Kjúklingabringa í jógúrt-karrísósu með tvenns konar salati 22. september 2010 08:00 Uppskriftin að réttinum er hér fyrir neðan.
Veitingastaðurinn Spíran í Garðheimum var opnaður í júní. Þar er boðið upp á holla rétti úr fersku hráefni sem flest kemur beint frá býli. Hinrik Carl Ellertsson matreiðslumaður er yfirkokkur Spírunnar. "Við bjóðum upp á einn rétt dagsins og síðan nokkur salöt sem fólk getur blandað saman að vild," segir Hinrik. "Við reynum að nota sem mest beint frá býli, bæði grænmeti og kjöt," segir Hinrik og bætir við að hæg séu heimatökin. "Garðheimar selja býlunum ýmislegt og því eigum við oft ferð út á land. Þá tökum við til baka sveppi, tómata, paprikur og núna rótarávexti svo eitthvað sé nefnt," segir hann en Spíran er einnig með eigin grænmetisgarð. Spíran er á efri hæð Garðheima þar sem áður hafa verið ýmist jólahorn eða föndurhorn. "Nú er öll hæðin lögð undir veitingastaðinn og nóg að gera," segir Hinrik og telur að dags daglega komi um 50 til 80 manns á staðinn. "Meirihlutinn þó seinni hluta vikunnar." Spíran er opin frá 11 til 17 alla daga en boðið er upp á heita rétti í hádeginu á virkum dögum. Annars býður Spíran einnig upp á úrval smárétta, súpu dagsins, og sérútbúnar lokur. "Þá bjóðum við á föstudögum upp á sushi frá Osushi. Okkur fannst rétt að færa þá menningu hér ofar í bæinn," segir Hinrik glaðlega og bætir við að allt bakkelsi Spírunnar sé heimabakað. Og hvers konar fólk sækir staðinn? "Hingað sækir alls konar fólk. Frá sendibílstjórum sem þykir gott að geta lagt í rúmgóð stæði, til heilu saumaklúbbanna og bankafólks úr Mjóddinni," svarar Hinrik. Hann minnir að lokum á að Spíran og Garðheimar standi oft fyrir skemmtilegum námskeiðum. Í haust hafi til dæmis verið kennd sultu- og pestógerð. Nánari upplýsingar má finna á spiran.is. [email protected] Hinrik Carl. Kjúklingabringa í jógúrt-karrísósu með tvenns konar salati 4 kjúklingabringur 1 dós af lífrænni jógúrt 5 msk. af karrí-blautmauki eða 5 tsk. af karrídufti safi úr ½ sítrónu salt og pipar eftir smekk Jógúrtinu, karrí-blautmaukinu og safanum úr sítrónunni er blandað saman og saltað og piprað eftir smekk. Þessu er næst hellt yfir kjúklinginn og látið liggja í 4-6 tíma, við það mýkist kjúklingurinn og verður safaríkari. Kjúklingurinn steiktur á pönnu í um 2 mínútur á hvorri hlið og því næst settur inn í ofn á 110° C í 30 mínútur eða 160° C í 18 mínútur. Betra er að elda hann á lægri hita því við það missir hann minni safa. Borið fram með hrísgrjónum.Agúrkusalat1 stk. agúrka skorin fínt niðursafi úr ½ lime2 cm bútur af smátt skornu engiferigraskersfræ eftir smekk1 stk. rautt chili, smátt skorið1 dl appelsínusafismá salt Öllu blandað vel saman og látið standa í tvo tíma áður en borið er fram.Gulrótarsalatið hennar ömmu5 meðalstórar gulrætur rifnar niður100 g rúsínursafi úr ½ sítrónu15 mintulauf1 dl eplasafi Öllu blandað vel saman og látið standa í tvo tíma áður en borið er fram.
Kjúklingur Salat Uppskriftir Mest lesið Gellur tóku yfir Gamla bíó Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Hélt að hann væri George Clooney Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Frægar í fantaformi Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Húðrútína Birtu Abiba Lífið Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lífið Fleiri fréttir Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Sjá meira