Matur

Helgarmaturinn - Hamborgari að hætti Simma

Sigmar Vilhjálmsson
Sigmar Vilhjálmsson

Sigmar Vilhjálmsson fjölmiðlamaður og annar eigandi Hamborgarafabrikkunnar gefur Lífinu uppskrift að eðal hamborgara fyrir helgina.

Hamborgari að hætti Simma

Hráefni:

480 gr. lambaprime

Íslenskir sveppir

8 hvítlauksgeirar

4 msk. smjör

4 Maribo ostsneiðar

Grænt kál (t.d. lambhagasalat)

8-12 rauðlaukshringir

8 tómatsneiðar

Bernaisesósa

Salt og pipar

4 hamborgarabrauð

Aðferð:

Skerið 120-140 gr. lambaprimesteik í þrjár sneiðar eftir endilöngu þannig að hún verði um 3x40 gr. sneiðar.

Hitið grillið í hámarkshita (eða pönnuna í neyð).

Grillið lambaprime sneiðarnar í 3-4 mínútur á hvorri hlið (mælt er með meðalsteikingu).

Pönnusteikið sveppina í smjörinu og hvítlauknum. Slökkvið undir pönnunni, leggið ostsneiðina ofan á sveppina og setjið lokið á.

Penslið hamborgarabrauðið að innan með smjöri eða ólífuolíu og hitið snöggt á grilli (þar til það er orðið röndótt).

Samsetning EÐAL hamborgarans: Setjið grænmetið í botnbrauðið, bernaisesósu ofan á grænmetið, leggið steikurnar yfir, þá sveppina með brædda ostinum. Toppið með meiri bernaise og lokið með brauðhattinum.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.