Innlent

Íslenska þjóðfylkingin vill afturkalla lóð undir mosku og byggja fleiri mislæg gatnamót

Sylvía Hall skrifar
Formaður flokksins, Guðmundur Karl Þorleifsson, mun leiða lista flokksins í Reykjavík.
Formaður flokksins, Guðmundur Karl Þorleifsson, mun leiða lista flokksins í Reykjavík. Íslenska þjóðfylkingin
Íslenska þjóðfylkingin kynnti framboð sitt fyrir sveitastjórnarkosningarnar á blaðamannafundi í dag. Formaður flokksins, Guðmundur Karl Þorleifsson, fór þar yfir helstu stefnumál flokksins en hann mun leiða lista flokksins í Reykjavík.

Á fundinum kom fram að á meðal helstu stefnumála flokksins séu uppbygging mislægra gatnamóta, endurvakning verkamannabústaðakerfisins og að frítt yrði í strætó fyrir námsmenn á höfuðborgarsvæðinu. Einnig vilja þau afturkalla úthlutun lóðar undir byggingu mosku í Reykjavík og að leyfisveitingar vegna viðbyggingar á bænahúsi múslima í Öskjuhlíð verði dregnar til baka.

Í tilkynningu frá framboðinu segir að flokkurinn vilji gera Reykjavík að fjölskylduvænni borg með opnun fleiri leikskóla og skipulagningu opinna svæða.

Efstu þrjú sæti Íslensku þjóðfylkingarinnar skipa:

1. Guðmundur Karl Þorleifsson, formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar.

2. Hjördís Bech Ásgeirsdóttir, félagsliði.

3. Jens G. Jensson, skipstjóri. 

Sveitarstjórnarkosningar fara fram þann 26. maí. Framboð geta sent upplýsingar um lista ásamt mynd á [email protected].




Fleiri fréttir

Sjá meira


×