Dagurinn sem þú hittir Guð 5. júlí 2007 00:01 Evan Baxter virðist ekki ná að fylgja eftir gríðarlegri hylli Bruce Nolan fyrir fjórum árum.
Kvikmyndin Evan Almighty var frumsýnd í gær en hún er sjálfstætt framhald Bruce Almighty sem sló í gegn fyrir fjórum árum. Þá fékk Jim Carrey að vera Guð en að þessu sinni er það Steve Carell sem fær skemmtilegt hlutverk hjá almættinu. Evan Baxter var fréttamaðurinn sem fékk að finna fyrir óþrjótandi valdi hins hégómagjarna Bruce. En margt hefur breyst síðan þá, Evan er hættur í fjölmiðlum og hefur verið kosinn á þing í Washington. Hann flytur því með alla fjölskyldu sína til höfuðborgarinnar og hlakkar til að geta þjónað bæði landi og þjóð. En þá kemur til kasta Guðs sem hefur allt annað í hyggju. Hann nálgast Evan og biður þingmanninn um að byggja örk, svipaða og Nói gerði forðum daga. Enda sé mikið flóð í vændum og því þurfi að bjarga mannkyninu frá glötun. Eða að minnsta kosti íbúum höfuðborgarinnar. Eflaust væri hægt að halda langar ræður um hvað höfundurinn Steve Oedekerk hefur haft í huga þegar honum datt í hug að láta manninn vera Guð. Og svo að hann yrði nánasti samstarfsmaður hans í nútímanum. En það er eflaust engin tilviljun að Nói skuli koma til höfuðborgarinnar og eigi að smíða örk til að bjarga mannslífum og dýrum. Stjórnvöld þar í borg hafa verið harðlega gagnrýnd bæði innanlands og erlendis og þá hefur forsetinn George W. Bush verið duglegur við afla sér óvina og nýtur sífellt meiri óvinsælda heima fyrir en hann er sem kunnugt er mjög trúaður. Kristnir trúarflokkar hafa á hinn bóginn tekið Evan Almighty opnum örmum en bókstafstrúarmenn eru áhrifamikill minnihlutahópur þar í landi. Þeir telja myndina vel til þess fólgna að skerpa aðeins á trúnni og kristnu líferni. En gagnrýnendur hafa ekki verið hrifnir af þessu nýjasta útspili Steves Carell og Oedekerks og dómar um myndina eru ekki í samræmi við væntingar og vonir framleiðendanna. Carell hefur hingað til verið talinn ein skærasta stjarna bandarísk gamanleiks og bera vinsældir bandarísku útgáfunnar The Office þess glögg merki. Að ógleymdri Óskarsverðlaunamyndinni Little Miss Sunshine. Evan Almighty átti í reynd að steypa Jim Carrey endanlega af stóli sem fyndnasta manni Bandaríkjanna. Helstu bíórýnar Bandaríkjanna hafa jafnvel margir gengið svo langt segja að ef Evan Almighty væri ekki svona meinlaus þá kæmi hún sterklega til greina sem versta mynd sumarsins. Handritið sé því miður veikt og mistakist að nýta sér alla þær Biblíutilvísanir sem hefði verið hægt að útfæra listilega. Washington hafi verið miðdepill pólitískra mistaka undanfarin ár og nægi þar að minnast á Íraksstríðið umdeilda og aðgerðarleysi stjórnvalda þegar fellibylurinn Katrína gekk yfir New Orleans og orsakaði ein mestu flóð í sögu Bandaríkjanna. Þetta hefði myndin getað nýtt sér með sögunni af Nóa sem forðaði hinum sanntrúuðu frá glötun eftir að mannkynið hafði reitt Guð sjálfan til reiði. Evan Almigthy virðist því ekki vera sá hápunktur sem vonast hafði verið til fyrir feril Carells en stjarna hans ætti þó að komast ólöskuð frá borði. En toppnum verður eflaust náð fyrr heldur en síðar.
Mest lesið Ilmaðu eins og frambjóðendur: Snorri Másson með sama ilm og Svandís Svavars Lífið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Myndir: Svona var baksviðs á kappræðum leiðtoganna Lífið „Ekki gera mér þetta“ Lífið Kosningavökur flokkanna: Pílustaðir, hótel og kirkjur Lífið Minnist föður síns: „Til hamingju með daginn hvar sem þú ert“ Lífið Jón og Hafdís ástfangin í 22 ár Lífið Gellur tóku yfir Gamla bíó Lífið Hópkaup hefur sparað þjóðinni 4,5 milljarða Lífið samstarf Ilmaðu eins og frambjóðendur Lífið Fleiri fréttir Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Hrekkjavökumyndir til að hafa í huga fyrir kvöldið Ulf Pilgaard er látinn Vilja gefa út síðustu þættina með Payne Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó Paradís heiðrað af blindum Hollywood stjörnur við Höfða Lá beinast við að gera mynd um Laugavegshlaupið Lýsir augnablikinu þegar hann náði Örnu á sitt band Man ekki eftir öðru eins: Aldrei séð jafn marga falla í yfirlið yfir einni mynd Torfi vinnur að því að koma Minecraft á hvíta tjaldið Fögnuðu væntanlegri komu Eftirmála á sjónvarpsskjáinn Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Fagnaðarfundir þegar Bong Joon-Ho hitti Dag Kára Óhappamynd Alec Baldwin brátt frumsýnd Sjá meira