Óttast ekki reiði kirkjunnar manna [email protected] skrifar 23. nóvember 2012 10:00 Ekkert á móti kristni Hugleikur segist ekki hafa neitt á móti kristinni trú þó hann sé að gera örlítið grín að henni í nýju bókinni. Hann er þó á móti fólki sem misnotar trúarbrögð, hvaða trúarbrögð sem er.fréttablaðið/anton „
Ég ákvað að gera bók um hinn biblíska heimsendi og datt í hug að blanda geimverum í söguna. Þetta er svo ótrúlega súr og snarklikkaður heimsendir að mig langaði að myndskreyta hann," segir rithöfundurinn og teiknarinn Hugleikur Dagsson. Hugleikur gaf út sína átjándu bók, Opinberun, á dögunum og er hún byggð á síðustu bók Biblíunnar, Opinberun Jóhannesar, og fjallar um heimsendi. „Það er sjaldan talað um Opinberunina í kristinfræði eða í kirkjum, sem er skiljanlegt því þar er verið að murka lífið úr mannkyninu. Guð var rosa reiður í Gamla testamentinu, hélt aftur af sér megnið af því nýja og tjúllast svo þarna í lokin. Það má líkja þessu við alkóhólista sem eignast barn og ákveður að vera góður og hætta að drekka en fellur svo og tekur tryllingsgang," segir Hugleikur. Hann segist ekki hafa neitt á móti kristinni trú frekar en nokkurri annarri, þó sé hann á móti fólki sem misnotar trúarbrögð. „Ég er kannski aðeins að gera grín að kristni en annars er ég bara að myndskreyta bókstaflegu túlkunina á bókinni. Þeir fáu sem ræða Opinberun Jóhannesar taka alltaf fyrir myndmálið en mér finnst bókstaflega leiðin miklu skemmtilegri," segir hann og kveðst ekki hafa miklar áhyggjur af reiði frá kirkjunnar mönnum. „Íslendingar eru svo fullir af húmor. Flestir hér eru með Jesús á réttum stað og taka Biblíuna ekki of bókstaflega svo það er alltaf verið að guðlasta án þess að nokkuð sé gert í því. Ég held að Íslendingar séu frekar guðlausir. Eins og þegar heiðni var látin víkja fyrir kristni. Þá var fólki sagt að það mætti alveg halda áfram að vera heiðið, bara svo lengi sem það gerði það í kjallaranum og segði engum frá því. Ég held að þetta hafi mótað okkur til dagsins í dag og þó við séum kristin á yfirborðinu erum við rammheiðin í kjallaranum," segir hann. Finnar hafa þegar sýnt því áhuga að fá Opinberun Hugleiks þýdda yfir á finnsku og Hugleikur vonast til að hún verði þýdd á ensku líka. „Það væri gaman að gefa hana út í Bandaríkjunum því ég hugsa að þarlendis sé að finna það fólk sem er hvað mest að bíða eftir þessum heimsendi. Reyndar held ég að enginn sem sé að bíða eftir þessum heimsendi hafi lesið smáa letrið í Opinberun Jóhannesar. Þeir hafa örugglega ekki heyrt af her engisprettudýra eða því að aðeins 144.000 manns komast til himna og það séu allt karlmenn og hreinir sveinar sem ekki hafi saurgað sig með kvenmanni," segir hann. Aðspurður getur hann vel hugsað sér að taka fyrir fleiri bækur úr Biblíunni í framtíðinni en í þessari seríu ætlar hann að einbeita sér að heimsenda. „Hingað til hafa bara þessar barnvænu sögur í Biblíunni verið myndskreyttar af einhverju viti en það er alveg fullt af sögum þarna sem væri skemmtilegt að taka fyrir. Mig hefur samt alltaf langað til að gera bók um heimsendi og Opinberun er bara sú fyrsta í seríunni. Ég er komin með nokkrar heimsenda-bækur í hausinn en veit ekki hvað þær verða margar eða hvenær seríunni lýkur. Ég er samt búinn að ákveða að næsta bók verði um zombie-endi. Ég ætla að hafa mismunandi teiknara í hverri bók svo Opinberun er sú eina í þessari seríu sem ég teikna sjálfur. Bækurnar verða því mjög ólíkar þó ég skrifi þær allar," segir Hugleikur að lokum.
Lífið Mest lesið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Gellur tóku yfir Gamla bíó Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið „Ekki gera mér þetta“ Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Hélt að hann væri George Clooney Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Frægar í fantaformi Lífið Kláraðu allar jólagjafirnar á einu bretti Lífið samstarf Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Fleiri fréttir „Ekki gera mér þetta“ „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Gellur tóku yfir Gamla bíó Hélt að hann væri George Clooney Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Einstakur garður í Mosfellsbænum Leggja undir sig spinningshjólin og upphífingarstangirnar á tónleikunum Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Húðrútína Birtu Abiba Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Söngelskir nemendur í Menntaskólanum að Laugarvatni Inga Sæland vill komast í fjármálaráðuneytið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Arnaldur tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna Hefndi sín með því að missa meydóminn Spurt var um fyrirbæri sem Tommi á Búllunni framkvæmdi fyrst hér á landi Kappleikar: „Ég er í alvörunni að reyna mitt besta“ Pantaði viskí og kókaín skömmu fyrir andlátið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Umbreyttist í Guðna Ágústsson og Ólaf Ragnar „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Draumaherbergi hjá fimmtugri og fabjúlöss Kynbomba og reynsluboltar í Melodifestivalen Söfnunarþáttur UNICEF í beinni útsendingu á þremur stöðvum í einu Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lyftu barninu upp eins og hann væri Simbi Lára og lyfjaprinsinn opinbera kynið Tilfinningar þvælast fyrir tiltektinni Frægar í fantaformi Sjá meira