Matur

Einfaldur pastaréttur - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Einfaldur pastaréttur

* fyrir 6 til 8



450 g pastaskeljar

115 g parmaskinka

3 bollar pastasósa

250 g ferskur mozzarella-ostur, skorinn í litla bita

2 bolli rifinn ostur

1/2 bolli rifinn parmesan-ostur

salt og pipar eftir smekk



Hitið ofninn í 180°C. Leyfið söltuðu vatni að sjóða og eldið pastað. Sigtið vatnið frá þegar pastað er tilbúið. Setjið pastað aftur í pottinn. Á meðan pastað er að sjóða steikið skinkuna létt yfir miðlungshita þangað til hún er stökk og brúnuð. Leyfið henni að kólna og brytjið hana niður í litla bita. Blandið skinkunni, sósunni, mozzarella og einum og hálfum bolla af rifnum osti saman við pastað og kryddið með salti og pipar. Hellið í eldfast mót og setjið parmesan og það sem eftir er af rifna ostinum yfir. Bakið í þrjátíu mínútur og berið fram með hvítlauksbrauði og góðu salati.

Fengið hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.