Haukakonur unnu auðveldan sigur á Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2010 15:03 Íris Sverrisdóttir var stigahæst á móti sínum gömlu félögum. Mynd/Anton
Haukakonur létu ekki fjarveru þjálfarans, Hennings Henningssonar, hafa áhrif á sig þegar þær unnu sinn annan leik í röð í Iceland Express deild kvenna á Ásvöllum í dag. Haukar unnu þá 24 stiga sigur á Grindavík, 60-36, og eru eins og er á toppi deildarinnar. Umferðin klárast síðan seinna í dag. Haukar unnu 65-64 sigur á Íslandsmeisturum KR á sama stað fyrir nokkrum dögum og byrja því deildarkeppnina á tveimur góðum sigrum. Haukaliðið var 14-8 yfir eftir fyrsta leikhluta og tólf stigum yfir í hálfleik, 33-21. Fyrir lokaleikhlutann var staðan orðin 44-25 Haukum í vil og sigur Hauka nánast í höfn. Stigaskor Haukaliðsins dreifðist vel í dag en Íris Sverrisdóttir og Ragna Margrét Byrnjarsdóttir voru stigahæstar með 10 stig. Íris var þarna að mæta sínum gömlu félögum í Grindavík. Charmaine Clark var langatkvæðamest hjá Grindavík með 16 stig en Harpa Hallgrímsdóttir tók 12 fráköst auk þess að skora 6 stig. Davíð Ásgrímsson, aðstoðarþjálfari Hennings, stjórnaði Haukaliðinu í dag þar sem að Henning var staddur erlendis. Davíð átti afmæli í dag og fékk flottan sigur í afmælisgjöf frá stelpunum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Nýr Littler? Tólf ára vann heimsmeistarann Sport Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Handbolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Fleiri fréttir Maté hættir með Hauka Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Jón Axel frábær í sigri toppliðsins „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil Tryggvi frákastahæstur í tapi gegn gömlu félögunum Landsliðsmenn Stjörnunnar skoruðu saman 53 stig í fyrri hálfleik Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Þór Þ. 124-82 | Þórsarar kjöldregnir í Garðabænum Pavel um leikjamet Óla Óla fyrir Grindavík: „Ég reyndi að eyðileggja þetta“ Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 109-99 | Tveir reknir úr húsi í hörkuleik „Við viljum að þetta verði ævintýri“ Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 96-104 | Mortensen kláraði Keflvíkinga Uppgjörið: Höttur - KR 85-88 | Lipur sókn skilaði KR sigri á Hetti Uppgjörið: ÍR - Valur 84-83 | Dramatískur sigur nýliðanna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 74-93 | Haukar enn í leit að fyrsta sigrinum Finnskur landsliðsmaður til Keflavíkur Martin: Ætlaði alltaf að verða ungur faðir eins og pabbi sinn Botnliðið fær landsliðsmann Aþena lagði Grindavík Haukar voru betri í dag Uppgjörið: Haukar - Keflavík 100-83 | Þægilegur Haukasigur í stórleiknum „Mikilvægasti sigur í sögu íslensks körfubolta“ Aðalkeppinautar Íslands um sæti á EM skoruðu ótrúlega körfu Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 77-67 | Grænar unnið fimm í röð Albert sá sögulegan sigur strákana okkar og Martin stríddi Ítölum Vaknaði með harðsperrur: „Þetta var bara stórkostlegt“ Stærstu sigrar íslenska körfuboltalandsliðsins í gegnum tíðina Sjá meira