Skoðun

68 sekúndur

Eva Brá Önnudóttir og María Rut Kristinsdóttir skrifar

Í nýafstaðinni kosningabaráttu stjórnmálaflokkanna til Alþingis var einn umræðuþáttur á RÚV tileinkaður velferðar- og menntamálum. Af rúmlega 87 mínútna löngum þætti töluðu fulltrúar allra flokka samanlagt í 13 mínútur og 40 sekúndur um menntamál, það gera 68 sekúndur á hvert framboð. Á 68 sekúndum getur maður svo sem sagt ýmislegt. Þulið upp uppskrift að súkkulaðiköku, farið með þrjár ferskeytlur og jafnvel náð að lesa kreditlistann í Borgen.

Getur einhver komið með lausn á brottfalli í íslensku menntakerfi á 68 sekúndum?



Hvergi í löndunum í kringum okkur þekkist jafn hátt brottfall og það sem er hér á landi, en hér er ástandið alvarlegt og viðvarandi. Yfir helmingur framhaldsskólanema á Íslandi lýkur ekki námi á tilsettum tíma. Þessi staðreynd er ekki einungis kostnaðarsöm fyrir samfélagið heldur einnig skýr vísbending um þörfina á að endurskoða menntakerfið í heild sinni.

Er einhver tilbúinn að viðurkenna alvarleika fjársveltis menntakerfisins og þær afleiðingar sem það hefur haft í för með sér á 68 sekúndum?

Niðurskurður á framhalds- og háskólastigi er löngu kominn yfir þolmörk og hefur bitnað alvarlega á gæðum náms, aðgengi nemenda að námi og jafnframt leitt af sér aukið álag á starfsfólk skólanna. Hér má minnast á eitt atriði, en það er óásættanlegt að skólar þurfi að reiða sig á fjáraukalög við gerð rekstraráætlana framhaldsskóla og lifa þannig við óstöðugt rekstrarumhverfi. Við verðum að tryggja öruggan rekstrargrundvöll skólanna og afmá þannig þá óvissu sem skólastjórnendur hafa þurft að sæta ár hvert. Óvissa í rekstri skóla þýðir einfaldlega óvissa um aðgengi nemenda að skólakerfinu. Það er löngu orðið tímabært að endurskoða reiknilíkön bæði framhalds- og háskólastigsins. Núverandi líkön eru stórgölluð og tryggja ekki að greitt sé með öllum nemendum og leiða til fjársveltis skólanna.

Er hægt að halda því fram að 68 sekúndur dugi til að benda á og berjast fyrir því að kjör kennara verði bætt, náms- og starfsráðgjöf efld, tekið verði á bágri stöðu stráka innan menntakerfisins og iðn-, list- og tæknigreinum verði gert jafn hátt undir höfði og bóknámi?

Þessar 68 sekúndur myndu hvergi nærri duga okkur til að klára lista yfir þau alvarlegu vandamál sem eru til staðar í menntakerfinu og ætti að vera löngu búið að bregðast við.

Hífum upp orðræðuna um menntamál

Nám, sama hvernig á það er litið, er fjárfesting. Hvort sem hún er fengin til baka í beinhörðum peningum sem skapast við atvinnu að námi loknu eða í persónulegum verðmætum. Öflugt og skilvirkt menntakerfi er grunnforsenda framþróunar í samfélaginu. Vísindi og rannsóknir stuðla að nýsköpun og auknum hagvexti. Þessa verðmætasköpun má ekki vanmeta.

Það er kominn tími til að ráðamenn þjóðarinnar átti sig á þessum staðreyndum og framkvæmi í samræmi við þær. Menntamál verða að fá mikilvægan sess í samfélagsumræðunni en til að það geti gerst þarf umræðuhefðin að breytast. Við hljótum öll að vera sammála um mikilvægi öflugs menntakerfis. Hífum málaflokkinn upp og tryggjum að menntamál standi jafnfætis öðrum málaflokkum.

Menntamál eiga ekki að vera afgangsumræðuefni og því hvetjum við nýja ríkisstjórn að setja málaflokkinn í forgang og veita menntamálum verðskuldaðan tíma á komandi kjörtímabili.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×