Hodgson: Stig sem margir töldu að við kæmum ekki með til baka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2010 21:14 Roy Hodgson, stjóri Liverpool. Mynd/Nordic Photos/Getty „
Það var fullt af jákvæðum hlutum hjá okkur í þessum leik. Þetta var gott stig sem margir töldu að við kæmum ekki með til baka þar sem að það vantaði menn í liðið," sagði Roy Hodgson, stjóri Liverpool eftir markalaust jafntefli Liverpool í Napóli í dag en Liverpool lék án Steven Gerrard og Fernando Torres. „Við svöruðum þeim hrakspám og erum ánægðir með stigið sem tryggir okkur áfram toppsætið í riðlinum," sagði Hodgson sem talaði einnig um árásina sem sex stuðningsmenn LÆiverpool urðu fyrir í aðdraganda leiksins. „Stuðningsmenn okkar voru frábærir og það er erfitt að ætlast til þess af þeim að fylgja okkur til Napólí vitandi að þeir eru að stíga inn í hættulegar kringumstæður. Það eina sem ég get gert er að þakka innilega fyrir stuðninginn og votta samúð mína með þeim sem urðu fyrir árás," sagði Hodgson og hann skaut líka á ítalska fjölmiðlamenn. „Ég var spurður af því af ítölskum fjölmiðlamönnum fyrir leikinn hvort ég óttaðist að fullir stuðningsmenn Liverpool myndu valda vandræðum á strætum Napolí. Það er hlægilegt að ég þurfi að verja stuðningmenn Liverpool fyrir ítölskum blaðamönnum þegar það eru friðsamir stuðningsmenn Liverpool sem lenda í því að vera stungnir," sagði Roy Hodgson.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Guðmundur gæfi Kelleher risa samning: „Hverrar krónu virði og rúmlega það“ Fótbolti Skýrsla Vals: Herslumunur og hetjudáð Handbolti Sá fyrsti sem er rekinn í 104 ára sögu Sport Elín vinsælasta stelpan á ballinu: „Get talað öll tungumálin sem ég kann“ Handbolti Fékk rétt svör við öllu nema um bjórinn Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik Körfubolti Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Enski boltinn Þær norsku geta nánast fagnað eins og Ísland gerði Fótbolti Rassskelltar fyrir leikinn við Ísland Handbolti Fleiri fréttir Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Fimm mínútna VAR-dómur en fyrsta útistig Southampton Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Coote gaf gult spjald eins og hann talaði um fyrir leik Segir það sárt að vera ekki velkominn hjá Liverpool Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Carragher segir Salah vera eigingjarnan Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Sjá meira