Matur

Í eldhúsi Evu: Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu

Eva Laufey skrifar
Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu.
Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu. Eva Laufey

Í þættinum Í eldhúsi Evu, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum, töfra ég fram hinar ýmsu kræsingar. Hér er uppskrift að ítölskum vanillubúðingi.

Ítalskur vanillubúðingur með ástaraldinsósu

500 ml rjómi

100 g hvítt súkkulaði

2 msk.  vanillusykur

1 tsk.  vanilluduft eða vanillukorn úr vanillustöng

2 plötur matarlím



Leggið matarlímsblöð í kalt vatn í 4-6 mínútur. Á meðan hitið þið rjóma að suðu og bætið súkkulaði saman og bræðið í rólegheitum. Hrærið í á meðan og þegar súkkulaðið er bráðnað bætið þið vanillusykri og vanilludufti saman við, í lokin kreistið þið vökvann frá matarlímsblöðum og hrærið út í vanillublönduna. Hellið í skálar og geymið í kæli að minnsta kosti í tvær til þrjár klukkustundir, best yfir nótt.

Ástaraldinsósa

3 ástaraldin

3 tsk. flórsykur

Skafið innan úr ástaraldininu og blandið saman við smá flórsykur, setjið yfir vanillubúðinginn áður en þið berið hann fram og njótið strax.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.