Matur

Haustsúpa sem yljar

Eva Laufey Kjaran skrifar
Skjáskot/Fannar
Grænmetissúpa og einfalt hvítlauksbrauð Grænmetissúpa 

1 meðalstór laukur

2 sellerí stilkar

3 gulrætur

4 - 5 kartöflur

1 spergilkálshöfuð

1/2 blómkálshöfuð

1 L grænmetissoð (soðið vatn + 2 grænmetisteningar)

salt og pipar

rjómi eða mjólk 

nýrifinn parmesan ostur 

Aðferð: 

1. Hitið smjör eða ólífuolíu í stórum potti. 

2. Smáttsaxið laukinn, selleríið og gulræturnar. Mýkjið í smjörinu eða í olíunni í nokkrar mínútur. 

3. Bætið kartöflum, flysjuðum og spergilkálinu út í pottinn ásamt blómkálinu. 

4. Hellið grænmetissoðinu út í pottinn og kryddið til með salti og pipar.

5. Náið upp suðu og leyfið súpunni að malla í 30 - 40 mínútur. Maukið súpuna með töfrasprota eða setjið í blandara. Það er afar gott að bæta eins og 2 dl af rjóma eða mjólk rétt í lokin. 

6. Berið súpuna fram með nýrifnum parmesan osti og hvítlauksbrauði.



Hvítlauksbrauð 


Hvítlauksolía 

2 dl ólífuolía

2 hvítlauksrif, pressuð 

handfylli smátt söxuð steinselja

1/2 rautt chili, smátt skorið 

salt og nýmalaður pipar

1 baguette brauð

Aðferð

1. Skerið baguette brauðið eftir endilöngu og leggið á pappírsklædda ofnplötu. 

2. Blandið saman í skál olíunni, hvítlauknum, steinseljunni, chili, salti og pipar. 

3. Smyrjuð brauðið með olíunni og sáldrið rifnum mozzarella osti yfir. 

4. Bakið við 200°C í nokkrar mínútur eða þar til brauðið er gullinbrúnt. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.