Kolla bakar Sylvíuköku - UPPSKRIFT Eva Laufey skrifar 1. júlí 2014 15:30
Eva Laufey sótti Kolbrúnu Björnsdóttur, fjölmiðlakonu heim í þættinum Höfðingjar heim að sækja. Kolla bauð upp á svakalega góðar brauðbollur, ljúffengt BBQ kjúklingasalat og alvöru drottningaköku í desert. Þessir réttir eiga það sameiginlegt að vera einfaldir og sérstaklega þægilegir. Réttirnir hafa slegið í gegn á heimilinu hennar Kollu. Ég mæli með að þið prófið þessar uppskriftir. Þið eigið bókað eftir að gera þær aftur og aftur.Ömmu Kollu Bollur ½ L Mjólk100 g smjör1 pakki þurrger (12 g hver poki)900 g hveiti½ tsk salt60 g sykurAðferð: Hitið mjólkina í potti við vægan hita (mjólkin á að vera volg). Bætið þurrgerinu út í mjólkina og látið standa í 4 – 5 mínútur. Bræðið smjörið við vægan hita. Blandið öllu saman og hnoðið deigið vel saman eða þar til deigið er slétt og samfellt. Leyfið deiginu að lyfta sér í 40 – 50 mínútur. Þá hnoðið þið deigið einu sinni enn og leyfið því að lyfta sér í 30 mínútur til viðbótar. Þegar deigið er tilbúið þá mótið þið litlar bollur eða lengjur úr deiginu. Pískið saman eitt egg og smá mjólk og penslið yfir. Gott er að sáldra grófu sjávarsalti yfir bollurnar áður en þær fara inn í ofn við 180°C í 8 – 10 mínútur eða þar til bollurnar eru orðnar gullinbrúnar.Frábært BBQ kjúklingasalat með Doritos4 kjúklingabringur, skornar í munnbitaGott kjúklingakrydd t.d. Best á kjúklinginn1 dl BBQ sósaSalt og pipar, eftir smekk1 poki klettasalat eða annað gott salat1 rauðlaukur1 askja kirsuberjatómatar1 agúrkaBlaðlaukur, magn eftir smekkVínber, magn eftir smekk1 paprika½ poki furuhnetur, ristaðarAðferð: Hitið smjör á pönnu og steikið kjúklinginn þar til hann er eldaður í gegn. Kryddið kjúklinginn með góðu kryddi og hellið BBQ sósu yfir kjúklinginn rétt í lokin og leyfið honum að malla í 1 – 2 mínútur á pönnunni til viðbótar. Raðið klettasalatinu eða öðru góðu salati á fat og skerið annað grænmeti mjög smátt og setjið yfir salatið. Í lokin dreifið þið kjúklingabitunum yfir salatið og ristuðum furuhnetum. Berið salatið fram með dásamlegri BBQ sósu og Doritos flögum.BBQ salatsósa3 msk. Balsamik edik3 msk. Agave síróp1 krukka fetaostur (olían er notuð í sósuna og osturinn er borinn fram með salatinu)4 msk. BBQ sósa2 stór hvítlauksrif, pressuð½ rauðlaukur, smátt saxaðurSesamfræ, magn eftir smekkAðferð: Blandið öllu saman í skál og berið fram með salatinu. Þessi sósa er mjög einföld og afskaplega góð, prófið hana gjarnan með fleiri réttum.Sylvíukaka2 egg2 dl sykur1 dl vatn2 dl hveiti2 tsk. lyftiduftGlassúr75 g. smjör1 dl flórsykur2 tsk. vanillusykur1 eggjarauðaKókosmjöl, magn eftir smekkAðferð: Hitið ofninn í 175°. Hrærið egg og sykur saman þar til deigið er létt og ljóst. Bætið vatninu saman við og hrærið snögglega. Bætið hveiti og lyftidufti út í og hrærið þar til deigið verður slétt. Setjið deigið í smurt bökunarform og bakið í 30 mínútur. Á meðan kakan er í ofninum er glassúrinn gerður. Bræðið smjörið í litlum potti við vægan hita og hrærið sykri, vanillusykri og eggjarauðu saman við. Smyrjið kreminu á kökuna á meðan að hún er ennþá volg og stráið kókosmjöli yfir.
Eva Laufey Smákökur Uppskriftir Mest lesið Gellur tóku yfir Gamla bíó Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Hélt að hann væri George Clooney Lífið Sterkustu hjón landsins selja íbúðina Lífið Frægar í fantaformi Lífið Steldu stílnum af Áslaugu Örnu Tíska og hönnun Húðrútína Birtu Abiba Lífið Segir að gengið hafi verið nærri hjónabandinu, gögnum stolið og allt túlkað á versta veg Lífið Fleiri fréttir Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Sjá meira