Katrín lýsir yfir stuðningi við Þóru Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. júní 2012 11:23 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra styður Þóru Arnórsdóttur í embætti forseta Íslands. Katrín lýsir þessu yfir í grein sem birtist hér á Vísi og hún skrifar með átta öðrum bernskuvinkonum sínum. Í hópnum er líka Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi VG. Katrín er fyrsti ráðherrann til að lýsa yfir stuðningi við forsetaframbjóðanda með greinarskrifum. Í grein Katrínar og vinkvenna hennar segir að vinkonuhópurinn samanstandi af lögfræðingi, grunnskólakennara, aðstoðarleikskólastjóra, ráðherra, rússneskufræðingi, borgarfulltrúa, hagfræðingi, matselju og tölvunarfræðingi. „Við erum allar sem ein sannfærðar um að Þóra Arnórsdóttir sé okkar besti kostur sem næsti forseti Íslands. Konan sem bauð sig til forsætis þunguð af framtíðinni. Við treystum henni til að verða forseti okkar allra, til að standa fyrir uppbyggilegu samtali, bæði innanlands sem og við erlendar þjóðir, til að taka erfiðar ákvarðanir og til að stuðla að sátt og samlyndi sem svo sárlega hefur skort í samfélagi okkar að undanförnu," segja þær vinkonurnar. Það kemur ekki á óvart að ráðherrar eða fylgjendur ríkisstjórnarinnar lýsi yfir stuðningi við Þóru. Flesta skoðanakannanir sem hingað til hafa verið gerðar benda til þess að Þóra sæki fylgi sitt til stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson sækir hins vegar fylgi sitt fyrst og fremst til stuðningsmanna stjórnarandstöðuflokkanna.
Forsetakosningar 2012 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Innlent Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshelli Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Stefnir enn í hríðarveður á Austfjörðum á kjördag Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ „Er ekki hægt að hafa sér þátt fyrir hann?“ Fjölmenn lögregluaðgerð á Ísafirði „Leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn“ Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Óvenjumikil aðsókn vegna veðurs Rýnt í fylgið á lokasprettinum og mögnuð heimsókn í íslenska gullnámu Ósennilegar skýringar á því hvernig DNA endaði á kynfærum „Ég mun deyja á þessari hæð“ Ákærður fyrir morð og tvær tilraunir til manndráps Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti Sýkna Þórðar Más og Sólveigar Guðrúnar í milljarðamáli staðfest Auka alþjóðasamvinnu í ljósi vaxandi spennu Óvenjulegt að bóluefni séu skráð sem dánarorsök Opnunin á Blönduhlíð var engin opnun Steypan smám saman að harðna í fylginu Svona voru kappræður flokksleiðtoganna Lykilatriði að almenningur fái upplýsingar um kennaradeiluna Bein útsending: Fundað um forvarnir gegn ofbeldi meðal barna Glæný könnun Maskínu: Fylgi Framsóknar og Flokks fólksins á uppleið Sjá meira