Matur

Matar­gleði Evu: Dýrindis vatns­deigs­bollur - upp­skrift

Tinni Sveinsson skrifar

Nú er bolludagurinn handan við hornið og af því tilefni var sérstakt bolluþema í síðasta þætti Evu Laufeyjar, Matargleði, sem sýndur var á Stöð 2.

Uppskriftirnar eru að finna hér fyrir neðan.


Vatnsdeigsbollur
10 - 12 bollur
100 g smjör
2 dl vatn
2 msk sykur
110 g hveiti
3 stór egg

Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200°C. (blástur)

2. Hitið vatn, smjör og sykur saman í potti og látið suðuna koma upp. (gott er að láta vatn, sykur og smjör sjóða vel saman í 2 - 3 mínútur áður en hveitið er sett út í.

3. Setjið hveiti út í, hrærið saman og látið kólna í 4 mínútur.

4. Takið pottinn af hitanum og setjið eggin út í eitt í einu, sláið vel saman á milli. Það er líka ágætt að setja deigið í hrærivélaskál og hræra þannig saman.

5. Setjið í sprautupoka og sprautið bollunum á pappírsklædda bökunarplötu en það má auðvitað gera það líka með tveimur skeiðum.

6. Bakið bollurnar í 25 – 30 mínútur, það er mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu 15 mínúturnar af bökunartímanum því þá er hætta á að bollurnar falli. 

Nutella - og bananarjómi
4 dl rjómi
1 banani
3 msk. Nutella

Aðferð:
1. Þeytið rjóma.

2. Maukið banana og Nutella saman með töfrasprota eða stappið vel saman með gaffli.

3. Blandið bananablöndunna varlega saman við rjómann með sleif.

Jarðberjafyllingin er skemmtileg viðbót.

Jarðarberjafylling
1 askja jarðarber (10 - 12 stk)
4 dl rjómi
2 tsk. flórsykur

Aðferð:
1. Maukið jarðarberin með töfrasprota eða með gaffli.

2. Þeytið rjóma og sigtið flórsykur saman við í lokin.

3. Blandið jarðarberjamaukinu varlega saman við rjómablönduna með sleif.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.