Spila með grímur og láta tónlistina tala Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 31. júlí 2015 08:00 Hljómsveitin Vaginaboys vonast til að það dragi úr neikvæðri merkingu orðisins vaginaboy með nafni hljómsveitarinnar. vísir/Stefán
Hljómsveitin Vaginaboys spilaði á sínum fyrstu tónleikum þann 26. maí þegar þeir komu fram með Sin Fang, rúmu ári eftir að þeirra fyrsta lag, Elskan af því bara, kom út. Á huldu er hverjir meðlimir hljómsveitarinnar eru, á tónleikum spila þeir með grímur, syngja í gegnum talgervil og á Facebook-síðunni er engin grein gerð fyrir nöfnum meðlima en þeir spila draumkennda raftónlist.Huldumenn á bak við tjöldin „Við viljum bara láta tónlistina tala fyrir það sem við erum að gera. Síðan eru huldumenn á bak við tjöldin,“ segir söngvari sveitarinnar leyndardómsfullur um ástæður grímanna en á sviðinu eru þeir jafnan tveir og þegar hann er spurður að því hvort að í hópi fyrrnefndra huldumanna leynist einhverjir þekktir tónlistarmenn er svarið stutt og laggott: „Ég ætla ekkert að tjá mig um það,“ segir hann glaður í bragði og bætir við að dularfullt sé sexý. Vaginaboys hafa gert tónlist saman í rúm tvö ár en verið vinir talsvert lengur. „Við erum æskuvinir. Ætli þetta hafi ekki bara byrjað í grunnskóla. Við höfum mikinn áhuga á tónlist og lifum fyrir tónlist.“ Þeirra fyrsta lag, Elskan mín af því bara, var gefið út þann 31. ágúst á síðasta ári. Það var þó ekki fyrr en fyrir nokkrum mánuðum síðan að lagið sprakk út og öðlaðist talsverðar vinsældir á samfélagsmiðlum og þakkar hinn grímuklæddi og nafnlausi söngvari nokkrum tónlistarmönnum fyrir að hafa hjálpað til við að koma því á kortið. „Emmsjé Gauti, Sin Fang og Gísli Pálmi áttu sinn þátt í því,“ segir hann.Nóg í pokahorninu Lagið Í svefn kom út á dögunum í tengslum við Druslugönguna og eru hljómsveitarmeðlimir strax farnir að huga að útgáfu næsta lags, Ekki nóg. Við það mun einnig koma út myndband sem frumsýnt verður á Vísi og verður útgáfudagur tilkynntur síðar. „Róm var ekki byggð á hverjum degi,“ segir hann léttur í lund og segir þá félaga eiga nóg af efni í pokahorninu og stefnan sett á að gera eitt þúsund góð lög. „Svo kemur bara út geisladiskur, vínill og kassetta í framtíðinni.“ Þegar hann er spurður að því hvort einhver áætlaður útgáfudagur sé er markmiðið skýrt: „Ætli við verðum ekki bara að stefna á að þetta verði jólaplatan í ár.“Vilja breyta merkingunni Orðið vaginaboy, sem hljómsveitin dregur nafn sitt af, er notað á neikvæðan hátt um stráka sem þykja ekki nógu harðir af sér eða fara að einhverju leyti gegn ríkjandi karlmennskuhugmyndum. „Þetta er svona feminísk pæling. Það er svo sorglegt að það sé verið að nota svona fallegt orð, vaginaboy, í niðrandi tilgangi,“ segir hann og bætir við: „Við vildum nota þetta yfir okkur og ef við verðum kúl í framtíðinni verður kannski kúl að vera kallaður vaginaboy.“ Það er nóg um að vera hjá hljómsveitinni og mun hún meðal annars spila á Innipúkanum í kvöld klukkan 21.00 á skemmtistaðnum Húrra. „Við erum líka að byrja með dj-sett þannig að það verður þægilegt að fá okkur í veislur, brúðkaup og jarðarfarir.“Fá klapp á bakið Grímurnar sem hljómsveitarmeðlimirnir tveir bera á tónleikum vekja forvitni, ætíð er um sömu grímur að ræða en söngvarinn segir nýjungar væntanlegar. „Þetta eru alltaf sömu grímurnar núna, en það eru einhverjar týpur í vinnslu veit ég,“ og segir hann þá jafnframt ekki gera mikið úr því að halda dulargerfinu uppi fyrir framan vini og fjölskyldu, enda noti þeir grímurnar aðallega þegar þeir eru að spila en ekki í daglegu lífi. „Það fá allir að vita það sem vilja vita það í kringum okkur. Og þeir sem nenna að standa í að finna út hverjir við erum fá bara klapp á bakið.“ Vaginaboys eru virkir á öllum helstu samfélagsmiðlum. Hér eru þeir á Facebook, Instagram, Tumblr, Myspace, Soundcloud, Twitter og halda einnig úti vefsíðunni Vaginaboys.com. Áhugasamir geta einnig fylgst með þeim á Snapchat þar sem notendanafnið þeirra er vaginaboys.Hér má hlusta á lagið Elskan af því bara:
Tónlist Mest lesið Ilmaðu eins og frambjóðendur: Snorri Másson með sama ilm og Svandís Svavars Lífið „Án okkar verður ekki til miðjustjórn“ Lífið Auðir og ógildir með kosningakaffi Lífið Ilmaðu eins og frambjóðendur Lífið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Minnist föður síns: „Til hamingju með daginn hvar sem þú ert“ Lífið Kosningavökur flokkanna: Pílustaðir, hótel og kirkjur Lífið Myndir: Svona var baksviðs á kappræðum leiðtoganna Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Fréttatían: Kosningar, verðbólga og körfubolti Lífið Fleiri fréttir Kunna ekki að slaka á og heyrðu í Svölu Björgvins Live in a fishbowl: Dr. Gunni alltaf á leiðinni til að drepa þig „Látið jólaljós ykkar skína skært“ Auður einhleypur og skýtur á yfirvöld vegna Yazans Fyrstur kemur, fyrstur fær: Magnúsi Eiríkssyni fagnað og þjóðinni boðið Frumsýning á Vísi: Villi Vill fer á kostum í tónlistarmyndbandi Luigi Biggi Maus tók einn þekktasta slagara Arons Can í fiskabúrinu Daði Freyr tekur stefnuna til Íslands eftir áratug úti Fred again í sal en ekki á sviði: „Orðrómur sem við höfðum enga stjórn á“ „Það er enginn séns að reyna alltaf að útskýra sig“ HAM reið á vaðið í fiskabúri X-ins 977 Létu ævintýrið loksins rætast í fiskabúrinu á X-inu „Stórir hlutir að koma og fólk þarf að vera tilbúið“ Emilíana Torrini heillaði tónleikagesti upp úr skónum Laufey naut lífsins með Ariönu Grande Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Sjá meira