Matur

Helgarmaturinn - Gratíneraður kjúklingur með beikoni, döðlum og hvítlauk

Marín Manda skrifar
Berglind Guðmundsdóttir
Berglind Guðmundsdóttir

Hér er á ferðinni vinningsréttur úr nýrri matreiðslubók Berglindar Guðmundsdóttur, GulurRauðurGrænn&salt – Fljótlegir réttir fyrir sælkera. Í henni má finna uppskriftir að hollum mat fyrir fólk sem elskar að borða góðan mat en hefur ekki mikinn tíma til að standa lengi í eldhúsinu. Kjúklingarétturinn er með beikoni, döðlum og hvítlauk. Hann er einfaldur í gerð og smellpassar í helgarmatinn.

Gratíneraður kjúklingur með beikoni, döðlum og hvítlauk

Uppskrift

Fyrir 4-5

Eldunartími 30 mínútur

1 heill kjúklingur, eldaður

150 g spínat

100 g beikon, smátt skorið

70 g döðlur, smátt skornar

4 stór hvítlauksrif, pressuð

1 msk. óreganó þurrkað

3 dl vatn

2 dl matreiðslurjómi

3 msk. rjómaostur

1 Knorr-kjúklingateningur

½ Knorr-grænmetisteningur

Rifinn ostur

Aðferð

1. Brúnið beikonið á pönnu.

2. Bætið hvítlauknum út á pönnuna og steikið með beikoninu í örskamma stund, setjið þá döðlurnar út í ásamt vatninu, óreganói og teningunum. Látið malla saman svolitla stund.

3. Setjið spínatið í botninn á eldföstu móti og stráið kjúklingnum þar yfir.

4. Bætið matreiðslurjómanum og rjómaosti út á pönnuna og sjóðið niður sósuna í um 5 mín. Þegar sósan er tilbúin, hellið þá þessari gourmet-blöndu yfir kjúklinginn og passið að döðlurnar og beikonið dreifist jafnt yfir kjúklinginn.

5. Setjið því næst rifna ostinn yfir allt saman og bakið í ofni þar til osturinn er orðinn gylltur og fallegur.

Berglind Guðmundsdóttir







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.