Innlent

Skattahækkanir óráð í endurreisnarstarfinu

Geir H. Haarde afhenti Bjarna Benediktssyni lyklavöldin að Valhöll um leið og hann óskaði arftaka sínum til hamingju með kjörið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll síðdegis í gær. fréttablaðið/stefán
Geir H. Haarde afhenti Bjarna Benediktssyni lyklavöldin að Valhöll um leið og hann óskaði arftaka sínum til hamingju með kjörið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll síðdegis í gær. fréttablaðið/stefán

Bjarni Benediktsson, nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, segir skattahækkanir ekki lausn á efnahagsvanda þjóðarinnar.

Kosningabaráttan framundan snúist um hvernig þeim verði hjálpað sem standi illa. Aðrir flokkar hafi reynt að slá eign sinni á hugtakið velferð en hafi í því sambandi iðulega verið efst í huga að auka útgjöld ríkisins. Hjól atvinnulífsins verði að komast á hreyfingu en það gerist ekki með því að seilast sífellt dýpra í vasa fyrirtækjanna.

Bjarni ræddi um glatað traust Sjálfstæðisflokksins og sagði það sameiginlegt verkefni fundarmanna og annarra sjálfstæðismanna að endurheimta traustið sem flokkurinn hefði alltaf notið meðal landsmanna.

Hann kvaðst stoltur af hispurslausum umræðum á landsfundinum; Sjálfstæðisflokkurinn hefði farið í rækilega naflaskoðun. Hún hefði ekki verið sársaukalaus, ágreiningur væri uppi um mál en ekkert væri gert til að fela ágreining. Styrkur flokksins gerði þetta kleift og við umræðurnar nú stæði flokkurinn enn sterkari.

Í stjórnmálaályktun landsfundarins segir að ríkisútgjöld verði að dragast saman og nýta þurfi fjármuni hins opinbera eins vel og frekast er unnt um leið og standa þurfi sérstakan vörð um hag öryrkja, eldri borgara og fjölskyldna.

Til að tryggja að til verði allt að tuttugu þúsund ný störf þurfi meðal annars að afnema hið fyrsta höft á gjaldeyrisviðskipti, hafna öllum nýjum sköttum og skapa sátt um nýtingu auðlinda. Hefja beri þegar uppbyggingu orkufrekra atvinnugreina svo sem gagnavera, álvera og annarra hátæknifyrirtækja.

Þá beri að stefna að því að í boði verði óverðtryggð lán og veittir möguleikar á að breyta verðtryggðum lánum í óverðtryggð þegar verðbólga og vextir leyfi. Hugmyndum núverandi ríkisstjórnar um há- og millitekjuskatt er hafnað en stefna beri að því að stýrivextir verði 5-6 prósent undir árslok.

Í stjórnmálaályktun sinni ítrekar Sjálfstæðisflokkurinn það mat sitt að við núverandi aðstæður sé hagsmunum þjóðarinnar best borgið utan Evrópusambandsins.

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×