Matur

Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu

VISIR.IS/E
Vanillubúðingur með ástaraldinsósu

Sumarlegur eftirréttur með ástaraldinsósu

Vanillubúðingur eða Pannacotta kemur frá Ítalíu. Hægt er að bera eftirréttinn fram allan ársins hring en ástaraldinsósan gerir þennan rétt einstaklega sumarlegan og ljúffengan.

500 ml rjómi

100 g hvítt súkkulaði

2 msk vanillusykur

1 tsk vanilluduft eða vanillukorn úr vanillustöng

2 plötur matarlím

Aðferð

Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í 4 – 6 mínútur. Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman og bræðið í rólegheitum. Hrærið í á meðan og þegar súkkulaðið er bráðnað bætið þið vanillusykri og vanilludufti saman við,  í lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna. Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár klukkustundir, best yfir nótt. 

Ástaraldinsósa

3 dl appelsínusafi

3 dl sykur

5 ástaraldin

Aðferð

Sjóðið appelsínusafa og sykur saman við vægan hita. Bragðbætið sósuna með ástaraldin og hrærið þar til þið eruð sátt með þykktina á sósunni.  Það er mikilvægt að kæla sósuna vel áður en þið ætlið að bera hana fram og er hún ljúffeng með vanillubúðingnum. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.