda.
Dómsmál Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Innlent Kanónurnar sem eru að hverfa Innlent „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Innlent Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Innlent Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Innlent Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Innlent Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins Innlent Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Innlent „Ég byrja harður og svo er ég bara grillaður í restina“ Innlent „Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Innlent Fleiri fréttir Stórsigur stjórnarandstöðu, fyrstu viðbrögð og stemning fram á nótt Væri æskilegt að geta séð niðurstöður eftir kjörstöðum „Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Sex flokkar með þingmann hver Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða „Þannig fór um sjóferð þá“ Framsókn: Það verður alltaf sviðasulta í kæliborðinu Boltinn kominn til þeirra sem unnu kosningarnar „Mjög skýrt ákall um breytingar“ segir Kristrún um stjórnarmyndun Orðlaus yfir sigrinum: „Þetta er með ólíkindum“ „Þjóðin er að refsa stjórnarflokkunum grimmilega“ Nú reynir á konurnar þrjár Formenn flokkanna í Sprengisandi „Afhroð vinstrisins er rosalegt“ Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sigur Flokks fólksins „Ég byrja harður og svo er ég bara grillaður í restina“ Reyndi að brjótast inn með exi Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Kanónurnar sem eru að hverfa Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Flokkurinn verði að líta inn á við Stefnir í að flokkunum fækki um tvo Flokkur fólksins í gríðarlegri sókn í Norðvesturkjördæmi Vísbending um að þetta séu „jarðskjálftakosningar“ Samfylkingin langstærst í kjördæmi Kristrúnar Stefnir í að VG þurrkist út af þingi Gríðarlega mikið fylgi sem dettur niður dautt Ljóst að þetta yrði brekka fyrir Framsókn Sjá meira