Matur

Humar með portobello-sveppum

3-4 humarhalar á mann

2 portobello-sveppir

hvítlaukur eftir smekk

1 dl rjómi

1 dl kjötsoð

2 msk. balsamedik

½ dl koníak (má sleppa)

salt og pipar

steinselja

Steikið humarinn upp úr smjöri með hvítlauk við háan hita. 

Skerið sveppina smátt niður og steikið upp úr smjöri og kryddið með salti og pipar. Bætið koníaki, soði og balsamediki út í og látið aðeins sjóða og blandið þá rjómanum saman við. Látið suðuna koma upp og smakkið til með salti og pipar.

Setjið sveppina á disk og humarinn þar ofan á. Berið fram með snittubrauði.

Vín með forrétt

Humar í rjómasósu með steiktum portobello-sveppum 

Vín: Domaine Laroche Chablis. Klassískt, franskt hvítvín frá Domaine Laroche í Chablis.

Domaine Laroche Chablis er tært og hreint. Hefur líflegan ilm af ferskum ávöxtum. Gott sýrustig með vott af ferskum, sýrumiklum ávöxtum eins og eplum og perum en einnig þónokkur jörð og örlítil ölkelda.

Glös: Hvítvínsglös








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.