Skoðun

Höldum áfram

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar
Á síðasta kjörtímabili náði Ísland hraðasta efnahagslega viðsnúningi nokkurs ríkis í seinni tíð. Á sama tíma komst stærsti hluti fjármálakerfis landsins í eigu ríkisins. Einstakar aðstæður sköpuðust til að ráðast í sögulegar samfélagsumbætur. Með bættu efnahagsástandi var hægt að hverfa frá dýrri varnarbaráttu og snúa sér þess í stað að arðbærri sókn. Þar með varð mögulegt að fjárfesta í framtíðinni í stað þess að fást fyrst og fremst við vandamál fortíðar.

Það á við á mörgum sviðum, til dæmis í menntun, tækni og vísindum en einnig á sviði byggðamála. Fyrirheit höfðu verið gefin um stórsókn í byggðamálum þegar stjórnvöld sæju til lands í stóru efnahags­aðgerðunum eins og uppgjöri slitabúa bankanna. Slík sókn er nauðsynleg til þess að Ísland allt virki sem ein heild og hægt sé að leysa úr læðingi verðmæti sem liggja í landinu, byggðarlögunum og fólkinu.

Bætt staða gerir okkur líka kleift að koma sérstaklega til móts við hópa fólks sem dregist hefur aftur úr í hinni hröðu kaupmáttaraukningu síðustu ára.

Ítök ríkisins á fjármálamarkaði, auk hins efnahagslega stöðugleika, veittu svo einstakt tækifæri til að ráðast í umbætur á því sviði og byggja upp fjármálakerfi sem virkar betur fyrir almenning og atvinnulífið en nú er.

Þótt eftirfylgnina hafi vantað í eitt og hálft ár veita kosningarnar nú tækifæri til að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þótt undirbúningur hafi gengið vel og aðstæður séu góðar verður þó ekki auðvelt að hrinda svo stórum breytingum í framkvæmd, ekki nú frekar en áður. Ríkjandi fyrirkomulag verður varið af miklum krafti. Til að koma hreyfingu á hlutina þarf því enn meira afl að koma á móti. Það mun þurfa stjórnmálaflokka sem hafa þolgæði og festu. Flokka sem nálgast úrlausnarefnin af opnum hug en eru svo reiðubúnir til að beita sér fyrir skynsamlegustu lausnunum af krafti. Flokka sem eru reiðubúnir til að verja réttlætið bæði þegar það er auðvelt og þegar það er erfitt.

Á næstu dögum birtist slíkur flokkur. 



Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×