Sif sá rautt en Kristianstads náði í mikilvægt stig í fallbaráttunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. október 2016 16:30 Sif verður í leikbanni í lokaumferðinni. vísir/vilhelm
Kristianstads, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar, er í fallhættu fyrir lokaumferðina í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sif Atladóttir var í byrjunarliði Kristianstads gegn Kvarnsvedens en var rekin af velli þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Þá var staðan 1-1. Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma kom Tabitha Chawinga Kvarnsvedens yfir og virtist hafa tryggt liðinu öll stigin þrjú. En stelpurnar hennar Elísabetar gáfust ekki upp og Mia Carlsson jafnaði metin á 95. mínútu með sínu öðru marki. Lokatölur 2-2. Fyrir lokaumferðina, sem verður leikin næsta laugardag, er Kristianstads í 10. sæti deildarinnar með 14 stig. Liðið er einu stigi á undan Mallbackens og tveimur stigum á undan Umeå sem er einmitt mótherji Kristianstads í lokaumferðinni. Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Eskilstuna United sem vann 3-0 sigur á Örebro á heimavelli. Félagi Glódísar í miðri vörn íslenska landsliðsins, Anna Björk Kristjánsdóttir, var í byrjunarliði Örebro og lék fyrstu 85 mínútur leiksins. Eskilstuna er í 3. sæti deildarinnar en Örebro í því níunda.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Þórir fær ekki keppnisleyfi fyrir tvo af leikmönnum sínum á EM Handbolti Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Fótbolti Kærður fyrir ofbeldi gegn syni sínum Sport Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Fótbolti Jenas missir annað starf Fótbolti Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Fótbolti Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Fótbolti Hnefahögg liðsfélaga gæti tekið frá honum HM Handbolti Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Enski boltinn Leikdagur í Innsbruck: Hvernig gekk að læra? Handbolti Fleiri fréttir Jenas missir annað starf Leicester-menn skammaðir fyrir jólapartíið Heimaleikur Íslands fer fram á Spáni Keflvíkingar keyptu leikmann frá Njarðvík Ákall á forsíðu stórblaðsins: Bjargið leikmanninum Segja Íslendinginn tilbúinn í það að verða næsta stjarna Bandaríkjamanna Amorim djúpt snortinn: „Mun ekki gleyma þessu“ Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Hummels kom Rómverjum til bjargar Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ „Fannst hann fara í gegnum lappirnar á mér“ „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Sverrir og félagar lokuðu vörninni og Panathinaikos vann loksins Nkunku áfram sjóðheitur og Chelsea með fullt hús stiga Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Ísland áfram neðst Norðurlanda og næsti mótherji í 99. sæti Kostað Manchester United marga milljarða að skipt um stjóra Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Mbappé fékk tvo í einkunn Hafa unnið alla heimaleiki sína í Evrópu og taka á móti Víkingum í kvöld Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Ráða njósnara á Íslandi Sjáðu mörkin þegar Liverpool vann Evrópumeistara Real Madrid Réttarhöldin yfir Manchester City klárast fyrir jól Landsliðskonurnar okkar hrifnar af IceGuys Van Nistelrooy mættur aftur í ensku úrvalsdeildina Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins „Sem betur fer fór ég enn á ný í rétt horn“ Hákon Arnar kom inn af bekknum í mikilvægum sigri Sjá meira