Skoðun

Við köllum eftir breytingu

María Rut Kristinsdóttir skrifar

Nú er kominn tími til að rjúfa þögnina. Þögnina sem umlykur kynferðisbrotamál hér á landi. Nú er kominn tími til að kalla eftir breytingum og stuðla að betra samfélagi. Samfélagi þar sem þolendur kynferðisofbeldis geta stigið fram án þess að vera kallaðir lygarar. Samfélagi þar sem kynferðisofbeldi er ekki dagleg ógn. Samfélagi sem horfist í augu við ofbeldi en lítur ekki fram hjá því. Samfélagi sem tekur ekki opinbera afstöðu með geranda. Samfélagi þar sem börn eru frædd um að beita ekki ofbeldi. Samfélagi sem skilur að frávísun jafngildir ekki sakleysi.



Undanfarna mánuði hefur fjöldi fólks stigið fram og skilað skömminni. Skömminni sem alltof oft lendir á herðum þolenda kynferðisofbeldis. Sú skömm á heima hjá gerendum í öllum tilvikum. Það hefur verið styrkjandi að sjá þennan fjölda stíga fram og frelsa sig undan þögguninni, en á sama tíma átakanlegt. Átakanlegt því um er að ræða mörg hundruð manns. Mörg hundruð manns sem hafa burðast með skömm alltof lengi. Við viljum ekki búa í samfélagi þar sem slíkur fjöldi fólks hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þessu þarf að breyta og það tafarlaust. Með opinni umræðu um kynferðisofbeldi getum við fyrst kafað ofan í málaflokkinn og fundið raunverulegar lausnir á þessu illkynja meini sem hefur fengið að liggja undir feldi í alltof langan tíma. Þess vegna köllum við eftir því að þolendur, aðstandendur, vinir, kunningjar eða hreinlega allir þeir sem eru á móti kynferðisofbeldi rísi upp og kalli eftir breytingum. Í sameiningu getum við breytt samfélaginu til hins betra. Hverju myndir þú vilja breyta?



Við skipuleggjendur Druslugöngunnar hvetjum alla til að láta sig málið varða og birta sitt ákall undir myllumerkinu #drusluákall. Druslugangan er vettvangur þolenda kynferðisofbeldis og hefur verið í forystu í baráttunni fyrir breyttu hugarfari og orðræðu um kynferðisofbeldi síðustu ár. Okkar markmið er að stuðla að betra samfélagi þar sem ábyrgð kynferðisglæpa liggur hjá gerendum en ekki þolendum. Í ár verður gangan farin í fimmta sinn og vonumst við til þess að a.m.k. 20 þúsund manns gangi með okkur. Gengið verður frá Hallgrímskirkju á laugardaginn nk. klukkan 14 og eftir það taka við ræðuhöld og tónlistaratriði á Austurvelli. Taktu þátt og kallaðu eftir breytingu.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×