Skoðun

Hvað er að frétta af „stríðinu gegn einkabílnum“?

Líf Magneudóttir skrifar
Eitt af kostulegri hugtökum sem dúkkað hafa í borgarpólítíkinni eru hin svokallaða aðför eða stríð gegn einkabílnum. Af einhverri ástæðu telja sumir að allar aðgerðir til að greiða fyrir vistvænni umferð, greiða götu almenningssamgangna, borgarlína, betri hjólreiðastígar og bætt aðgengi fótgangandi séu „aðför“ eða „stríð“ gegn einkabílnum. Gott og vel. Ef svo er þá er ljóst að við verðum að blása til stórsóknar í því stríði!

Það væri þó betra ef við gætum náð einhverskonar sáttum í þessu ímyndaða stríði, því aukið vægi vistvænni samgangna er hagsmunamál okkar allra.

Meiri umferð einkabíla þýðir meiri mengun

Það er beinlínis lífsspursmál að við blásum til sóknar í því að greiða götu vistvænna samgangna. Það er ein áhrifamesta aðgerð sem við getum farið í til að vinna gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Rannsóknir sýna líka að 80% svifryks í borginni kemur frá bílaumferð. Sama má segja um örplast: Götur og umferð eru stærsta uppspretta örplasts sem berst í sjó á Íslandi.

Við útrýmum hvorki svifryki né örplasti með því að spúla göturnar oftar: Eina raunhæfa aðgerðin til að draga raunverulega úr mengun er að menga minna.



Vistvænar samgöngur eru hagsmunamál allra

Eitt af því sem gleymist í þrasinu um „aðförina að einkabílnum“ er að vistvænar samgöngur eru, þegar öllu er á botninn hvolft, stærsta hagsmunamál þeirra sem þurfa að nota einkabílinn. Ef allir íbúarnir í nýjum hverfum austan Elliðaáa þurfa að keyra á einkabílum í vinnuna þýðir það gríðarlega umferðaraukning, með tilheyrandi mengun, hávaða og töfum.

Við leysum það ekki með fleiri hraðbrautum, mislægum gatnamótum eða ljósastýringu sem auka umferðarflæði. Allar rannsóknir og reynsla frá öðrum löndum sýna að bílum á götunum fjölgar einfaldlega þegar það það verður auðveldara að keyra milli staða. Fólk fer fleiri óþarfar ferðir og áður en varir eru tafirnar orðnar jafn miklar og áður meðan mengun hefur aukist.

Eina raunhæfa leiðin til að leysa þetta er að gera fólki auðveldara að nota almenningssamgöngur, hjóla eða ganga í vinnuna. Ný hverfi þarf að þróa með tilliti til almenningssamgangna og tryggja að fólk geti sótt þjónustu í sitt nærumhverfi.

Borgarlína og vistvænir samgöngumátar eru ekki „stríð“ eða „aðför“. Þær eru skynsamlegar og raunhæfar aðgerðir til að minnka tafir í umferðinni, minnka mengun og gera borgina þannig bæði grænni og betri. Við þurfum líka ávallt að hafa hugfast að framtíð vistkerfis jarðarinnar er í húfi.



Höfundur skipar fyrsta sæti á framboðslista Vinstri grænna í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×