Matur

Fullkominn Eurovision-réttur að hætti Maríu Ólafs

María Ólafs deilir þessarri ljúffengu uppskrift.
María Ólafs deilir þessarri ljúffengu uppskrift. Vísir

Eva Laufey heimsótti Maríu Ólafsdóttur á dögunum og fékk uppskrift að ljúffengu ostasalati sem tilvalið er að bera fram um helgina. Ostasalati sem hún segir alltaf slá í gegn.

Ostasalat 

1 mexíkóostur

1 hvítlauksostur

1 rauð paprika

1 græn paprika

1 gul paprika

½ púrrulaukur

rauð vínber, magn eftir smekk

200 g majónes

150 g grískt jógúrt



Aðferð:
Skerið púrrulauk eftir endilöngu, skolið og skerið síðan í litla bita. Skerið papriku mjög smátt og vínberin í tvennt. Blandið majónesi og gríska jógúrtinu saman við og bætið ostinum við í lokin, best er að skera hann afar smátt. Hrærið öllu vel saman og berið fram með góðu brauði eða kexi. 



Njótið vel.


Tengdar fréttir








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.