Skoðun

Ætlar enginn að bjarga Landspítalanum?

Ragna Sigurðardóttir skrifar

Í fjárlögum næsta árs er ekki gert ráð fyrir fjármögnun undirbúningsvinnu fyrir byggingu nýs Landspítala. Þetta er í andstöðu við loforð þingsins.



Í maí á þessu ári ályktaði Alþingi „að fela ríkisstjórninni að ljúka eins fljótt og verða má undirbúningi byggingar nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík og hefja byggingu hans strax að því loknu.“



Í ágúst lýsti formaður fjárlaganefndar, ásamt heilbrigðisráðherra, yfir vonbrigðum á umframkeyrslu Landspítalans fram yfir fjárlög þessa árs. Þessi svokallaða umframkeyrsla á hálfu ári nam 600 milljónum króna. Sú upphæð er 700 milljónum minni en upphæðin sem hefði sparast það sem af er ári, hefði nýr spítali verið reistur. Reiknað er með að 2,6 milljarðar sparist árlega við byggingu nýs spítala. Þeir útreikningar taka ekki tillit til þess starfskrafts sem spítalinn missir á hverju ári vegna óviðunandi vinnuaðstæðna.



Fyrr í þessum mánuði fullyrti formaður fjárlaganefndar að með fjárlögum næsta árs væri verið að jafna niðurskurð síðustu ára. Þetta er rangt. Ef jafna ætti niðurskurð síðustu ára, frá árinu 2008, þyrfti 16 milljarða króna aukningu á því fjármagni sem rennur til spítalans. Landspítalinn er nú rekinn fyrir 10% minna fé en árið 2008, ef miðað er við fast verðlag. Þetta benti Páll Matthíasson á í forstjórapistli 12. september.



Þegar fjármögnun spítalans í dag er borin saman við fjármögnun hans árið 2008 er vert að benda á að árið 2008 var niðurskurður á spítalanum þegar hafinn. Árið 2008 lýsti þáverandi forstjóri spítalans því yfir að Landspítalinn væri nálægt þolmörkum. Árið 2008 höfðu ráðamenn spítalans lofað starfsmönnum sínum bættri vinnuaðstöðu. Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu nær lengra aftur en til ársins 2008.



Heilbrigðiskerfið fjársvelt

Þörf er á aðgerðum. Í nýlegri úttekt á vegum embættis Landlæknis á lyflækningasviði spítalans kemur fram að starfsmenn meta vinnuaðstöðu sína ófullnægjandi á öllum þeim deildum sem úttektin náði til. Úttekt embættisins á geðsviði spítalans sem gerð var á síðasta ári leiðir sambærilega niðurstöðu í ljós.



Íslenskir læknar í útlöndum sjá sér ekki fært að flytja heim. Íslenskir læknar á Íslandi og aðrir heilbrigðisstarfsmenn á Landspítala sjá sér margir hverjir ekki fært um að starfa hér áfram. Nemendur eiga erfitt með að ímynda sér Landspítalann sem framtíðarvinnustað. Starfandi læknum á landinu fækkar árlega á meðan fjöldi sjúklinga eykst. Hvað gerist þegar ekki verður hægt að manna stærsta vinnustað landsins?



Það hriktir í einni af grunnstoðum samfélagsins. Heilbrigðiskerfið er fjársvelt. Því hefur hrakað á undanförnum árum og ef ekkert er að gert mun sú þróun halda áfram. Brátt verður ekki aftur snúið. Lækning á Landspítalanum er í höndum ríkisstjórnarinnar. Sú lækning felst í aðgerðum, ekki innantómum loforðum.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×