Matur

Kjúklingaréttur sem klikkar ekki

Kristín Ívarsdóttir sendi okkur kjúklingauppskrift sem getur ekki klikkað. Hún segir réttinn vera leiðina að hjarta mannsins.

„Hún getur verið ást eða hatur þar sem þetta er kaloríusprengja og maður finnur hvernig fitufrumurnar skipta sér eftir hvern bita," sagði Kristín á léttu nótunum.

Kjúklingabringur (4- 6 stk)

½ líter af rjóma

1 piparostur

1 lítil krukka salsa sósa 

1 smurostur

1 krukkamango chutney

2 msk kókos 

1 poki nachos (flögur)

rifinn ostur

Aðferð

Eldfast mót er notað og smurosturinn settur í það. Best er að þekja hann vel í mótið. Þá hellist salsað yfir og nachosflögurnar muldar yfir. Á meðan er best að steikja kjúklingabringurnar og þær síðan settar yfir nacho-flögurnar.

Rjóminn og piparosturinn fara í pott sem er hitaður þar til útkoman er þykk sósa. Yfirleitt verða til kekkir út af ostinum og það er bara betra. Síðan er best að hella rjómasósunni yfir kjúklingabringurnar og rifinn ostur er settur yfir allt og smá kókosmjöl.

Þá er rétturinn settur inn í ofn í smá tíma kannski 30 mínútur. Þá er gott að nota mangóchutney með matnum og ferskt salat.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.