Matur

Grilluð stórlúða með greip- og fennelsalati

Leiðbeiningar

Penslið grillið með olíu. Kryddið fiskinn með salti og pipar og setjið á mjög heitt grillið og grillið fiskinn á annarri hlið í ca 5 mín. og snúið honum svo við og grillið hann áfram í 3 mín. Berið fiskinn fram á greipog fennelsalatbeði.

Greip- og fennelsalat

Blandið saman í skál safa og greipaldinberki. Skerið fennel í tvennt og svo í mjög þunnar sneiðar og bætið í skálina. Bætið jómfrúarolíunni, ólífum, steinselju, ½ tsk af salti og chiliflögum út í, blandið öllu vel saman og látið standa.



4 stk 200 g stórlúðusteikur



kjöt úr tveimur rauðum greipaldinum

1 dl safi úr rauðu greipaldini

1 tsk rifinn börkur af greipaldini

1 stk fennel hreinsað

1 dl jómfrúarolía

2 msk Nicoise ólífur skornar í tvennt

2 msk söxuð steinselja

1 tsk salt

1/8 tsk chiliflögur

¼ tsk nýmalaður pipar

 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.