Matur

Einfaldar kókoskökur - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Kókoskökur

1 bolli kókosolía

1 1/4 bolli sykur

2 1/2 bolli hveiti

2 tsk vanilludropar

2 egg

2 tsk lyftiduft

1/4 tsk salt

3/4 bolli ristað kókosmjöl



Hitið ofninn í 180°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu. Blandið kókosolíu og sykri saman í skál og hrærið í um fimm mínútur. Bætið eggjunum saman við, einu í einu. Blandið síðan vanilludropunum saman við. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í annarri skál og hrærið síðan saman við sykurblönduna. Blandið kókosmjölinu saman við með sleif. Búið til litlar kúlur úr deiginu og setjið það á ofnplötuna. Bakið í átta til tíu mínútur.

Fengið hér.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.