Skoðun

Kosningaloforð

Helga Þórðardóttir skrifar

Mörgum stjórnmálamönnum er tíðrætt um óábyrg kosningaloforð. Það er eins og það sé óæskilegt að gefa fólki von um að nú eigi loksins að leiðrétta hlut þess og að setja almenning í forgang.



Fyrir hrun áttu hagsmunir almennings ekki mikið erindi upp á dekk. Flestir höfðu þá trú að með stöðugri baráttu myndu ávinningar nást með tíð og tíma. Þegar Alþingi, ráðherrar, eftirlitsstofnanir og allar þær stofnanir þjóðfélagsins sem áttu að starfa í þágu almennings brugðust var brugðið á það ráð að láta almenning borga kostnaðinn af hruninu. Í raun er almenningur bara óttasleginn áhorfandi sem hefur ekki haft tök á því að breyta þjóðfélaginu sér til hagsbóta. Því er stjórnað í þágu sérhagsmunaaðila nú sem fyrr.



Þar sem almenningur situr enn með sárt ennið má telja það nokkuð víst að fjórflokkurinn hafi ekki staðið við gefin kosningaloforð og því fer það honum ekki vel að reyna að ásaka aðra um að stunda lýðskrum. Síðustu kosningar, þegar vinstri flokkarnir lofuðu skjaldborg fyrir almenning gegn völdum fjármagnsins og AGS, eru enn í fersku minni. Ekki höfðu þeir fyrr náð völdum en kjör öryrkja og eldri borgara voru skert. Aldrei var reynt að taka af einhverjum myndarskap á vandamálum heimilanna. Fólk var frekar borið út.



Ný framboð eiga undir högg að sækja og meðal annars er gefið í skyn að þau muni svíkja kosningaloforðin sín. Rætt er um þetta eins og nýjum framboðunum sé þetta einum mögulegt. Það vill fljótt gleymast að fjórflokkurinn hefur margsinnis svikið sín kosningaloforð í gegnum tíðina.



Við í Dögun erum staðráðin í því að standa við gefin loforð hvað sem hver segir. Dögun lítur svo á að taka verði mjög mikilvægar ákvarðanir á næsta kjörtímabili, mun mikilvægari en oft áður. Framtíð lands og þjóðar byggist á stefnu sem setur almenning í fyrsta sætið og fjármálaöflin og aðra sérhagsmunahópa neðar. Það mun Dögun gera. Reynslan af fjórflokknum segir okkur að það eru minni líkur á því að hann geri það. Þess vegna eru kosningarnar núna með þeim mikilvægustu í sögu Íslands í langan tíma. Þess vegna er ábyrgð kjósenda mjög mikil. Kjósum XT, við erum nýr flokkur sem vill og þorir.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×