Skoðun

Sátt um uppbyggingu stúdentagarða

Ragna Sigurðardóttir skrifar

Síðastliðna mánuði hefur verið starfandi starfshópur á vegum Háskóla Íslands, Félagsstofnunar stúdenta, Reykjavíkurborgar og stúdenta um uppbyggingu stúdentaíbúða á háskólasvæðinu. Hópurinn tók til starfa í nóvember síðastliðnum í kjölfar umræðu um fyrirhugaða uppbyggingu stúdentaíbúða á reit Háskóla Íslands við Gamla Garð, sem er elsti stúdentagarður háskólasvæðisins.



Gamli Garður var tekinn í notkun árið 1934. Garðurinn þjónustaði þá um 30% nemenda við Háskólann, en nemendur voru þá um 160 talsins. Tímarnir breytast og þarfir nemenda og samfélagsins líka - en í dag eru stúdentar við Háskóla Íslands tæplega 13.000. Kröfurnar sem við sem samfélag gerum til húsnæðis hefur á sama tíma breyst, hjólastólaaðgengi er orðin sjálfsögð krafa í uppbyggingu húsnæðis á vegum Félagsstofnunar stúdenta og Háskólans og jafnrétti til náms er orðið áþreifanlegra en áður.



Nú, rúmum 80 árum síðar, hefur hins vegar um 9% stúdenta við Háskóla Íslands aðgengi að stúdentahúsnæði. Með auknum kröfum til húsnæðis og mikilli eftirspurn eftir húsnæði, sem fyrir marga er forsenda þess að stunda nám, er orðið ljóst að komið er að endurnýjun lífdaga sögufrægra bygginga eins og Gamla Garðs. Hjólastólaaðgengi þarf að laga á svæðinu, bæta þarf úr aðstöðu þeirra sem þar búa nú þegar og fjölga þarf kostnaðarminni úrræðum í húsnæði fyrir stúdenta.



Búsetuformið á Gamla Garði felur í sér ódýrari leigu á eftirsóttu svæði sem lágmarkar þörf á óumhverfisvænum samgöngum. Einstaklingsherbergi fyrir stúdenta tryggir þar að auki góða nýtingu á lóðum Háskólans sem eru til þess ætlaðar að mæta brýnni þörf á húsnæði fyrir námsmenn.



Það er því ánægjuefni að starfshópur Háskóla Íslands, Félagsstofnunar stúdenta, Reykjavíkurborgar og stúdenta, sem hafði það mikilvæga verkefni að tryggja sátt milli aðila um áformaða uppbyggingu við Gamla Garð, hafi skilað af sér niðurstöðu. Niðurstaðan var samkomulag, undirritað í gær af Félagsstofnun stúdenta og Háskóla Íslands, sem felur í sér uppbyggingu í sátt á reit Háskólans við Gamla Garð.



Samkomulagið felur þar að auki í sér að vinna verði hafin strax við það að uppfylla annað samkomulag, dagsett 2. mars 2016, milli Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um uppbyggingu allt að 400 stúdentaíbúða á háskólasvæðinu. Fagnaðarefni er að sú vinna sé komin á skrið og gert er ráð fyrir að niðurstaða úr henni liggi fyrir eigi síðar en 1. maí 2018. Í samkomulaginu segir jafnframt að hafin verði vinna við kortlagningu á enn fleiri uppbyggingarreitum fyrir stúdentaíbúðir umfram þær 400 sem eru áformaðar.



Með störfum þessa starfshóps og undirritun samkomulags um uppbyggingu stúdentaíbúða er því stigið mikilvægt skref í átt að fjölgun stúdentaíbúða á háskólasvæðinu. Húsnæði er grunnforsenda þess að margir geti stundað nám við Háskóla Íslands og því er mikilvægt að þeirri vinnu sem hafin er verði hraðað eins og kostur er, og sátt ríki um uppbygginguna.



Ragna Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands og fulltrúi stúdenta í starfshópi um uppbyggingu stúdentaíbúða við Gamla Garð




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×