Matur

Matseðill fyrir fátæka námsmenn

Ugla Egilsdóttir skrifar
Ragnar Pétursson er flinkur matreiðslumaður.
Ragnar Pétursson er flinkur matreiðslumaður.

Ragnar Pétursson matreiðslumaður á Vox setti saman kvöldmatarseðil fyrir tvo í eina viku fyrir 6.382 kr. Stúdentaráð reiknaði það út fyrir stuttu að námsmaður á námslánum gæti aðeins eytt 1.300 krónum á dag í mat. Meðalkvöldmáltíð á eftirfarandi matseðli kostar 911 kr. Þá eru eftir 389 kr. fyrir aðrar máltíðir dagsins. Það dugar líklega heldur skammt, en þó má benda á að maturinn er hugsaður fyrir tvo og því mætti borða helming matarins sem hádegismat daginn eftir.

Allir ættu að búa svo vel að eiga lárviðarlauf, matarolíu, mjólk, hveiti, salt og pipar. Þess vegna var það ekki keypt í þessari verslunarferð. Athugið að sumt af því sem var keypt í þessari innkaupaferð nýtist áfram í búið, þannig að ef eldað er eftir sama matseðli aftur kostar það minna í næsta skipti.



Mánudagur: Hjörtu í sósu með silkimjúkri kartöflumús





Þriðjudagur: Tómatpasta með ólívum og hvítlauksbrauði

Miðvikudagur: Frönsk lauksúpa

Matseðill fyrir þriðjudag og miðvikudag.





Fimmtudagur: Spicy-kjúklingavængir með gráðostasósu og sætum kartöflum




Föstudagur: Smjörsteiktur saltfiskur með blómkálsmauki, eplum og rófum

Matseðill fyrir fimmtudag og föstudag.





Laugardagur: Kálbögglar með gulrótum og lauksmjöri




Sunnudagur: Niçosie-salat

Matseðill fyrir laugardag og sunnudag.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.