Að brjóta kubbakastalann – með bros á vör Guðni Gunnarsson skrifar 3. ágúst 2014 09:00
Manstu þegar þú lékst þér með kubba sem lítið barn? Þegar þú hafðir setið tímunum saman og byggt þér eitthvað fallegt, kastala eða skip eða höll; setið einbeittur og viss um hvað þú værir að gera? Og manstu þegar þú áttaðir þig á því að höllin var ótrygg og byggð á lélegum grunni eða vitlaust sett saman eða bara ljót og þú þurftir að brjóta allt og byrja upp á nýtt? Þú bara gerðir það.Það er ekki sársaukalaust að byrja á nýjum forsendum þegar maður er orðinn „þroskaður einstaklingur með lífsreynslu“. Það er engum manni auðvelt að vakna upp eftir 20–50 ár sem voru byggð á mis skilningi, höfnun og forsendum vansældar. Samt finnum við fyrir óttablandinni virðingu þegar við heyrum sögur af fólki sem söðlar um, t.d. af einstaklingi sem hefur átt velgengni að fagna í viðskiptalífinu en skiptir alveg um gír og fer á fullorðinsaldri að læra garðyrkju eða heilun eða opna heilsubar. Þegar við heyrum svona sögur fyllumst við gleði – því að við vitum að þetta er rétt í einhverjum skilningi – en hugsanlega fyllumst við á sama tíma öfund og gremju í eigin garð – því að okkur langar sjálf að gera þetta en trúum því ekki að við getum það. Við verðum hrædd við að geta aldrei losað okkur út úr mynstrinu – hrædd við að geta aldrei brotið kubbahöllina og byrjað upp á nýtt á nýjum, sannari og traustari grunni. Það sama gildir um að vakna til vitundar í eigin lífi, bera á því ábyrgð og velja þinn eigin tilgang; að skilgreina hvað þú vilt byggja úr kubbunum þínum. Það er bara þúsund sinnum þúsund sinnum flóknara og reynist okkur mörgum afar erfitt, meðal annars vegna þess að við erum búin að gleyma því að möguleikarnir með kubbana eru óendanlegir og að við eigum frelsi og eigin vilja til að ákveða hvernig við notum þá. Samt er þetta draumur sem allir hafa upplifað. Kærleikur,Guðni
Heilsa Mest lesið „Ekki gera mér þetta“ Lífið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Myndir: Svona var baksviðs á kappræðum leiðtoganna Lífið Gellur tóku yfir Gamla bíó Lífið Jón og Hafdís ástfangin í 22 ár Lífið Kláraðu allar jólagjafirnar á einu bretti Lífið samstarf Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Einstakur garður í Mosfellsbænum Lífið Hélt að hann væri George Clooney Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Fleiri fréttir Eins og að setja bensín á díselbíl „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira