Zunepartý skemmir fyrir Xbox 360 28. apríl 2007 11:00 Xbox 360 og Zune virka vel saman. Hægt er að hlusta á tónlistina úr Zune í Xboxinu.
Microsoft hefur gefið út árshlutauppgjör fyrir þriðja hluta viðskiptaársins. Afþreyingar og tækjadeild fyrirtækisins hefur ekki gengið nógu vel þrátt fyrir að búið sé að afgreiða yfir 11 miljón eintök af Xbox 360. Hagnaður Microsoft nam 4,93 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 318 milljarða íslenskra króna. Til samanburðar nam hagnaðurinn fyrir sama tímabili í fyrra 2,98 dala, ríflega 192 milljörðum króna. Ástæðan liggur í tekjum af sölu á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, og hugbúnaðarvöndlinum Office 2007, sem kom út í janúar. Hagnaður afþreyingar og tækjadeildarinnar dróst saman um 21% og var 929 miljónir bandaríkjadalir. Deildin sem stýrir innrás Microsoft í afþreyingariðnaðinn samanstendur af The Microsoft Game Studios, Xbox 360 og Zune businesses. Chris Liddel, yfirfjármálastjóri Microsoft, sagði AP fréttastofunni að þessi útkoma kæmi ekki á óvart. Hann bjóst við að öll markmið varðandi afþreyingar og tækjadeildina myndu nást áður en árið væri liðið. Bæði hvað varðaði Zune sem á að ná eini miljón eintaka og Xbox 360 sem á að ná 12 miljónum eintaka. Sagt er að dýr kynningarpartý fyrir Zune hafi haft þau árhrif að aukin sala á Xbox 360 skilaði sér ekki í uppgjörinu.
Leikjavísir Tækni Mest lesið „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá þjónustumiðstöð Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku Atvinnulíf „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Viðskipti erlent Herkastalinn hans Quangs Lé er til sölu Viðskipti innlent Hafa samið við Fossvélar um framkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar Viðskipti innlent Lögreglan rannsaki ljúgvitni í Lyfjablómsmálinu Viðskipti innlent „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Ungum Áströlum bannað að nota samfélagsmiðla Vona að Musk takmarki tolla Trumps Vilja þvinga Google til að selja Chrome Sósustormur í Bretlandi rakinn til verkfalls hjá Bakkavör Ætla að binda enda á skattaívilnun fyrir rafmagnsbíla Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sjá meira