Leikjavísir

Kemur 23. mars

Kínversk kona kaupir Playstation 3 á síðasta ári. Tölvan verður gefin út í Evrópu 23. mars.
Kínversk kona kaupir Playstation 3 á síðasta ári. Tölvan verður gefin út í Evrópu 23. mars.

Leikjatölvan Playstation 3 verður gefin út í Evrópu 23. mars næstkomandi. Verð tölvunnar er 53 þúsund krónur en endanlegt verð hér á landi hefur ekki verið ákveðið.

Til að svara eftirspurn verslana og neytenda, hefur Sony staðfest að í upphafi muni aðeins verða til 60GB-útgáfa vélarinnar en líklegt er að 20GB-útgáfa komi út síðar á árinu. Ráðgert er að ein milljón Playstation 3-véla komi á markað í upphafi.

Samhliða komu Playstation 3 verða gefnir út þrjátíu nýir leikir sama dag, þar á meðal Resistance: Fall of Man, Motorstorm, Genji: Days of the Blade og Formula One: Championship Edition. Auk leikja sem koma út á diskum, verður hægt að hlaða niður leikjum af netinu í gegnum netþjónustu PlayStation.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.